Leita í fréttum mbl.is

Ef rétt: þá gæti ég ekki verið ánægðari með það

Það er svo skammarlegt og ömurlegt að vita til þess, hvernig kínversk pólitík hefur farið með þá friðarþjóð sem í Tíbet býr. Hef séð of margar heimildarmyndir til að hafa ekki sterka skoðun á þessu og glaðst yfir öllum tilburðum til stuðnings þeim:)

Alþjóðasamfélagið hefur algerlega snúið baki við þessari þjóð og öryggisráð S.Þ. sýndi þegar Tíbet var hernumið hve lítils megnugt það er... 


mbl.is Björk tileinkaði Tíbetum lag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alþjóðasamfélagið hefur að mínu mati sýnt það svo ekki verður um villst, að þeir standa aldrei með þeim sem minna mega sín, eða hvernig hafa þeir staðið við bakið á Palestínumönnum ? Þeir hafa hreinlega horft upp á Ísraelsmenn murka úr þeim lífið, konum börnum og fleirum.  Það er svo ógeðslegt að ég á ekki orð.  Svo er smjaðrað fyrir þessum morðingjum, ja svei. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.3.2008 kl. 09:42

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

mikið er ég sammála þér Ásthildur mín

spurningin hvað getur maður gert...?

af hverju erum við ekki búin að slíta stjórnmálasambandinu við til dæmis Ísrael...?

af hverju tókum við þátt í bullinu gagnvart Falun Gong?

við erum ábyrg... ef við gerum ekki neitt...

Birgitta Jónsdóttir, 4.3.2008 kl. 12:36

3 identicon

Þetta ER rétt.

Eina ástæðan fyrir því að fólk segir ekki neitt er að svo margir eiga í einhverskonar viðskiptum við Kínverja. 

Það er beinlínis ógeðslegt hvernig þeir hafa farið með Tíbet. 

Jónas Sen (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 19:56

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég dáist af listafólki sem þorir að hafa skoðanir og notar sköpunarkraft sinn eins og Björk. Hún er ekkert nema hetja í mínum augum eftir þessa tónleikaferð. Fyrst Grænland, Færeyjar, Kosovo og svo Tíbet.

Ég hef fylgst með þeim hörmungum sem hafa átt sér stað í Tíbet og hjarta mínu blæðir yfir því. Man að ég sá alveg magnaða heimildarmynd í danska sjónvarpinu fyrir 20 árum. Það var dönsk fréttakona sem smylgaði sér inn í landið og fann þar sannanir fyrir þvílíkum voðaverkum að manni verður illt þegar maður hugsar út í það.

Það versta við þetta allt er að það er nánast ómögulegt að versla ekki vörur sem eiga ekki uppruna sinn í Kína. Og það sem er enn verra er einmitt það að fjárhagslegur ávinningur virðist alltaf verða ofaná þegar kemur að mannréttindum.

Birgitta Jónsdóttir, 4.3.2008 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband