Leita í fréttum mbl.is

Aldrei aftur Kringlan

Hef ákveðið að fylgja fordæmi jonas.is og hætta mínum viðskiptum við súpermallið Kringluna. Ekki það að ég færi oft þar en þó laumaðist ég á útsölur í Moonson og Whistlers ásamt því að freistast til að kaupa grænmeti í Hagkaupum og annað góðgæti. Hér er hægt að horfa á það sem fór fram í Kringlunni og ég bara spyr hvað gekk þessum öryggisverði til að haga sér svona. Hef þurft að þjást í gegnum Nylon í skóldeildinni í Hagkaup og allskyns skemmtiatriði í almenning Kringlunnar sem hefur með sanni raskað ró minni og fengið mig til að hlaupa út úr musterinu. Þetta voru skemmtileg mótmæli og ég sá fullt af brosandi fólki sem staldraði við og tók við bæklingum og var greinilega skemmt. Sumir voru ekki að finnast þetta skemmtilegt en hey ekki fíla ég Nylon. Ég fer þó ekki fram á þær séu teknar baka til í Kringunni og beittar harðræði. Þegar ég kom í Kringuna fyrir hádegi með krakkana mína þá voru öryggisverðir allsstaðar. Þeir vissu greinilega ekki alveg hvernig þeir ættu að tækkla yfirvofandi síra Billy, fannst sem þeir væru bæði spenntir og hræddir miðað við fas þeirra og tal. Ekkert var skemmt, ekkert sem kallaði á þessi hörðu viðbrögð karlsins, ef eitthvað var þá reif hann borðana okkar og var að ýta harkalega við mótmælendum án ástæðu: en Kringlan hefur svo sem áður hagað sér á fasískan máta. Maður hefur svo sem verið rekinn út fyrir að dreifa upplýsingum um stríðið í Írak í almenningnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Þetta er náttúrulega klikkað lið en það má alveg vera klikkað í friði fyrir mér. En ég hefði svo sem ekki viljað vera þarna á ferðinni með þennan mann spangólandi yfir mér, og ég er hræddur um að hann hafi nú ekki skorað mikið fyrir andstæðinga virkjana og stóriðju. Svona amerískir sjónvarpspredikarar eru ekki að virka á Íslandi.

Gísli Sigurðsson, 13.7.2007 kl. 11:35

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

æjæj heldur þú virkilega að reverent Billy sé alvöru sjónvarpsprestur....lol hahahahhahahaha.... þetta er paródía.. satíra ... húmor ... láttu tékka á skopskynsmælinum í þér Gísli minn....

Birgitta Jónsdóttir, 13.7.2007 kl. 13:07

3 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir að benda á þetta skemmtilega myndband. Kringlan fer á svarta listann. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 14.7.2007 kl. 22:01

4 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Það sem sést berlega á þessu myndbandi er að Billy er að haga sér eins og bjáni í einkafyrirtæki.  Það á auðvitað að henda manninu út.  Hárrétt vinnubrögð.  Held að forkálfar Kringlunnar gráti ekki mikið þótt þú og Hlynur komið þangað ekki aftur.  Hefði ekki viljað hafa þennan Billy æðandi yfir mér í Kringlunni,  var hann edrú?

Örvar Þór Kristjánsson, 15.7.2007 kl. 01:35

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

hverskonar tal er þetta eiginlega, var hann fullur. ert þú fullur þegar þú ert að skrifa svona lagað?

Birgitta Jónsdóttir, 15.7.2007 kl. 09:34

6 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Bara ósköp eðlileg spurning.  Mér fannst hann amk ekki virka edrú.  Ég fékk mér einn kaldan í gær.  Var bláedrú þegar ég horfði á hádegisfréttirnar núna áðan hjá stöð 2.  Þá kom blessaði talsmaðurinn og ég spyr ykkur sem þekkið til, var hann edrú?

Örvar Þór Kristjánsson, 15.7.2007 kl. 12:13

7 identicon

Ég leyfi mér að fullyrða að Gísli Sigurðsson hafi áttað sig á því að hér var um paródíu að ræða en ekki er öll paródía sniðug og ég held að ég hefði verið pirraður ef ég hefði verið að snæða mat í kringlunni og þessi vitleysingur hefði gengið að mér gólandi eins og geðveikur maður nýsloppinn af hæli. Þvílíkur sandkassi að setja Kringluna á svartan lista fyrir þetta atvik. Þetta kemur henni ekkert við. P.S. Mér fannst lögreglan bregðast rétt við þessu en öryggisvörðurinn var alltof linur að mínu mati.

Guðmundur (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.