Leita í fréttum mbl.is

Góðar fréttir og vetrarfrí

Jón Tryggvi er kominn heim af spítala, augað enn fullt af blóði eftir að hafa farið í tvennt en hann hélt því. Þá er að sjá fyrir sér að hægt sé að laga sjónina á því. Ég hef tröllatrú á að hægt sé að laga það. Ótrúlega miklir snillingar nútíma augnskurðlæknar. Ekki skemmir að hann er haldinn mjög jákvæðu hugarfari og hygg ég að það spili stóran þátt í undraverðum bata hans.

Ég er ekki búin að fá vinnu en hef í nógu að snúast og ætla að nota tímann vel sem ég hef. Það er reyndar stórfurðulegt með þessi vetrarfrí í grunnskólum landsins. Yngri sonur minn er að fara í frí á morgunn og fram á þriðjudag. Ef ég hefði verið í fullri vinnu þá hefði ég hreinlega ekki haft hugmynd um hvað ég ætti að gera við hann. Ekki hefði verið mögulegt að taka hann í gömlu vinnuna mína og ekki hefði ég viljað láta hann vera einan heima 6 ára guttann. Það er ekki boðið upp á neitt annað en að hafa barnið í fríi sem er svo sem alveg ljómandi góð hugmynd ef maður hefur tök á að taka sér frí. Það eru bara ekki allir í aðstöðu til þess. Þetta setur óeðlilegt álag á fólk eins og mig sem hefur enga til að passa ef eitthvað svona kemur upp á. Krakkar á eldri námsstigum eru ekki endilega í fríi á sama tíma.

Nóg af tuði: lífið er ævintýr og ég er alkemistinn í lífi mínu og hef lært að breyta eitri í meðal:)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Elsku Birgitta! Skelfilegt að heyra af þessu slysi en á sama tíma gott að vita að allt fór betur en á horfðist.

Varðandi vinnumissinn er ég alveg viss um að þú finnir eitthvað við þitt hæfi innan skamms. Samt lán í óláni að þú skulir geta verið heima í þessu vetrarfríi. Þetta getur verið þvílíkt púsluspil og verður það t.d. hjá mér. En þetta reddast nú einhvern veginn allt saman. Við eigum víst jákvæða hugarfarið sameiginlegt en það gerir kraftaverk eins og við vitum.

Gangi þér og ykkur vel.

Laufey Ólafsdóttir, 31.10.2007 kl. 16:11

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk Laufey mín. Gangi þér vel í púsla öllu saman næstu daga... þú ert svo mikill dugnaðarforkur:) Mamma hafði mjög gott mottó sem ég hef tekið til mín; Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott...

Birgitta Jónsdóttir, 31.10.2007 kl. 16:34

3 Smámynd: Jón Tryggvi Unnarsson

Hæ hó!!! Langar að þakka fyrir þann vinarhug sem ég hef fengið hér. Er óendalega þakklátur fyrir allt! Ég hef líka trölla trú á að augað komi til og þó að svo verið ekki þá hef ég fengið að sjá svo ótrúlega magnaða hluti sem ég er ekki svo viss um að ég hefði getað með fullri þrívíddar sjón. það sem stendur uppúr er hún Birgitta mín og sú orka sem hún hefur gefið mér.

Takk ástin mín!! langaði bara að opinbera það aðeins betur hvað ég þakklátur fyrir það ljós sem þú ert mér og hvað ég elska þig.

Jón Tryggvi

Jón Tryggvi Unnarsson, 1.11.2007 kl. 03:01

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ hvað þetta er sætt  Jón Tryggvi auðvitað tökum við bara þann pól í hæðina að sjónin þín komi til baka.  Á meðan hafðu það sem allra allra best, og gott áttu að eiga þennan engil að. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2007 kl. 19:32

5 identicon

Gott að Jón er að hressast. Skrítið með þessi vetrarfrí.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.