Leita í fréttum mbl.is

Utanríkisnefnd ætti að koma tafarlaust saman

og krefjast þess að mannréttindasamtökum verði hleypt inn í Tíbet og að tafarlausri rannsókn verði komið á um hlutskipti þessa fólks sem var handtekið, kínversk stjórnvöld hafa hótað þeim miskunarleysi og við vitum öll hvað það þýðir. Limlestingar, pyntingar og dauði. 

Ég hvet fólk til að skrifa sendiherra Kína á Íslandi og láta í ljósi áhyggjur sínar af þessum föngum sem og kerfja þá um að hleypa fjölmiðlum í landið sem og koma á símasambandi við Tíbet... 


mbl.is Þúsund Tíbetar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það verður aldrei samþykkt af íslenzku ríkistjórninni að gera neitt sem mun styggja kínverja.

Níels A. Ársælsson., 18.3.2008 kl. 11:48

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Því miður óttast ég að Níels hafi rétt fyrir sér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2008 kl. 11:56

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hef ekki mátt vera að því að commenta hjá þér fyrr....en hef lesið á hraðferð....tek hatt minn ofan fyrir þér, fyrir að halda á lofti umræðu um stöðu mála í Tíbet....þetta eru hrikaleg mannréttinda brot sem er verið að fremja þar.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.3.2008 kl. 17:39

4 identicon

Við erum víst ríkið og ef við stöndumst ekki þá ábyrgð að vera ríkisborgarar eigum við því miður lítið skilið af þeim mannréttindum sem við erum svo heppin að eiga.

lög mannréttinda voru unnin af jónum og gunnum forfeðra okkar og það er okkar að kynna okkur málin og koma skilaboðum til erindreka okkar (ríkisstjórnin)

vona að hlekkurinn hér fyrir ofan komi rétt framm en þetta er heimildamynd um innrás kína í Tíbet um miðja síðustu öld.

ég persónulega er orðin þreittur á því að vera alltaf friðsamlega "passívur" og vil breitast í Friðsamlegan athafnamann um mannréttindi. við getum það Öll!

Jón Tryggvi Unnarsson (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 509214

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.