Leita í fréttum mbl.is

Frábærar myndir af mömmu

Fékk í gær myndir sem teknar voru fyrir forsíðuviðtalið við mömmu í fyrra. Ljósmyndarinn Gunnar Þór Andrésson sem tók myndirnar var svo elskulegur að leyfa okkur systkininum að nota þær. Ég varð eiginlega hálf reið þegar ég sá hvað þetta voru flottar myndir af henni vegna þess að myndirnar sem valdar voru fyrir þetta viðtal voru vægast sagt hræðilegar og skammarlegt hvernig að þessu viðtali var staðið.

Ég skil ekki af hverju einhverjar af þessum myndum þar sem hún leit bara ósköp eðlilega út voru ekki notaðar. En ég nenni svo sem ekki að fara út í einhverja gremju núna en ég vona að innst inni skammist blessaður ritstjórinn sig fyrir hve hann brást trausti hennar.

En myndirnar eru frábærar og gott að eiga myndir af mömmu sem oftast myndaðist ekki alltof vel sem ná allri þessari orku og krafti sem í henni bjó. Ég setti myndirnar í myndaalbúm sem ber heiti hennar. Þessi er ein af mínum uppáhalds myndum af henni úr þessari syrpu... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Innilegar samúðarkveðjur elsku Birgitta mín vegna fráfalls móður þinnar, hún var frábær kona og mikil hetja.  Það er sárt að missa.   Mamma þín var falleg kona bæði innan og utan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er svo fátt sem hægt er að segja við svona aðstæður.  Sendi jákvæðar hugsanir til þín bloggvinkona

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 22:28

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég færi þér mínar innilegustu samúðarkveðjur Birgitta mín. Mikið var hún falleg sál hún móðir þín. Tónlist hennar á sér alltaf enduróm i hjarta mínu.  Með henni er hún eilíf meðal okkar.  Nú ætla ég að spila frændi þegar fiðlan þegir af spilaranum þínum.  Það er eitt af þeim lögum, sem ég hefði viljað heyra í minni eigin burtför.

Sé að þú ert orðin blaðakona. Það á vel við.  Ég ylgist alltaf með þér elsku vina og var einmitt að grobba mig af því að þekkja svona merka skáldkonu af viðkomunni á Núpi í den. Ég minnist á þann skrítna tíma í bloggi sem heitir "Frægð mín í míkrókosmos."  

Guð blessi þig elska og vonandi getum við fengið okkur bolla í borginni þegar ég losna hér úr klóm vetrarins á Sigló. 

Jón Steinar Ragnarsson, 18.3.2007 kl. 11:01

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Já mamma var einstök kona og hennar er sárt saknað. En hún er svo sem búin að láta vita af sér eftir að hún fór og auðvitað var það á frekar prakkaralegan máta. Ég hef heitið því að vinna ljóst og leynt að því að hennar tónlistararfleifð týnist ekki, stefnt að stórtónleikum á sextugsafmæli hennar á næsta ári.

Rosalega gaman að heyra frá þér Jón Steinar, hef líka fylgst með þér og það er gaman að lesa bloggið þitt, listilega vel skrifað. Ég á nú alltaf eintak af leikritinu þínu. Hittumst endilega og fáum okkur kaffi þegar þú kemur til byggða:)

Þakka þér Ásthildur fyrir fallega minningarræðu á þínu bloggi um mömmu. Það er gott að sjá hve hún lifir í hjörtum annarra....

og Jenný Anna 1000 þakkir fyrir allar hlýju kveðjurnar í gegnum þessa erfiðu viku..

Birgitta Jónsdóttir, 18.3.2007 kl. 18:46

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

...Mér finnst Bergþóra alltaf falleg, en á þessum myndum virkar hún mikið afslappaðri en í blaðinu!

Samúðarkveðja 

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.3.2007 kl. 21:42

6 Smámynd: Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir

Innilegar samúðarkveðjur elsku Birgitta mín.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, 18.3.2007 kl. 23:57

7 Smámynd: IGG

Sammála þér um myndirnar kæra frænka og mér líst MJÖG vel á hugmyndina þína um tónleika. Er með hugann hjá ykkur öllum. Ingibjörg G.G.

IGG , 19.3.2007 kl. 00:01

8 Smámynd: arnar valgeirsson

Votta þér mína samúð, Birgitta. Þú ert kraftmikil og falleg kona, með stórt hjarta, eins og hún móðir þín. Listamenn/konur. Gerið svo sannarlega veröldina skemmtilegri.

arnar valgeirsson, 20.3.2007 kl. 00:22

9 Smámynd: Ólafur fannberg

Bestu samúðarkveðjur

Ólafur fannberg, 20.3.2007 kl. 17:05

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Birgitta mín ég var einmitt að leita að blogginu þínu í morgun.  Ég vil endilega senda mömmu þinni innilegar kveðjur og þakklæti fyrir allt það góða sem við áttum saman og það góða sem hún veitti mér.  Elli minn biður lika að heilsa, þau voru líka góðir vinir.  Og ég sendi ykkur öllum innilegustu samúðarkveðjur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2007 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 509137

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.