Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað allt annað: daglegt líf kameljónsins er ævintýr

nebula_2Ég er svo óendanlega lánsöm manneskja og fæ seint þakkað verndargyðjum mínum. Eftir ákaflega mikið streð og ýmsar fremur erfiðar lífsreynslur þá er það búið að taka stefnuna á vit hverdagslegra ævintýra. Ekki það að hið ytra hafi tekið breytingum ... nei mín innri kjölfesta er bara alltaf að styrkjast og ákveðin meðvitund um að ég er alltaf við stjórnvölin þegar kemur að því að vinna úr því sem lífið réttir að mér. Ég vil mun frekar vera Pollýanna en Kristur á krossinum. Vil þakka móður minni fyrir að leggja hornsteininn að innbyggðri bjartsýni.

Líf mitt er einfaldlega himnaríki á jörðu. Þeas þannig líður mér. Man þegar ég var unglingur og mér leið sem ég væri föst í helvíti. Allt kemur eitthvað svo auðveldlega til mín og ég veit loks hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór:) Hef tekið ákvörðun um að hætta að búa til hluti eins og auglýsingar og annan ófögnuð sem tengist neysluhyggju og hraða nútímans. Ég vil miklu frekar gera það sem mér finnst skemmtilegast að verða öðru fólki til gagns. Að nota eitthvað af allri þessari reynslu sem mér hefur verið skaffað til að hjálpa öðrum. Er með frábæra vinnu í farvatninu og hlakka mikið til að takast á við það verkefni. Þá ætla ég mér í ráðgjafaskólann í haust.

Annars þá er ég líka svo uppfull af sköpunargleði ... ástin á þar stóran hlut að máli. Er í eitthvað svo háu lífsástandi þessa dagana og svo brimfull af þakklæti að hafa loksins fundið hinn helminginn af mér:) Svo einstakt að deila lífi með einhverjum sem tekst að laða fram það besta í mér og visa versa.

Í gær var ég að finna titil á lagi eftir mömmu í ljóðabók eftir Stein Steinarr og þá hoppaði út úr henni enn eitt lagið. Er eiginlega að forðast að láta þessi lög koma til mín því ég ætla mér ekkert með þau og þá verða þau steinbörn. Finnst þetta reyndar skondið... ljóðin hans er ljón í launsátri sem stökkva á mig og leysa mig úr læðingi.

Svo er ég að gera alveg ótrúlega skemmtilega textavinnu með tveimur einstökum dönskum listamönnum : eins konar modern mythmaking... mjög gaman...

Og svo á ég svo yndisleg börn og veðrið er bjart og hjartað fullt af bjartsýni... himnaríki gæti ekki verið betra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndislega jákvæð og falleg færsla.

Megi alheimsljósið skína á þig alla daga og halda við þínu jákvæða hugarfari.

megi aðrir fylgja þínu fordæmi.

Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 11:20

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk Steina... og bjartar kveðjur til þín:)

Birgitta Jónsdóttir, 16.7.2007 kl. 13:46

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Égheld að það sé 100 ára afmæli Steins Steinars á næsta ári. Væri ekki frábært að öll bestu ljóðin hans kæmu út þá í flutningi þeirra sem hafa samið við ljóðin hans?

Ævar Rafn Kjartansson, 18.7.2007 kl. 01:58

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Mikið rétt... Steinn hefði orðið 100 ára á næsta ári. Veit að eitthvað verður um útgáfur í tengslum við það. Við erum að spá í að hafa Steins Steinars þema á minningartónleikunum um mömmu, hún samdi svo rosalega mikið af lögum við ljóð hans. Hygg að tónleikarnir verði geggjaðir miðað við það lineup sem nú þegar er komið en það er enn hernaðarleyndarmál. Annars var gefinn út svona Steins Steinars tónlistardiskur fyrir nokkrum árum. Fannst hann ekkert sérstakur.

Birgitta Jónsdóttir, 18.7.2007 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband