Leita í fréttum mbl.is

Aukaverkanir lyfsins mun skaðlegri en hér kemur fram

Veit til þess að ungt fólk hefur fengið grand mal flogaveiki af misnotkun á þessu. Mér er alveg fyrirmunað að skilja hve mikið er skrifað út af lyfjum sem þessum. Furðulegt að ekki sé til gagnagrunnur eða eitthvað slíkt sem myndi láta læknum í tjé upplýsingar um ef viðkomandi sjúklingur er að fá ávísuð lyf hjá öðrum læknum eins og svo algengt er meðal þeirra sem eru háðir læknadópi. Hvernig væri nú að alvöru átak væri hrundið af stað þar sem er tekið er á þessu af einhverri alvöru. Finnst engin hemja hve auðvelt það er fyrir fólk að fá mjög sterk geðlyf með því að segja "réttu" hlutina við geðlækna og heimilslækna.

Skil bara ekki hvernig hægt er að láta sér detta í hug að ávísa jafn hættulegu lyfi við öðru en flogaveiki. Flogaveikislyf eru einhver sá almesti viðbjóður sem hægt er að ávísa og eru flest mun hættulegri en fólk gerir sér grein fyrir. Misnotkun á lyfjum er stórt vandamál sem allir vita ef en enginn virðist vera í stakk búinn í heilbrigðisgeiranum að finna lausn á.


mbl.is Síbrotamenn misnota nær allir lyfið Rivotril
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjóla Björnsdóttir

Sael.

Sammála thér í öllum meginatridum.  Thad vaeri frábaert fyrir heilbrigdisstarfsfólk ad geta fengid upplysingar úr slíkum gagnagrunni.  Hann er hinsvegar ekki til stadar, en thad er ekki vegna dugleysis heilbirdiskerfissins heldur vegna thess ad lög um persónuvernd leyfa ekki slíkan grunn.  Theim yrdi fyrst ad breyta.  Mín skodun er sú ad thau lög gangi of langt og séu fáum til góda, nema thá kannski theim sem hafa eitthvad ad fela, eins og í thessu tilfelli.

Kvedja Fjóla Björnsdóttir.

Fjóla Björnsdóttir, 3.9.2007 kl. 10:35

2 identicon

Ég er sammála, flogaveikilyf eru viðbjóður.   Reynsluna hef ég sjálf, flest flogav.lyf voru á mér prófuð, þ.á.m. Rivotril.  Ég var fljót að venja mig af því, þegar ég sá aðra manneskju setta á það.  Hún var alveg takin úr sambandi, og vildi helst sofa.  Ég tók lyfið strax út, sem var víst óvarlegt, fékk eitt stórt kast, síðan ekki meira, sem hægt væri að kenna því að ég hætti.  Manni finnst skrítið að vera sett á lyf, sem við lestur um þau kemur í ljós að enginn veit raunverulega hvernig þau verka.  Þannig er það með flogaveikilyfin.  Heilastarfið er því miður , en skiljanlega mjög flókið og við vitum sannarlega aðeins örlítið um það, enn, sem komið er.  Þess vegna hef ég verið ósátt við að lyfjameðferð gegn flogaveiki.  Afleiðingar voru nefnilega oft slæmar.  En mér auðnaðist að fara í aðgerð , og allt er skárra en að vera eiturlyfjaneytandi.  Jafnvel þó að taugakerfi sé lélegt. 

vigdís ágústsdóttir (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 11:25

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

AlheimsLjós til þín i gegnum mig

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.9.2007 kl. 17:10

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þekki ekki til þessa lyfs.  En öll lyf sem hægt er að misnota eru viðbjóður.  Og alltaf eru til læknar sem eru tilbúnir til að gefa út lyfseðla til misnotkunar.  Æ skelfilegt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2007 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband