Leita í fréttum mbl.is

Enn ein blóðug rósin í hnappagat Kína

Við sem upplýst þjóð, hreinlega verðum að leggja okkar á vogaskálar réttlætis og gera eitthvað til að þrýsta á kínversk yfirvöld og láta þau vita að okkur er ekki sama um mannréttindi í heiminum. Þau kynda undir þetta stríð en hafa því sem næst komist upp með öll sín myrkraverk óáreitt vegna þess að, ég veit það ekki, Kína er svo langt í burtu!!???

Frábært framtak hjá hjálparstofn kirkjunnar að vekja athygli á Darfúr... það er vægast sagt skelfilegt ástandið þar. 


mbl.is „Vandinn í Darfúr kallar á ábyrgð okkar allra”
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Eitt sem að ég er ekki búin að setja mig inn í afhverju Dalai Lama leggur ekki áherslu á sjálfstæði Tíbet frá Kína. Getum við tekið fram úr kröfum leiðtoga Tíbeta?

Gunnlaugur B Ólafsson, 27.3.2008 kl. 09:12

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Dalai Lama hefur viljað fara hinn gullna meðalveg alla tíð, en fjöldi Tíbeta er búinn að fá nóg og krefjast þess að fá landið sitt til baka. Dalai Lama hefur viljað fá sjálfstæði en það mun aldrei gerast... þannig að ég sé ekkert athugavert við að styðja þá fjölda Tíbeta sem kalla eftir Free-Tibet

Birgitta Jónsdóttir, 27.3.2008 kl. 09:20

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

With our thoughts we make the world.

Buddha

Birgitta Jónsdóttir, 27.3.2008 kl. 09:24

4 identicon

Innlitskvitt, get ekki verið meira sammála þér. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:04

5 identicon

Það er ekkert skrýtið að Kína komist upp með hvað sem er. Kína er í dag orðið eitt öflugasta og ríkasta land í heimi. Almúginn á ekki bót fyrir boruna á sér, en 200 milljón manna elítan í landinu veit ekki aura sinna tal. Það er ekki vegna þess að Kína er svona langt í burtu að lönd hér fyrir vestan loka augunum fyrir mannréttindabrotunum sem framin eru þar, heldur er það vegna þess að fyrirtækjaeigendur á vesturlöndum hagnast alveg gríðarlega á því að láta kinverskan almenning framleiða varning á brot af því sem það myndi kosta að framleiða hann hérna, en selja hann engu að síður á verði sem gæti eingöngu talist eðlilegt ef hann væri framleiddur hér. Þetta veldur einnig alveg gríðarlegri misskiptingu auðs. Fyrirtækjaeigendur í Kína maka krókinn á því að hafa nánast þrælaverkamenn í vinnu hjá sér og verða ríkari og ríkari, fyrirtækjaeigendur á vesturlöndum verða ríkari og ríkari, en millistéttin verður fátækari og fátækari meðan Kínverska alþýðan lepur dauðann úr skel. Money talks! og meðan svo er þá komast Kínverjar upp með allt, rétt eins og Bandaríkjamenn og Bretar 

Heimir Arnar Birgisson (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:24

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyr, heyr, Birgitta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 10:53

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Gæti ekki verið meira sammála.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.3.2008 kl. 11:50

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert baráttuljón, Birgitta. Látum þetta réttlætismál ekki falla í dá og dáðleysi. Og lesendur þínir, sem láta sig málið varða, geta nú fundið alla pistla mína um Tíbet í einum efnisflokki, þar sem ég safnaði þeim saman og nefnist Tíbet, Kína, Taívan. – Kær kveðja með virðingu.

Jón Valur Jensson, 28.3.2008 kl. 00:21

9 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Tek ofan fyrir þér Birgitta!

Já það sem er langt í burtu virðist koma okkur síður við en það sem nær er. Menningarlegur munur ræður auðvitað mestu um og þess vegna finnst mér félgsvísindin hafa svo miklu hlutverki að gegna í heiminum. Þau veita ýmis tækifæri til að byggja brýr á milli menningarheima.

Soffía Valdimarsdóttir, 28.3.2008 kl. 10:36

10 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sammála þér Soffía

Frábært að hafa svona greiðan aðgang að upplýsingum á vefnum þínum Jón Valur, það er mikill fengur í því að geta nýtt sér þetta á okkar ilhýra tungumáli, hef svo oft ekki tíma til að þýða það sem ég finn á veraldarvefnum:)

Og takk allir fyrir góða orku og stuðninginn....

Birgitta Jónsdóttir, 28.3.2008 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband