Leita í fréttum mbl.is

Mögnuð skilaboð frá Carl Sagan

Ég varð djúpt snortin þegar ég horfði á þetta myndband í morgunn... langaði að deila því með ykkur. Annars þá er allt ljómandi gott af mér að frétta. Er að aðlagast nýjum vinnutímum, er ekki lengur á þessu skelfilega vaktavinnuplani, sem var afspyrnu andfjölskylduvænt. Tek hatt minn ofan fyrir því fólki í samfélaginu sem á fjölskyldur og getur haldið eðlilegt fjölskyldulíf samhliða vaktavinnu. Ég er orðin of gömul fyrir svona rugl með svefntíma. Finnst best að vakna með fuglunum og langt á undan flestum. Er frekar andfélagsleg fyrir vikið:) Klukkan fimm er minn tími til að vakna, kem þá einhverju í verk áður en fjölskyldan vaknar en þyrfti ca 2 tíma í viðbót til að verða ánægð með afköstin. Hætt að horfa á sjónvarp sem er gott. Lífið of stutt til að sóa því fyrir framan slíka mötun. Æviminningabókin um mömmu er að taka á sig mynd í huga mér og mun hún að sjálfsögðu heita "Lífsbók Bergþóru Árnadóttur". En njótið vel myndarinnar um litlu bláu doppuna í hinum óendanlega geimi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Falleg hugvekja þessi Birgitta mín.  Gaman að heyra að lífsbókin er að fæðast í kollinum á þér.  Óska þér alls hins besta, og megi allir góðir vættir vaka með þér elskuleg.  Stórt knús til þín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2007 kl. 13:23

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk Ásthildur mín... Er búin að skella þér á lista yfir tilvonandi viðmælendur Lífsbókarinnar....

Birgitta Jónsdóttir, 9.10.2007 kl. 18:17

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Birgitta mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2007 kl. 10:02

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Astronomy is a humbling experience... alveg sammála því. Við erum svo lítil

Fjölskyldufólk í vaktavinnu á heiður skilinn. Þetta er mjög slítandi og ætti að vera betur verðlaunað. 

Laufey Ólafsdóttir, 12.10.2007 kl. 09:43

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hæ Birgitta, ég addaði þér á vinalistann, sé að við eigum margt sameiginlegt, hlakka til að fara spjalla.

Kíkti á myndbrotið með Sagan og tek heilshugar undir hans orð.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.10.2007 kl. 16:01

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

flottar myndirnar frá garðinum í Finnlandi... verð að fara í þennan garð, sjaldan sem list nær að kveikja svona í mér eins og þessir skúlptúrar...


Birgitta Jónsdóttir, 19.10.2007 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband