11.1.2010 | 08:06
Skjal sem lekið var á wikileaks 30.12.09 - memo af Ecofin fundinum
Í þessu skjali sem skrifað var í nóvember 2008 kemur fram að íslendingar voru tilbúnir að falla frá dómstólaleiðinni vegna hótana og kúgunar frá vinaþjóðum okkar í EU. Hvet fólk til að lesa þetta alltsaman, textinn er bæði á íslensku og ensku. Vinsamlegast dreifið sem víðast því þó þetta skjal sé komið í almenna dreifingu er það ekki komið inn á island.is
WIKILEAKS Wed Dec 30 05:00:00 GMT 2009 (updated 9:24, with additional pages).
The following document is one of 23 withheld from the Icelandic public relating to the Icesave dispute. The Minister of Finance issued a gag order on the documents. Even the country's parliamentarians may only see them under strict supervision.
The Icelandic parliament is due to consider the Icesave bill at noon today. The bill would have Iceland pay nearly four years worth of its entire economy (GDP) to investors from the UK, the Netherlands, Germany and other countries who participated in the failed Landsbanki Icesave scheme.
The leaked memo, from Iceland's Ministry of Foreign Affairs, details a meeting held on November 12, 2008 in Brussels, in which the Icelandic delegation, quite naively, begged for mercy before seven EU Representatives (Germany, UK, Netherlands, Austria, Finland, Sweden and Denmark).
The document details how EU representatives attempted to force Iceland into taking on the debt burden coming out of the EEA Agreement.
The meeting was a follow up to the Ecofin meeting of November 4, 2008. The Ministry's author is not named, but similar documents have been written by Martin Eyjólfsson.
The original memo contains typographical and other errors. As a matter of historical accuracy, these have been retained.
Julian Assange, editor
julian@sunshinepress.org
Fundur 7 fastafulltrúa ESB með Íslandi vegna lagaálits í kjölfar Ecofin 4. nóv. 08
Stefán Haukur Jóhannesson, Martin Eyjólfsson, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir og Peter Dyrberg áttu fund sem franska formennskuríki ESB boðaði til í dag til að meta stöðuna eftir ECOFIN fundinn í síðustu viku. Fundurinn fór fram kl. 15 og viðstaddir voru, auk Frakka sem leiddu fundinn, lagasérsfræðingar í hópi sem omið var á til að gefa álit um túlkun á tilskipuninni, Jean Claude Piris, fulltrúar frá framkvæmdarstjóra ESB, fastafulltrúar Þjóðverja, Breta, Hollendinga, Austurríkismanna, Finna, Svía og Dana.
Peter Sellal, franski fastafulltrúinn hóf fundinn á því að lýsa því að ráðherrar höfðu samþykkt á Ecofinfundi sem haldinn hefði verið í síðustu viku að fá lagalega vissu fyrir túlkun á umræddri tilskipun "legal clarity". Ráðherrarnir hefðu samþykkt skipun 5 manna hóps til að gefa álit um stöðuna og voru skoðanir ESB nefndar í því samhengi. Fulltrúi EFTA hefði verið sá eini sem ekki tólk þátt. Síðan rakti Sellal það sem gerst hefði, að Árni hefði skrifað Lagerde bréf þar sem því var lýst að ekki væri hægt að fallast á þá málsmeðferð sem hefði verið samþykkt á fundi fjármálaráðherra. Því næst opnaði hann fyrir umræður.
Stefán Haukur þakkaði fyrir það tækifæri að hittast á þessum vettvangi og skiptast á skoðunum. Einnig þakkaði hann frönsku formennskunni fyrir það frumkvæði sem hún hefur tekið í málinu til að reyna að finna leið út úr þeim vanda sem uppi væri. Allir viti hvernig ástandið sé á Íslandi, og þær skuldbindingar sem um ræðir séu gífurlega miklar (60% GDP). Stefán gerði grein fyrir bréfi Árna Matthiesen, fjármálaráðherra, til Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, frá 7. nóvember sl. og tíundaði þær athugasemdir sem þar komu fram fyrir því að Ísland taldi sér ekki fært að taka þátt í því ferli sem ákveðið var á Ecofinfundinum.
Stefán gaf Martin orðið sem sagði í upphafi að það væri mikilvægt að viðstaddir gerðu sér grein fyrir því hvaða aðstaða væri upp komin á Ísland og hversu skjótt veður hafi skipast á lofti.
Fjármálakrísan hefði skollið á Ísland með þeim hætti að engin önnur þjóð hefði orðið verr úti. Fjármálageirinn hefði nánast hrunið til grunna á einni viku og ríkið hefði fengið 85% af fjármálageiranum í fangið. Til samanburðar, vísaði Martin í grein í Financial Times, sem Daniel Gros hagfræðingur skrifaði í lok september, og hann hafði komist þannig að orði að Barclays, hvers efnahagsreikningur er jafnstór þjóðarframleiðslu Breta, væri ekki aðeins of stór til þess að fara á hausinn heldur væri hann einnig of stór til þess að hægt væri að bjarga honum. Í greininni segir Gros að það eina sem Bretar, sem hafa ekki aðgang að Seðlabanka Evrópu, geti gert í tilviki Barclays er að biðja til Guðs að hann fari ekki á hausinn. Sé þetta sett í samhengi við Ísland þá hafi 10 Barclays bankar siglt í strand á einni viku! Fyrir utan þetta sé fjöldi innlánareikninga í útibúum íslenskra banka erlendis mun fleiri en Íslendingar. ME gerði ennfremur grein fyrir fyrirsjáanlegum breytingum á öðrum hagstærðum, s.s. áhrif á þjóðarframleiðslu, skuldastöðu ríkisins, fjárlög og margföldun atvinnuleysis. Þá var gerð grein fyrir áhrif gengislækkunar á skuldsetningu heimila og fyrirtækja, m.a. sjávarútvegs, og einnig gerð grein fyrir mikill lækkun á heimsmarkaðsverði á áli, sem væri burðarás íslensks atvinnulífs auk sjávarútvegs og fjármálageira sem nú væri hruninn, á síðustu misserum. Það væri mjög mikilvægt að aðildarríki ESB gerðu sér grein fyrir þeirri stöðu sem Ísland væri nú í.
Því næst lýsti Martin almennum aðstæðum í íslensku samfélagi. Mikil reiði væri meðal almennings, margir hefðu tapað ævisparnaði sínum, fólk væri að missa atvinnu og gríðarmiklir efnahagsörðugleikar framundan. Þá teldi fólk gróflega á sér brotið og ætti bágt með að skilja að því að örfáir einstaklingar í einkafyrirtækjum gætu steypt næstu kynslóðum í Icesaveskuldir. Reiði almennings beindist líka að yfirvöldum og sl. helgi hefðu átt sér stað fjölmennustu mótmæli síðan Ísland gekk í Nato um miðja síðustu öld, eggjum og tómötum hefði verið kastað á Alþingishúsið og einn mótmælanda hefði náð að klifra upp á þak Alþingishússins og náð að draga fána (ekki þann íslenska þó!) að húni. Reiðin beindist líka að Bretum sem hafa beitt ,,anti terrorist'' löggjöfinni með hrikalegum afleiðingum fyrir orðspor Íslands og íslensk fyrirtæki um allan heim. Almenningur teldi það gróft ofbeldi gegn þjóðinni og skildi ekki slíkar aðgerðir frá vinaþjóð. Íslensk stjórnvöld hefðu mótmælt því harðlega og rétt væri að halda því vel til haga á þessum fundi einnig.
Sellal sagði alla vita vel við hvaða vanda við ættum að etja. Verkefnið væri að reyna að finna lausn á þessu og það væri markmið fundarins að reyna að varða leið út úr þeim vandamálum sem uppi væru. ESB væri reiðubunið til að veita aðstoð. Aðdragandi málsins væri sá að allir á Ecofin fundinum hefðu verið hissa á þeirri lagalegu óvissu sem við hefðum talið málið vera í. Skýra þyrfti hina lagalegu stöðu málsins og því hefði verið valin sú leið sem farin var. Spurninginn sem hópurinn fékkst við hafi verið mjög skýr en núverandi ástand skapaði force majeur. Þeirri spurningu hefði verið beint til hópsins hvort hægt væri að vekja force majeur en hópurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að komast undan skyldum tilskipunarinnar undir slíkum kringumstæðum. Álitið væri skýrt og öll 27 aðildarríki ESB væru ósammála túlkun Íslands.
Mandelson, fulltrúi framkvæmdarstjórnarinnar í lagahópnum sagði að um hefði verið að ræða málsmeðferð sem stæði fyrir utan EESsamninginn. Þess vegna hefði spurningin sem hópurinn fékk til úrlausnar þurft að vera skýr og afmörkuð sem hún hafi verið. Svara hefði þurft tveimur spurningum. Sú fyrsta hefði verið hvort það að hafa tryggingakerfi sem gat ekki staðið skil á lágmarksinnistæðuvernd væri brot á EESsamningnum. Í annan stað að 24. mgr. aðfararorðanna hafi ekki haft það hlutverk að leysa ríki undan skyldum sínum. Túlkun þessara málsgreinar sé mikilvægust í lagaálitinu. Ekki sé rétt að túlka tilskipunina þannig að ríki beri ekki ábyrgð samkvæmt henni.
Martin byrjaði á því að greina frá því að ein grundvallarforsenda fyrir blómlegri þátttöku minni ríkja í alþjóðakerfinu byggðist á virðingu fyrir alþjóðalögum. Þegar deilur kæmu upp væri mikilvægt að þau væru ekki svipt rétti til réttlátrar og sanngjarnrar málsmeðferðar. Spurningin sem uppi væri snérist um stærstu skuldbindingu sem Ísland hefði nokkurn tímann staðið frammi fyrir og því legði ríkisstjórnin höfuðáherslu að á ekki léki minnsti vafi á lagaskyldunni. Sá lögfræðiprófessor á Íslandi sem hefði hvað mest kennivald á sviði Evrópuréttar og fv. ad hoc dómari við EFTAdómstólinn hefði skilað áliti um að greiðsluskylda Íslands væri afar takmörkuð undir núverandi kringumstæðum. Margir hefðu tekið undir það og því væri mikilvægt að fá úr þessu skorið. Þá ítrekaði MArtin skýringar Stefáns Hauks frá því í upphafi fundar að sá farvegur sem málið hefði farið í eftir Ecofinfundinn hefði ekki verið í samræmi við skilning fjármálaráðherra Íslands á því sem þar var ákveðið. Martin gerði því næst grein fyrir þeim lagaágreiningi sem uppi væri og týndi þau lagarök til sem uppi hafa verið á fyrri fundum [bæði með Bretum og Hollendum og eins með fastafulltrúum Danmerkur og Svía í gær o.fl., og komið hafa fram í erindi til ESA](sjóðurinn var settur upp og engar athugasemdir við innleiðingu, fjármálageiri eigi sjálfur að bera kostnað af tryggingarkerfi ekki skattgreiðendur, sérstakar aðstæður á Íslandi ,,force major'' leiða til þess að tilskipunin eigi ekki við og aðgerðir miðist að því að viðhalda gangandi bankakerfi á Íslandi það sé grunnskylda hvers ríkis í markaðshagkerfi og slíkt réttlæti aðgerðir okkar). Mestum tíma var eitt í að skýra síðastnefndu röksemdina og hana þyrfti að hafa í huga þegar aðgerðir ríkisstjórnar Íslands væru settar á mælistiku EESsamningsins.
Sellal lagði áherslu á að ekki væri hægt að komast með málið lengra nema að ekki leiki minnsti vafi á lagaskyldunni til greiðslu lágmarksverndarinnar. Fyrr væri ekki hægt að ræða málið á pólitískum forsendum. Hægt væri að byggja viðræðurnar á áliti lagasérfræðinganna. Ef að aðilar geti komið saman um það þá sé hægt að ná niðurstöðu fljótt og vel, og ESB og aðildarríkin muni koma hratt til aðstoðar til þess að loka ,,fjárhagspakkanum'' á vettvangi IMF. Nefndi hann bréf Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, og Macro Financial Assistance líka í þessu sambandi.
Hollenski fastafulltrúinn sagðist taka heilshugar undir það sem franski fastafulltrúinn hefði sagt. Staðan núna væri óásættanleg. Nú ríki misskilningur varðandi málsmeðferðina sem sé óásættanlegt. Íslenski fjármálaráðherrann hefði sagt að hann myndi fara eftir lagaálitinu en vildi að það yrði hlutlaust (arbitrage) og hópurinn hefði verið kallaður til að hans frumkvæði. Fullt samkomulag hefði ríkt um að ákvörðun meirihluta hópsins yrði bindandi fyrir málsaðila. Trúverðuleiki Íslands hefði beðið hnekki. Hollendingar lýstu þó einnig yfir vilja til að aðstoða okkur og finna bindandi lausn fyrir alla á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga okkar, en þær þyrfti að virða og ekki mætti leika nokkur vafi á því.
Þýski fastafulltrúinn sagði þá þurfa að vita hvort Ísland ætlaði að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Það hafi verið stór mistöðk að fulltrúi Íslands, EFTAfulltrúinn, hefði dregið sig út úr starfinu. Þar hefði gefist gott tækifæri til að koma sjónarmiðum á framfæri. Nú sé staðan sú að í raun sé málið í meiri hnút og nú liggi á að finna lausn. Ástandið sé óásættanlegt.
Bretland sagði að þessi málsmeðferð væri bindandi. Álitið væri góð lagaleg greining. Ekki hefði verið hægt að gera það betur. Þá sagði Bretinn að ef aðilar hefðu komist að niðurstöðu um beita jafnri meðferð (nondiscrimination) þá hefði verið hægt að leysa þann hnút sem IMF lánið væri komið í. EIna sem þurfi til sé sameiginlegur skilningur svo hægt sé að þoka málum áfram.
Svíar sögðust tilbúnir til að styðja okkur verulega fjárhagslega. Það væri hins vegar bundið farsælli lausn á því vandmáli sem uppi væri í samskiptum Íslands og sumra aðildarríkja ESB. Þeir tækju undir athugasemdir fyrri ræðumanna. Við þyrftum hins vegar að komast yfir þetta og hvöttu okkur til að leysa ágreininginn hið fyrsta. Álitið væri gott.
Danir sögðu Norðurlöndin vera sameiginlega að reyna að finna lausn á þessum IMF pakka. IMFlánið sé hins vegar háð því að við virðum alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Formennskuríkið sé núna í hlutverki "honest broker". Fari málið dómstólaleiðina taki það langan tíma. Málið snúist um að virða grundvallarreglur um lagalegar skyldur. Ef við samþykktum þær væri hægt að finna skjóta lausn á málinu.
Finnar tóku til máls og sögðust hafa mikla samúð með Íslendingum.
Martin ítrekaði stuttlega röksemdir Íslands fyrir því að fallast ekki á þá lagalegu meðferð sem málið var sett í eftir Ecofin fundinn. Hún samræmist ekki þeim lágmarkskröfum um málsmeðferð sem Árni Mathiesen, íslenski fjármálaráðherrann, hefði talið sig hafa samþykkt á fundinum.
Austurríki sagði að þeir vildu ekki draga þennan tíma lagalegrar óvissu á langinn. Það fyrirkomulag sem hefði verið samþykkt í síðustu viku hefði verið til að hjálpa Íslandi. IMF gangi ekki upp nema búið sé að eyða þeirri óvissu.
Danski fastafulltrúinn sagði að skilaboðin til ríkisstjórnarinnar væru þau að um væri að ræða hóp sem væru vinir Íslands meðal EESríkjanna en ekki ESB. Spurningin snérist um framkvæmd á EESsamningnum.
Holland sagði að ef hægt væri að samþykkja lagalegar skyldur samkvæmt álitinu væri hægt að ræða framkvæmdina. Engar upphæðir verði ræddar í því sambandi, frá því hafi verið gengið í MoU.
Sellal dró saman niðurstöðu fundarins í eftirfarandi (sjá einnig fyrri tölvupóst):
*Our evaluation*
*
"EU Commission and the member states concerned accept to discuss the modalities of the financial scheme to assist Iceland through the EU, the IMF and bilaterally."
This will open up a political approach to the issue by the EU side. That entails i.a. the length of an Icesave loan and interest rates. Amounts will difficult to negotiate but not entirely excluded. This seems to indicate that the negotiations will be on a multilateral track as the EU Commission and the Council Services will be involved.
If the EFTA Court will come to a different conclusion on the legal obligation then that will be binding according to the EEA Agreement.
The positive points:
a)Dispute brought onto a multilateral track under the guidance of EU.
b)Unblocks the IMF funding.
c)Nordics will support.
d)Opening up of financial scheme to help Iceland through the EU, the IFM and
bilaterally.
e)Opening for settlement with the UK and Netherlands in a wider context.
f)Helps to restore confidence in Iceland as a reliable partner.
g)EEA procedures mentioned
Negative points:
a)Iceland accepts the legal obligation in the Directive enshrined in the legal opinion
and that is not negotiable.
b)Reference to EEA procedures vague.c)Hard to see how the EFTA Court should be called to rule on the matter. If it would hard to see how the Icelandic Government can on the one hand accept the legal obligation and on the other challenge it.d)Scope for negotiations in Icesave context (UK, NL) unclear.
Next steps:
The member states will respond the French Presidency tomorrow morning (Wednesday 12. Nov.)
They will seek acceptance/rejection from Iceland tomorrow (12. November). We will inform them on the latest proposal of the deputy DG of the IMF after his conversation with GHH yesterday and say we can not react until reactions from the UK and Netherlands have been sought.It is important to obtain response from the Government swiftly after the Douche and UK reactions to the IMF proposal . There seems to be momentum to act swiftly on the EU side to unblock the IMF arrangement on implement further financial support (esp. Macro Financial Assistance).
Björn Valur: Umræðan á villigötum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
- ADHD
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Alexandra Briem
- Andrés Magnússon
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ari Sigurðsson
- Baldvin Björgvinsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Bara Steini
- Bergur Sigurðsson
- Bergur Thorberg
- Bergur Þór Ingólfsson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Binnan
- Birgir Þórarinsson
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjargandi Íslandi
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- SVB
- Brjánn Guðjónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Daníel Haukur
- Dorje
- Dísa Dóra
- Egill Bjarnason
- Egill Jóhannsson
- Einar Guðjónsson
- Einar Indriðason
- Einar Vignir Einarsson
- Einar Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eldur Ísidór
- Elyas
- Elín Sigurðardóttir
- Elísabet Markúsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- Eva Benjamínsdóttir
- Eydís Hentze Pétursdóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- FLÓTTAMAÐURINN
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fríða Eyland
- Félag Anti-Rasista
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerður Pálma
- Gestur Guðjónsson
- Goggi
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Pétursson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Bergmann
- Guðjón Heiðar Valgarðsson
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Guðmundur Ragnar Guðmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðný Lára
- Guðrún S Sigurðardóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Hjálmar
- Haffi
- Halldór Sigurðsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haukur Már Helgason
- Heidi Strand
- Heilsa 107
- Heiða Þórðar
- Helga Auðunsdóttir
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlédís
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Hrólfur Guðmundsson
- Hulla Dan
- Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
- Hörður B Hjartarson
- Húmoristaflokkurinn
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingibjörg Helga
- Ingibjörg SoS
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Isis
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Jakob Þór Haraldsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jens Guð
- Johann Trast Palmason
- Jóhannes Ragnarsson
- Jón Bjarnason
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- DÓNAS
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ketill Sigurjónsson
- Ketilás
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristbergur O Pétursson
- Kristján B. Jónasson
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Snorradóttir
- Krummi
- Kári Harðarson
- Landvernd
- Laufey Ólafsdóttir
- Lovísa
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lýður Árnason
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Lóa Jónsdóttir
- Margrét Sigurðardóttir
- Markús frá Djúpalæk
- María Kristjánsdóttir
- María Pétursdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Morgunblaðið
- Myndlistarfélagið
- Mál 214
- Máni Ragnar Svansson
- Neo
- Oddi
- Paul Nikolov
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Pálmi Gunnarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rannveig H
- Ransu
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samstaða - bandalag grasrótarhópa
- SeeingRed
- Sema Erla Serdar
- Sigga
- Signý
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurgeir Þór Hreggviðsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Sigurður Hrellir
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Skuldlaus
- Snorri Sturluson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stríða
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinn Hjörtur
- Sveinn Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Swami Karunananda
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sævar Einarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- TARA
- Tilkynning
- Tinna Jónsdóttir
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Tína
- TómasHa
- Valgeir Skagfjörð
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vilborg Eggertsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Vinir Tíbets
- Viðar Eggertsson
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vér Morðingjar
- Vésteinn Valgarðsson
- arnar valgeirsson
- fingurbjorg
- hreinsamviska
- leyla
- molta
- oktober
- Einhver Ágúst
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Ár & síð
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásgerður
- Ásta Hafberg S.
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólöf de Bont
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
- Þröstur Unnar
- Þór Jóhannesson
- Þór Saari
- Þórhildur og Kristín
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Andrés.si
- Anna Karlsdóttir
- Anna Margrét Bjarnadóttir
- Ari Jósepsson
- Aron Ingi Ólason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Barði Bárðarson
- Bergþór Gunnlaugsson
- Billi bilaði
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Kristjánsson
- Bogi Jónsson
- brahim
- Daði Ingólfsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Dóra litla
- Dúa
- Einar Björn Bjarnason
- Elsabet Sigurðardóttir
- Esther Anna Jóhannsdóttir
- Frosti Sigurjónsson
- Grétar Eiríksson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Héðinn Björnsson
- Hreyfingin
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Pétur
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Jónas Bjarnason
- Jón Kristófer Arnarson
- Jón Lárusson
- Karl Gauti Hjaltason
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Lúðvík Lúðvíksson
- Madhav Davíð Goyal
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Morten Lange
- Óðinn Kári Karlsson
- Ólafur Eiríksson
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Rannsóknarskýrslan
- Rúnar Freyr Þorsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Vaktin
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Athugasemdir
Ég túlka þetta skjal á annan hátt en þú.
Ég túlka þetta þannig að fimm manna hópur lögfræðisérfræðinga hafi komist að þeirri niðurstöðu að Ísland væri lagalega skuldbundið til að borga (og skv. því sem hollenski fastafulltrúinn segir var þessi hópur skipaður að frumkvæði íslenska fjármálaráðherrans, og málsaðilar voru sammála fyrirfram um að álit meirihluta hópsins yrði bindandi), og að öll 27 aðildaríki ESB hafi verið ósammála túlkun okkar.
Jú, það má svo sem halda því fram að um viljandi kúgun (og þá í leiðinni blekkingar) hafi verið að ræða, en önnur túlkun er að staða okkar sé bara ekki sterkari en svo.
Hvað sem öðru líður held ég að þetta ásamt öðru sýni að það fólk sem hefur verið í því að semja fyrir okkar hönd hafi reynt til hins ítrasta að halda hagsmunum Íslands á lofti - enda hefur þetta nú tekið meira en ár í heildina!
Öll þau gildu rök sem netkverúlantar hafa verið að týna til held ég að hafi verið sett fram gagnvart þeim sem við eigum við að etja, og meira til.
Staðan núna held ég að sé sú að annað hvort föllumst við á að borga, eða hreinlega hættum samningum og neitum að borga, og sjáum þá hvað setur. Ég held að eins langt hafi verið farið og hægt var í samningum, og þykir miður hversu algengt er í umræðunni að haldið sé fram að þeir sem að samningaborði hafi setið fyrir okkar hönd hafi viljandi gefið eitthað eftir.
Reyndar er enn opin spurning hvað mun gerast í þjóðaratkvæðagreiðslunni, og hvað tekur við ef lögin verða felld þar (má vera að það hafi praktískt séð sömu áhrif og að neita að borga) - en mikið óttast maður nú að þessi leið sem forsetinn hefur ákveðið að feta gæti reynst dýrkeypt þegar upp verður staðið. En, þetta er víst það sem fólk vill.
Svo er nú líka gaman að sjá hversu margir úti fyrir upp hanskann fyrir Ísland allt í einu, en því miður held ég að þessi barátta vinnist aldrei á einhverju PR-i eingöngu.
Þarfagreinir, 11.1.2010 kl. 12:05
Annars sýnist mér eiginlega fátt nýtt koma fram í skjalinu.
Hér er t.d. sjónarhorn umrædds þáverandi fjármálaráðherra á atburðarásina: http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/arni-mathiesen-vid-vorum-sviknir-um-gerdadom-i-icesave-malinu
Þarfagreinir, 11.1.2010 kl. 12:19
Ég setti þetta á facebook síðuna mína..Ætli sé nú ekki búið að halda ýmsu fleiru leyndu fyrir okkur sauðsvarta almúganum....
Agný, 11.1.2010 kl. 17:05
Þarfagreinir: Gerðardómurinn var ekki skipaður lögfræðingum eingöngu og var falið að skoða málið á "víðtækari forsendum" en lagalegum, þ.e.a.s þeim forsendum sem þyrfti til þess að komast að þeirri niðurstöðu að Íslandi bæri að borga og að evrópska tryggingakerfið væri traust.
Munum að þetta gerist á hápunkti alþjóðlegu bankakrísunnar.
Núna hefur ansi margt breyst, bankakrísan er búin (þótt kreppan sitji eftir) og evrópska innistæðutryggingakerfið hefur verið endurskoðað að vissu marki.
Forsendurnar eru allt aðrar.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 17:23
Sæl Birgitta.
Er þetta leyniskjalið sem þið tölduð vera sönnun á því að við ættum ekki að sækja um ESB aðild ?
Lilja Skaftadóttir, 12.1.2010 kl. 00:18
Sæl þetta vekur bara enn fleiri spurningar, en jafnframt staðfestu um að ekkert beri að gera fyrr en hrunaskýrslan er komin út.
" They will seek acceptance/rejection from Iceland tomorrow (12. November)."
Hvernig fór það? Samþykktu stjórnvöld virkilega þetta bull? Og afsöluðu sér þar með lagalegum rétti til að taka málið upp innan ESB? En geta sótt það innan EFTA? Er það ekki rétt skilið hjá mér?
Þetta sannar allavega að IMF lán voru algjörlega undir þetta ESB pakk komin.
Það væri fróðlegt að vita hvort Eva Joly og Alain Lipietz hefðu séð þetta. Mér virðist þetta vera kúgun og ekkert annað og afneitun ESB á meingallaðri reglugerð.
Arnór Valdimarsson, 12.1.2010 kl. 01:33
þetta er eitt af þeim skjölum sem sýndu fram ótvítræð tengsl á milli esb og icesave og þá kúgun sem við vorum beitt til að samþykkja að falla frá þeim sjálfsagða rétti að fara dómsstólaleiðina
Birgitta Jónsdóttir, 12.1.2010 kl. 07:09
Sjá frábæra grein frá Birgittu á vef Webter Tarpley.
A Call to the People of the World to Support Iceland Against the Financial Blackmail of the British and Dutch Governments and the IMF
Birgitta Jónsdóttir
www.tarpley.net
January 6, 2010
Ung, hugrökk, baráttuhetja með barnsandlit.
Björk stjórnmálanna á Íslandi.
Baráttukveðja!
Guðbjörg.
Guðbjörg Hrafnsdóttir, 13.1.2010 kl. 11:27
Birgitta. Hvar stendur nákvæmlega, að Íslendingar hafi fallið frá dómstólaleiðinni gegn einhverju öðru? - "The leaked memo, from Iceland's Ministry of Foreign Affairs, details a meeting held on November 12, 2008 in Brussels, in which the Icelandic delegation, quite naively, “begged for mercy” before seven EU Representatives (Germany, UK, Netherlands, Austria, Finland, Sweden and Denmark)." - -
Hefur þú séð þetta, sem að ofan er skrifað, á annan rekjanlegan hátt. Að Íslendingar hafi beðið um miskunn! - Alveg skelfilegt.
Ég reyndi að komast inn á Wikileaks og það gekk ekki af einhverjum ástæðum.
Jónas Bjarnason, 13.1.2010 kl. 14:15
Maðurinn sem Ísland þarf á að halda - fundinn. Alþjóðlegur sérfræðingur í skuldaskilum ríkja, tjáir sig um vanda Íslands, og er harðorður!
Ég er að tala um frábæra grein, Prófessors Sweder van Wijnbergen, við háskólann við Amsterdam, í NRC Handelsblad. Sá maður er einmitt, sérfræðingur í skuldaskilum ríkja. "Sweder van Wijnbergen - worked for 13 years at the World Bank, and was lead economist for Mexico and Central America during the negotiations on Mexican debt."
Svo þessi maður, veit allt sem vita þarf, um afleiðingar skuldakreppu! Hann þekkir þessi mál út og inn, fyrst hann var starfandi hjá Heimsbankanum, einmitt á þeim árum, er mörg lönd í 3. heiminum, gengu í gegnum fræga skuldakreppu
Sjá grein: Iceland needs international debt management
Þetta er að mínum dómi, merkilegasti einstaklingurinn sem tjáð sig hefur opinberlega um málið, og fullyrðing hans "A debt of three or four times GDP cannot be repaid, and therefore will not be repaid" - skal skoðast sem hreinn sannleikur máls, fyrst það kemur frá honum.
Prófill Sweder van Wijnbergen
Fáum þennann mann til landsins!!!
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 14.1.2010 kl. 12:14
Spurning hvort ekki sé rétt að senda forsætisráðuneytum norðurlandanna þessa grein Wijnbergers ásamt fleiri álitum í þessa veru. Hér er meira að segja Hollendingur á ferð sem í ofanálag hefur starfað hjá World bank. Eitthvað hefur hann fyrir sér.
Steingrími hefur algerlega láðst að undirstrika lagalegu óvissuna og tala máli okkar á flandri sínu. Það er himinhrópandi klárt eftir að maður les viðbrögð Sænskra, Danskra Finnskra og Norskra yfirvalda um málið. Þeir virðast tala einum rómi eins og málsvarar banksterana.
Getur þú ekki komið því í kring Birgitta að þessi gögn verði send þessum þjóðum og helst fjölmiðlum í löndunum? Ég tel nokkuð víst að ríkistjórnir þessara landa viti þessa hluti, en liggi sjálfar undir einhverskonar þvingunum eða þá að ráðamenn séu svo spilltir að þetta kemst ekki á framfæri. Ef svo Steingrímur og Jóhanna tala gegn þessum rökum, þá er ekki von á öðru en að staðan sé svona.
Hvernig getum við hjálpað?
Jón Steinar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 23:32
Það væri kannski ráð að spjalla við Sigurð Líndal og biðja hann um að gera samantekt og senda þeim, eða þá einhverja hugumstóra lögmannsstofu eða PR stofu, sem til er að leggja á sig sjálfboðavinnu fyrir landið sitt.
Jón Steinar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 23:37
Ef einhver vill hafa samband við hann, þá eru þetta "contact detail":
http://www.english.uva.nl/about_the_uva/employee.cfm?obj=&start=1&uvabecode=&uvawpcode=&zoekterm=+Sweder+van+Wijnbergen&zoek_medewerkers_pijltje.x=0&zoek_medewerkers_pijltje.y=0
dhr. prof. dr. S.J.G. van Wijnbergen Ph.D.
Faculty of Economics and Business – Department Economics
Postal address
1018 WB Amsterdam
Telephone
0205254252
E-mail
Einar Björn Bjarnason, 14.1.2010 kl. 23:49
Ég hef svo velt því fyrir mér hvað verður ef Bretar og Hollendingar neita ða koma að samningaborðinu aftur. (ég vona raunar að þeir geri það ekki af því að allar forsendur fyrri samninga eru brostnar)
Hvað þá. Bíðum við eftir að þeir sýni hvað hæft er í hótunum þeirra? Er það ekki upplagt. Kemurþá ekki í ljós hvers eðlis er hjá þessu liði og IMF? Mun lögleysan ekki verða öllum lýðum ljós? Þvingar það þá málið ekki fyrir dómstóla á nýjum forsendum? Þ.e. ef þeir fara út í aðgerðir gegn okkur, sem við teljum ólöglegar, þávísum við því til dómstóla og þannig er ófrávíkjalegt að fjallað verði um orsökina að þvvingununum, IceSave sjálft. Þannig getum við knúið fram dómsúrskurð með smá krók.
Ef enginn samningur er fyrir hendi og við höfnum ábyrgð hreint út, þá verða þeir að sama skapi að sækja málið sjálfir og þá er dómstólaleiðin óhjákvæmileg.
Hér er enginn grundvöllur til samninga á meðan lagaleg óvissa ríkir. Það á að vera okkar svar. "Við erum hættir að tala við ykkur, nema að þið fallist á réttarfarslega leið . Um þetta verður ekki samið undir leynd í reykfylltum herbergjum með byssuna á gagnauganu. Punktur."
"Hvað ætlið þið að gera þá? Frysta eignir? Setja á viðskiptabann? (glóbalt væntanlega) Boycott? Ok. Gerið það. Þá erum við loksins með flöt til að stefna ykkur fyrir rétt."
Jón Steinar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 23:50
Í þessum díalog þarf að halda áfram að spyrja spurningarinnar "Og hvað svo?" þar til menn hafa skoðað málið til enda.
Jón Steinar Ragnarsson, 14.1.2010 kl. 23:51
Ekki gott að segja - en, viss er ég að skuldirnar sem þegar eru til staðar, eru óborganlegar.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 15.1.2010 kl. 00:54
Það bætast varnir okkur til handa á hverjum degi og nú enn og aftur hjá financial times, þar sem pistlahöfundurinn Martin Wolf hundskappar Breta og Hollendinga fyrir kúgun og óréttlæti og leggur til að þeir afskrifi þessi mál. Er það bara umheimurinn og borgarar þessa lands sem sjá þetta svona? Eru bara tvær manneskjur hér sem hafa rétt fyrir sér og allir hinir fífl?
Það er á öllu að skilja.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.1.2010 kl. 01:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.