Leita í fréttum mbl.is

Fyrirsagnaljóð frá bloggvinum

Í morgunn þegar ég leit á yfirlit yfir nýjustu færslur bloggvina minna blasti við mér svo kómísk samstæða fyrirsagna að ég varð að búa til úr henni ljóð;)

Nakinn bæjarstjóri?
Rómantík í morgunsárið
Fasteignasalar slá sér upp
Kastljós mótmælir, og við fylgjumst með
Draumurinn
Í ELDHÚSINU Í GÆR
að minnsta kosti
Sjálfsagt mál?
Náttúruleg getnaðarvörn fyrir þá sem þora - pillan óþörf
Hár í rassinum
,,Óútskýrði" launamunurinn útskýrður
Á þessum merkisdegi
Ódýr andlitslyfting

þetta er náttúrlega bara snilld... setti bara inn eitt í og að


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, það kemur margt skemmtilegt út þegar menn leggja saman!

María Kristjánsdóttir, 20.6.2007 kl. 19:14

2 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Góð! - er þetta ekki efni í smásagnasafn?

Valgerður Halldórsdóttir, 20.6.2007 kl. 21:56

3 Smámynd: Atli Fannar Bjarkason

snilld! ég er stoltur að því að eiga línu í ljóðinu!

Atli Fannar Bjarkason, 20.6.2007 kl. 22:40

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

kærar þakkir fyrir innblásturinn og kommentin

jú kannski mætti vinna svona klippisögu úr bloggvinafyrirsögnum:) sjé til hvernig þetta raðast saman... nú mun ég aldrei lesa fyrirsagnirnar á sama hátt...

Birgitta Jónsdóttir, 21.6.2007 kl. 07:55

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Bergþóra er var mamma mín... :)

Birgitta Jónsdóttir, 22.6.2007 kl. 13:53

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Veit ekki hvort að nein manneskja þekkti hana vel.. en ég hygg að ég hafi þekkt hana betur en margur, því spyrðu?

Birgitta Jónsdóttir, 22.6.2007 kl. 13:55

7 Smámynd: Margrét Lóa Jónsdóttir

¡MIKID ertu saet á nýju myndinni, si en la foto! Var í sundlaugargardi í dag og ad lesa La sombra del viento ...  ¡KVEDJOS FRÁ OKKUR ÖLLUM HÉR Á SPÁNI BIRGITTINA MIA´- HÉR ER DÁSAMLEGT OG ÓLÍVUTRÉN HREINT YNDI, CÓRDOBA ER FALLEG OG MALAGA SVÖL MALAGA LA HECICERA LA ETERNA PRIMAVERA!

Margrét Lóa Jónsdóttir, 22.6.2007 kl. 16:28

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gott að heyra frá þér mín kæra Marlo - vona að sumarið haldi áfram að vera ævintýri líkast hjá þér og þínum. Það er það svo sannarlega hjá mér. Þú ert alltaf sæt... skilaðu hlýjum kveðjum til fjölskyldunnar frá mér.

Birgitta Jónsdóttir, 23.6.2007 kl. 10:00

9 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þetta er hryllilega fyndið, passar líka vel saman!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband