Leita í fréttum mbl.is

Ég var einmitt svo hissa á þessu orðalagi í fréttum

Hafði stuttu áður verið að tala við VG í Hafnarfirði og þessi frétt og yfirlýsingarnar frá bæjarstjóra í engu samhengi við það sem ég hafði heyrt. Ég vona að hér sé um misskilning að ræða. Ég vona að fólk geti einbeitt sér að því sem skiptir máli og það er að uppfræða almenning í Hafnarfirði um kosti og ókosti við stækkun ábræðslunar í Straumsvík.

Auðvitað eru VG ekki á móti kosningum um svona málefni og auðvitað er allt í lagi að velta því fyrir sér hvort að það væri ekki lýðræðislegra að kjósa um svona mál á landsvísu með þjóðaratkvæðagreiðslu því svona mál varða þjóðina alla.

Ég sé fyrir mér að við ættum þegar VG fer í ríkisstjórn að setja upp atkvæðagreiðsluaðferð sem væri svipuð að sniði og rafræn skattaskil. Flestir Íslendingar skila nú inn skattaskýrslum sínum á rafrænan hátt með góðum árangri. Hægt væri að setja upp veflykil fyrir alla með kosningarétt þar sem þeir fengju kost á að kjósa rafrænt bæði á sínu svæði og í þjóðaratkvæðagreiðslum. Þetta myndi draga úr kostnaði við það að kjósa á landsvísu um málefni sem varða þjóðina alla og þá þarf maður ekki að bíða í mörg ár og í raun þurfa að kjósa til fjögurra ára heldur bara um málefni sem brenna á þjóðinni. Það væri lýðræði í raun.

Svo legg ég til og mæli með enn á ný að fólk hætti þessu pólistíska nöldri og baknagi og einbeiti sér að vinnunni sinni og reyni að vera svolítið jákvætt og uppbyggilegt. Burtséð hvaða flokk ég kýs að hverju sinni þá kýs ég ekki vegna þess að einhver sannfæri mig um að einhver sé ömurlegur eða vanhæfur. Ég reyni frekar að meta það sjálf út frá mínum forsendum og ég vona að sem flestir geri hið sama og segi nei við þessu pólistíska moldviðri sem á sér alltaf stað í kringum kosningar.
mbl.is VG: Engin þverpólitísk samstaða liggur fyrir í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta Birgitta. Við sem erum gegn stóriðjustefnunni eigum auðvitað að standa saman. Mér finnst svona málflutningur hjá bæjarstjóranum til skammar. Nú þegar tækifæri er að snúa við blaðinu, þá koma fram yfirlýsingar af þessu tagi. Ég bendi á grein á http://ogmundur.is um málið.

Gestur Svavarsson (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 509133

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband