Leita í fréttum mbl.is

Útaf minningarþætti á Rás 2 um Bergþóru Árnadóttur

Var að tala við Andreu Jónsdóttur áðan og ég er orðin mjög spennt að heyra þáttinn hennar um mömmu. Var búin að lofa að setja á bloggið mitt klukkan hvað hann verður fluttur: 1. maí klukkan 16:00 til 18:00.

Hér er svona ca, næstum allir sem ég man eftir að Andrea er búin að tala við: Hjörleifur Valsson, Páll Óskar, Bubbi, Aðalsteinn Ásberg, Eyjólfur Kristjáns, Ingi Gunnar, Stella, Þorvaldur Ingi, Diddi fiðla, Labbi, Helgi, Tryggvi Hubner, Pálmi Gunnars, Guðrún Gunnars, Hörður Torfa: ég er sennilega að gleyma einhverjum...  En ég treysti henni Andreu 100% til að gera frábæran þátt enda slá henni fáir við í þáttagerð um tónlist.

Að heyra sögur um mömmu er mér sem fágætur fjársjóður, hún lifir í gegnum þessar sögur og þegar ég heyri eitthvað nýtt er eins og ég fái aðeins lengri tíma með henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir að minna okkur á þessum þætti vil ég ekki missa af.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.4.2007 kl. 21:05

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Frábært að þátturinn verði sendur út 1. maí. Það er vel við hæfi. Bestu baráttukveðjur,

Hlynur Hallsson, 27.4.2007 kl. 21:28

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sæl Birgitta og takk fyrir bloggvináttuna . Mig langar að byrja á að senda þér og þínum innilegar samúðarkveðjur.

Mamma var einmitt að segja mér frá þessum þætti í morgun og segja mér frá við hverja hún ætlaði að tala. Ég veit að það er henni hjartans mál að gera þetta vel og hún leggur sig alla fram eins og hún gerir við allt sem hún tekur sér fyrir hendur.

Kær kveðja, Laufey Andreudóttir (með meiru)

Laufey Ólafsdóttir, 28.4.2007 kl. 03:43

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Halló Laufey bloggvinkona... þakka þér fyrir samúðarkveðjuna...

Lífið er svo skrítið og skemmtilegt og gaman hvernig þræðirnir tengjast...

Var að tala við mömmu þína í morgunn, þátturinn verður víst meira en þrír tímar... heldur áfram um kvöldið...

Þú stendur þig líka vel, með björtum kveðjum

Birgitta

Birgitta Jónsdóttir, 28.4.2007 kl. 16:07

5 identicon

Get ekki lýst því hvað ég bíð spennt eftir þessum þætti.  En getur þú ekki sett svona red alert á bloggið þitt þann 1. maí  svona fyrir okkur sem glímum við CRAFT-syndromið???? (Cant Remember A Fucking Thing", en fyrir þá sem ekki vita er það næsta stig á eftir Alshæmer light)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 16:44

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég skal gera það: þó reyndar ég eigi við hið sama að stríða ...

Birgitta Jónsdóttir, 29.4.2007 kl. 06:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband