Leita í fréttum mbl.is

Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni

Siggi nokkur pönk var að gefa út bókina Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni, ætla að tryggja mér eintak, þó svo maður hefur lesið fjölmargar bækur um þessi hluti þá er alltaf gaman að lesa þá í samhengi við okkar sérstæða og gjörspillta samfélag:) Mæli með að þeim sem er nóg boðið í tengslum við valdaránið í borgarstjórn fengju sér þessa bók... Læt tilkynninguna sem ég fékk frá honum fylgja...

"Út er komin ný bók frá Anarkistaútgáfunni Andspyrnu. Hún heitir "Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni" og er kynning á friðsamlegum mótmælum, beinum aðgerðum og borgaralegri óhlýðni sem verkfærum almennings til varnar sínu samfélagi. Meðal annars er sagt frá hvernig rannsaka má fyrirtæki, skipuleggja grasrótarhópa og undirbúa aðgerðir, stöðva vinnu, hindra aðgang að afmörkuðum svæðum, fjallað er um mótmælabúðir, réttarstöðu mótmælenda, consensus og kulnun í aktivistahlutverki.

Þessi bók kemur út á réttum tíma, þar sem mikil umræða hefur átt sér stað um náttúru og tilgang mótmælaaðgerða og óflokksbundinnar stjórnmálaþátttöku, sem náði ákveðnu hámarki þegar mótmælendur stöðvuðu fund nýs meirihluta í borgarstjórn í síðustu viku.

Af bókarkápu:Andspyrna við valdbeitingu og óréttlæti er náttúrulegt og eðlilegt ferli í samfélögum manna.  Því erum við ekki að berjast fyrir náttúruna þegar við myndum andspyrnuhópa gegn stóriðju heldur erum við náttúran að svara fyrir sig.  

Við erum heldur ekki beint að berjast fyrir betra samfélagi þegar við myndum hópa sem verja mannréttindi, heldur erum við samfélag að verja sig.  

Bók þessi fjallar um beinar aðgerðir og borgaralega óhlýðni sem verkfæri þeirra sem vilja hafa áhrif í sínu samfélagi en hafa hvorki opinber völd né áhuga á þeim. 

Hér er meðal annars fjallað um og leitað svara við eftirtöldum atriðum: Hver er munurinn á friðsamlegum mótmælum, borgaralegri óhlýðni og beinum aðgerðum? Hverning má stöðva vinnu á afmörkuðum svæðum og gæta eigin öryggis um leið?  Hvernig er gott að standa að skipulagi aðgerða  og aðgerðahópa.  Hvernig geta borgarar myndað þrýstihópa, rannsakað starfsemi fyrirtækja og ef til vill hent rjómatertum í stjórnmálamenn. Er hægt að taka yfir götur og breyta þeim í útivistarsvæði?  

Við getum aldrei myndað hið fullkomna samfélag-en það er rétt að reyna hvað maður getur til þess. 

-Í raun fjallar þessi bók um ábyrgð og hugrekki. 

"Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni" er ríkulega skreytt myndum og skýringamyndum. Hún er 100 bls og kostar rétt rúmlega 1000 kr (fer nokkuð eftir mismunandi álagi ólíkra útsölustaða). Hún fæst m.a. í Hljómalind, 12 Tónum, Nexus, Ranimosk og nokkrum verslunum Pennans/Máls og Menningar."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.  Ég er að reyna að nálgast texta með lagi eftir mömmu þína sem heitir Af hverju?  Það sem ég veit ekki er hver samdi textann,hvort það var hún eða einhver annar.  Ég yrði svo mikið þakklát ef þú gætir hjálpað mér með þetta.  Gætir kannski sent mér línu...ég er með netfangið bara.kr@simnet.is.

Bestu þakkir

Bára félagi.

Bára (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 15:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 Knús á þig baráttukona. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 11:43

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ég ætla líka að kaupa mér svona bók. ég hef líka verið á námskeiði fyrir tveimur þremur árum í borgaralegri óhlýðni, festist lítið í mér, svo ég þarf að rifja þetta upp!

María Kristjánsdóttir, 30.1.2008 kl. 00:00

4 identicon

Námskeið í borgaralegri óhlýðni OMG .

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 19:51

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

María vorum við saman á námskeiðinu... á hvoru námskeiðinu varst þú? Ég var þegar Paul Gill var, sá hinn sami og svetti græna skyrinu:) Þetta var reyndar afar áhugavert námskeið. Hef því miður ekki fengið að láta almennilega á það reyna. Lögreglan hefur aldrei verið fús að handtaka mig þrátt fyrir að ég hafi boðið þeim það, þegar þeir hafa farið yfir strikið í mótmælum... Ég er greinilega ekki nógu óhlýðin. lol

Birgitta Jónsdóttir, 30.1.2008 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.