Leita í fréttum mbl.is

Kínverska löggan gengur í skrokk á gamalli nunnu

Las áðan frétt um að kínverskir gæðamenn hafi gengið í skrokk á gamalli nunnu í Tíbet fyrir það eitt að neita að hafna sínum trúarleiðtoga, Dalai Lama. Þá las ég það einnig að 1200 manns hafi verið teknir höndum fyrir mótmæli, 100 sé saknað og staðfest að 79 hafi verið drepnir. Þetta á aðeins við um í Lhasa. Ekki er vitað um hlutskipti Tíbeta annars staðar í landinu en mótmæli hafa verið stöðug undanfarnar tvær vikur. 

Enn er landið lokað og við Íslendingar hugsum frekar um viðskiptahagsmuni en mannréttindi ef marka má orð Utanríkisráðherra okkar. Hún segir eitt Kína, ég segi frjálst Tíbet.

Var að kíkja á veðurspánna og samkvæmt henni mun viðra vel til þess að koma saman fyrir utan kínverska sendiráðið. Ég er enn að springa úr gremju gagnvart þessu ófyrirleitna og viðbjóðslega áróðursmyndbandi sem kínverski sendiherrann sendi á fjölmiðla.

Á morgunn mun Poetrix rappa um réttlæti og óréttlæti, Jón Sæmundur mun frumsýna baráttuboli til stuðnings Tíbet. Ég hlakka mikið til að sjá þá. Held að hann hafi þá örugglega í gulu. Ég er að hugsa um að lesa nýtt ljóð sem ég samdi í vikunni á ensku. Og svo kemur vonandi Jón Valur og heldur aftur ræðustúf... hann er svo fróður um málefni Tíbet.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sæl Birgitta! Bara af því að tengdamamma er frá Kína og konan mín hæalf kínversk, vildi ég benda á stafsettningar villu hjá þér, þó ég þykist gruna að þú hefðir skrifað þetta viljandi: En vittna í efstu línuna í góðum psttli,,

"Las áðan frétt um að kínverskir gæðamenn hafi gengið í skrokk á gamalli nunnu í Tíbet fyrir það eitt að neita að hafna sínum trúarleiðtoga, Dalai Lama." Ég held að þú hafir átt við   "að kínverskir glæpamenn hafi gengið í skrokk á gamalli nunnu..en ekki "gæðamenn"..

Óskar Arnórsson, 28.3.2008 kl. 16:52

2 Smámynd: Anna Pála Sverrisdóttir

Stendur þig vel stelpa.

Anna Pála Sverrisdóttir, 28.3.2008 kl. 17:46

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fundurinn við sendiráð Kína á Víðimel 27 (ekki langt frá Birkimel og Þjóðarbókhlöðunni) verður á morgun, laugardag, kl. eitt e.h., sagði Birgitta mér sjálf í símtali áðan.

Jón Valur Jensson, 28.3.2008 kl. 18:54

4 identicon

Hæ Sæta, alltaf gaman að lesa bloggið þitt þrátt fyrir mannréttindabrotin sem eru skelfileg. Langaði bara að segja að ég kann að baka, vertu í sambandi ef ég get aðstoðað

Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband