Leita í fréttum mbl.is

Kameljónið hverfur um stund

Elsku bloggvinir og vinir...
Ég hverf um ókveðinn tíma... ert allt of upptekin af því að vera ástfangin til að eyða tíma mínum í virtual reality þegar veruleikinn er kraftaverkavél þar sem ég lifi ævintýrið.

Þetta hefur verið ómetanlegur tími og sérstakur að deila móðurmissinum með ykkur og öðrum hugrenningum. Er að setja upp blogg sem er tileinkað mömmu. Náði bergthora.blog.is:) Set þar inn upplýsingar um verkefni sem tengjast Bergþórunni minni...

Sorgin er ekki lengur eilífur saknaðurstingur heldur mjúk eins og eðalvín og minningarnar hrannast upp eins og sólstafir - ég er óendanelga glöð að ég gaf mér tíma til að komast að hjarta sorgarinnar. Borgar sig aldrei að geyma sorgina og láta aðra hluti ganga fyrir. Maður verður svo veikur í hausnum af því:)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Takk kærlega fyrir samveruna hér kæra Birgitta Sorg og gleði á sér sinn tíma og stund. Ég man enn eftir mömmu þinni frá því við vorum saman á Reykjalundi´, hún lífgaði sko bæði upp á staðinn og fólkið með sinni nærveru. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman...hún gat sko fengið mann til að hlægja

Endilega láta okkur vita þegar þú ert búin að koma blogginu upp... Njóttu þess svo bara í botn að vera ástfangin og það í raunheimum eins og sumir kalla það en ekki netheimum.......

Agný, 26.6.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Óska þér alls góðs í því sem þú ert að gera, bæði fyrir sjálfa þig og okkur með því að sinna svona vel minningu mömmu þinnar.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.6.2007 kl. 23:54

3 identicon

Elsku Birgitta- takk fyrir samveruna og hafðu það sem allra best. Vildi segja þér af því að þú ætlar að setja upp síðu um Bergþóru að ég fann í tiltektinni minni um daginn alla textana að lögunum sem flutt voru í sjónvarpinu í live-tónleikunum sem gerðir voru fyrir sjónvarpið. Hafðu samband við okkur ef þú átt þetta ekki sjálf. Það er best geymt í návist þinni

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 00:03

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Kæra Anna, ég væri alveg til í að fá textana... meila á þig á eftir.... læt vita þegar ég er búin að koma blogginu upp... var svo ljómandi ánægð þegar ég sá að bergthora væri laust:)

Það var mér ómetanlegt að fá að deila öllu dæminu í kringum andlát mömmu með ykkur og bloggið fullkominn vettvangur til að láta fólk fylgjast með þessu þegar þetta var allt að gerast... fólk er svo duglegt að vera einlægt á blogginu... sér í lagi í kommnetakerfinu:)

Birgitta Jónsdóttir, 28.6.2007 kl. 08:18

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Er sammála seinustu ræðumönnum,var og er mikill aðdáandi mömmu þinnar og syng oft lagið "Verkamaður"á lokuðum tónleikum fyrir vini mína  enda var mamma þín ein besta þjóðlagasöngkona íslands fyrr og síðar og er ætíð á prógrammi hjá mér þegar ég er með þjóðlagatónleika fyrir vini mína.
Gangi þér vel með nýja bloggið berthora.blog.is og ég mun lesa það með miklunm áhuga.
Gangi þér allt í haginn 

Magnús Paul Korntop, 3.7.2007 kl. 08:17

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Birgitta mín, ég fékk bókina þína í dag.  Og ég hlakka til að lesa hana.  Ég vona að þú farir ekki langt, því hvar á ég að hafa samband við þig annarsstaðar.  Stórt knús til þín og takk sjálf fyrir að vera svona gefandi og yndisleg manneskja, rétt eins og móðir þín.  Það er gott að vita að það eru einstaklingar í heiminum sem eru eins og þið tvær, like mother like daugther.  Sannarlega Guðsgjöf.  En samt er rosalega gott að vita að þú ert ástfanginn, og megi allir góðir vættir vaka með þér og vernda.  Megir þú blómstra og dafna sem aldrei fyrr.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.7.2007 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband