Leita í fréttum mbl.is

Eyes on Darfur

Var akkúrat í þessum rituðum orðum inn á merkilegum vef á vegum Amnesty International sem heitir Eyes on Darfur, hvet alla til að fara inn á þennan vef og kynna sér þetta mál. Vona að það verði gert eitthvað núna fyrir þessa þjökuðu þjóð sem með sanni er fyrsta fórnarlamb stríðsátaka vegna gróðurhúsaáhrifa. Þarna er barsist um vatnið, bláa gullið.
mbl.is Öryggisráð SÞ mun brátt greiða atkvæði um Darfur-friðargæslulið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er löngu komin tími á Darfur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.8.2007 kl. 08:44

2 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef fylgst með og reynt að kynna mér ástandið í Darfur.  Aumingjaskapur Sameinuðu þjóðanna varðandi þetta svæði er hrópandi.  Þarna er ekki olía heldur staðbundið vatn og beitilönd. 

  Í leiðinni vil ég vekja athygli á diski sem Amnesty International hefur gefið út til að vekja athygli á ástandinu.  Þar flytja margar frægar poppstjörnur lög Johns Lennons.  Ég er búinn að panta diskinn en á eftir að landa honum.

   Þar fyrir utan er ég forvitinn að vita hver Jón Tryggvi er sem flytur ljúft lag í tónspilara þínum.  Honum svipar til færeyska tónlistarmannsins Teits (sem er í mínum tónspilara en að vísu ekki með dæmigert sýnishorn). 

Jens Guð, 5.8.2007 kl. 00:52

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Láttu mig endilega vita hvernig AI diskurinn er, ég var að reyna að skella spilaranum hér inn en eitthvað var það ekki að ganga. Kíkti á síðuna og mér líst vel á gripinn... ömurlegt að ekki sé hægt að kaupa tónlist í gegnum ITunes ef maður er frá Íslandi.

Hann Jón Tryggvi er með slatta af tónlist inn á myspace.com/dasfunkyt. Var í öðru sæti í nýafstaðinni hæfileikakeppni sem fór fram í Iðnó. Hann á fullt af flottum lögum og ljóðum í sínum ranni og er að hefja göngu sína um tónlistarstíga. Hann er líka nafni bróður míns og minn kærasti:) Lífið er skemmtilega absúrd og ekki laust við að maður upplifi það sem tilbrigði við ævintýr.

Birgitta Jónsdóttir, 6.8.2007 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband