Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú bara fyndið...

...og grátlegt í senn. Svona pukurháttur samt dæmigerður fyrir hérlend yfirvöld. Allt gert til að friðþægja kínversk yfirvöld. Við hefðum kannski sést með tíbetskan fána við jarðar flugvallarins...  ekki mikið annað í stöðunni. Sennilega hefðum við ekki gert neitt... enda ekki verið að hlaupa um með þetta hér. Annars þá vona ég að þessu kyndill fari ekki um Tíbet, eins og hin tíbetska þjóð hefur óskað eftir. En þekkjandi yfirboðara Kína, þá munu þeir fara um með kyndilinn Tíbet til að sýna hver ræður.

Var annars að lesa eins konar ekki fréttir frá Kína um Tíbet - ótrúlegt hve mikið þeir ljúga að þjóð sinni og vesalings fólkið hefur ekkert frelsi til að ná sér í fréttir annars staðar. Ekki skringilegt að heimsmynd þeirra sé nokkuð brengluð.


mbl.is Ólympíukyndillinn kominn til San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var á þessum fyrirlestri og

hann var um margt líkur kvikmyndinni hans sem ég hef séð í tvígang, en ástandið er orðið miklu mun verra en þegar myndin var gerð. Það er engum blöðum um það að fletta að við verðum að gera eitthvað NÚNA. Mér fannst alveg furðulegt að aðeins var tími fyrir 2 spurningar úr sal og því náðist ekki að spyrja kappann um málefni sem snéru beinlínis að Íslandi og það var jafnframt sláandi að hlusta á lofrulluna um landið okkar sem er svo langt í frá að standa undir þeirri ímynd sem honum hafði verið gefin.

Mér leikur líka forvitni á að vita af hverju var boðið upp á kaffi í óendurvinnanlegum pappaglösum og hvað verður um allar þær plastflöskur sem fólk var duglegt að kasta frá sér í ruslið. Ef við ætlum okkur að breyta einhverju varðandi umhverfismál. Þá verðum við að byrja hjá okkur sjálfum. Skoða hvernig við umgöngumst úrgang, bíla, hvernig neytendur erum við og allt þetta sem eru glæðurnar sem kynda undir þennan jarðvarma. Við erum náttúruafl sem hefur farið um með eyðileggingu. Al Gore talar um að við höfum hugsanleg tíu ár áður en það verður um seinan að snúa við blaðinu, ef við gerum eitthvað NÚNA.

Hvet þá sem ekki komust á fyrirlesturinn að fara og ná sér í myndina hans An inconvenient truth - hún vakti mig svo um munaði.  


mbl.is Öfgarnar aukast segir Al Gore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. apríl 2008

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.