Leita í fréttum mbl.is

Tsunami:

Allur ţessi fjöldi andvana mađur verđur eitthvađ svo magnvana

Ég man ţegar allt ţetta fólk lést út af risaflóđbylgjunni viđ strendur Indónesíu - hvađ mér leiđ eins og ég gćti ekkert gert. Ákvađ samt ađ semja ljóđastúf og skellti á netiđ. Ljóđiđ náđi ađ skola á land sem ofur lítill vonargneisti á strönd Indónesíu og prýddi boli í smáţorpi sem fólk búsett ţar seldi til ađ afla fjár til uppbyggingar. Ţó ađ manni líđi sem ţađ sé nánast ekkert sem mađur geti gert, ţá er alltaf betra ađ gera eitthvađ en ekki neitt. Ein lítil bćn, smá fjármunir, kerti, hugleiđsla, allt telur ţetta...

Lćt fylgja međ ţetta ljóđ og í tónhlöđunni má heyra mig lesa ţađ í hljóđheimi Jóns Tryggva vinar míns. 

Ţögult hafiđ

skyndilegur veggur eyđileggingar

Sofandi í mjúkum sandi

                             fjöldagröf

Ţúsundir sálna

skerandi hvítt ljós

vefur sig milli heima

 

Sársaukabrot skerst

                        djúpt

           inn í hjartađ

Vaxandi fjöldi

             lífvana

Tómar skeljar

Stćrri en lífiđ sjálft

              eru hlutföllin

 

Allt sem ég hef ađ gefa er von

á ţessum myrkustu tímum


 

 


mbl.is Yfir 34 ţúsund látnir á Búrma
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 13. maí 2008

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bćkur

Bćkurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lćrdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lćrdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Ţýddi ţessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ćvaforn indjánaspeki sem hefur fariđ sigurför um heiminn. Bókin er byggđ á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er ađ finna í helgum dulspekihefđum víđsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnađar lífsreglur sem vísa leiđina ađ frelsi og sjálfstćđi einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ćtt grćđara og seiđmanna sem hafa iđkađ Toltekafrćđin frá aldaöđli. Hann er heimsţekktur fyrir bćkur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er ţroskasaga stúlku sem hefur ţurft ađ berjast viđ ađ sogast ekki inn í geđveiki ćttmenna sinna, en sjálfsvíg ţeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verđur til ţess ađ hún gerir sér ljóst hve dýrmćtt lífiđ er. Međ ţví ađ ţvinga sig til ađ muna fortíđina skapar hún möguleika á ađ eiga sér einhverja framtíđ. Alkóhólismi móđur hennar vegur jafnframt ţungt í ţessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeđvitund söguhetjunnar sem á endanum öđlast ţroska til ađ sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu ţess sem er haldin honum og skilur ađra fjölskyldumeđlimi eftir međ ţví sem nćst ósýnilegan geđrćnan sjúkdóm sem jafnan er kenndur viđ međvirkni. En ţetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ćvintýrum og einlćgni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til ađ brúa biliđ á milli ţess myndrćna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formiđ bíđur upp á vćgđarlausan heiđarleika og gefur lesandanum tćkifćri á ađ nota sitt eigiđ hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband