31.3.2008 | 20:04
Mómælaskýrsla og bréfið góða
Ekki komu margir í dag, en það er ekki höfuðmálið... við vorum samkvæmt talningu Kristians vinar míns nákvæmlega 35. En við náðum að vekja smá athygli á þessu og síðast en ekki síst rakst ég á nokkra mæta menn og konur fyrir utan þinghúsið sem ég veit að munu svara bréfinu góða. Steingrímur J. fræddi mig á að loks verður fjallað um ástandið í Tíbet í Utanríkisnefnd á miðvikudaginn en VG kallaði eftir fundi þar stuttu eftir að páskafríið langa hófst, vonandi verða einhverjar af okkar tillögum að umræðuefni. Ég hvatti líka ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkana til aðgerða með á þverpólitískan hátt, vona að því verði.
Ég vil enn og aftur hvetja fólk til að tjá sig um Tíbet í fjölmiðlum, maður þarf ekkert að vera einhver ofurpenni eða vita allt um Tíbet til að tjá sig um hvað manni finnst. En auðvitað er það tilvalið tækifæri og ætti að vera hvatning til að viða að sér meiri upplýsingum. Það var með sanni góðmennt á fundinum og enn og aftur var þarna fólk sem kannski aldrei hefur farið í mótmælastöður... en fannst það þurfa að gera eitthvað. Að mótmæla ætti ekki að vera eitthvað neikvætt... maður er að koma með mótvægisaðgerðir:)
Við afhentum eftirfarandi bréf þingverði og lofaði hann að koma því til Utanríkisráðherra ásamt Forsætisráðherra, ég ætla að jafnframt að senda það á gervallan þingheim og býð spennt eftir viðbrögðum...
Reykjavík 31. mars 2008
Ákall til íslensku ríkisstjórnarinnar
Við sem höfum staðið fyrir því að vekja athygli á hve skelfilegt ástandið er í Tíbet, viljum gjarnan vekja athygli ykkar á því sem er að gerast þar. Tíbetar hafa með friðsamlegum hætti barist fyrir tilverurétti sínum síðan 1959, með afar takmörkuðum árangri. Ef eitthvað, þá hefur ástandið aldrei verið eins slæmt og það er nú. Tíbetar eru orðin minnihlutaþjóð í sínu eigin landi. Um milljón Tibeta hafa verið drepnir síðan Kína hertók Tíbet 1950. Fólki er refsað, pyntað, fangelsað eða hreinlega drepið fyrir að stunda trú sína, fyrir að tala tungumálið sitt, fyrir að virða sinn menningararf. Kínversk yfirvöld hafa virt að vettugi allar tilraunir Dalai Lama til að eiga í opinberum samræðum við þá til að finna lausn á þessum vandamálum, en hann hefur hvatt til sjálfræðis Tíbets, þ.e.a.s. að þeir hafi sína eigin ráðherra. Mjög mikilvægt er að þessi samtöl hefjist nú þegar en það mun væntanlega róa undiröldu hinnar miklu reiði Tíbeta sem hafa horft upp á þjóðmenningu sína visna upp í 50 ár á meðan heimurinn hefur horft í hina áttina. Nú er tíminn til að þrýsta á kínversk yfirvöld. Þið vitið hvað er að gersast í Tíbet. Því berið þið ábyrgð á að bregðast við þessu ákalli. Við trúum því að þið hljótið að setja mannréttindi á oddinn fremur en viðskiptahagsmuni.
Í dag er alþjóðaaðgerðadagur til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum í sínu heimalandi. Alþjóðaaðgerðadagurinn er haldinn til að vekja athygli á að nærri 1,5 miljón manna hafa skráð nöfn sín á lista Avaaz Tibet petition, sem kallar á hófsemi í aðgerðum, að mannréttindi séu virt og að kínversk yfirvöld hefji samræður við Dalai Lama.
Aðgerðir verða haldnar um heim allan og kínverskum yfirvöldum afhentur þessi listi á táknrænan máta. Okkar aðgerð í dag er að senda ykkur þessar spurningar og tillögur.
Við óskum eftir greinagóðum svörum við eftirfarandi spurningum:
1. Er rétt að fórna mannréttindum fyrir viðskiptahagsmuni. Styðjið þið það?
2. Hvernig ætlar þú að beita þér fyrir því að aðstoða Tíbeta í baráttu þeirra fyrir að mannréttindi þeirra verði virt?
Hér eru nokkrar tillögur að því hvað íslensk stjórnvöld geta gert til að stuðla að lausn á vandamálum þeim er kosta svo marga Tíbeta lífið ár hvert.
1. Það hefur ríkt mikil þögn hérlendis meðal ráðamanna og enginn flokkur tekið skýra afstöðu með málstað Tíbeta. Við köllum eftir þverpólitískum stuðningi gagnvart baráttu þeirra og að íslenskir ráðamenn hvetji kínversk yfirvöld til að hefja samræður við Dalai Lama nú þegar.
2. Hægt er að þrýsta á kínversk stjórnvöld til að þau aflétti herlögum af Tíbet nú þegar og opni landið fyrir sjálfstæðum alþjóða- fjölmiðlum og mannréttindasamtökum.
3. Íslenska ríkisstjórnin getur þrýst á S.Þ. um að senda rannsóknarnefnd til Tíbet nú þegar til að komast að hver hlutskipti mótmælenda eru: talið er að um 100 Tíbetar séu horfnir (drepnir), 1200 í fangelsum og 79 hafa verið drepnir vegna undanfarinna mótmæla.
4. Þrýsta á kínversk yfirvöld að láta lausa pólitíska fanga eða þá sem eru fangelsaðir vegna trúar sinnar eða hafa beitt sér fyrir auknum mannréttindum í Kína og Tíbet.
Fjölmargar þjóðir hafa á alþjóðavettvangi stutt við að mannréttindi Tíbeta séu virt. Við hvetjum íslenska ráðamenn að gera slíkt hið sama. Hér eru nokkur dæmi um hvað við getum gert til að styðja Tíbeta í þeirra baráttu fyrir mannréttindum.
Við getum farið að dæmi þjóðverja og stöðvað allar umræður við Kínverja um efnahagsþróun og viðskipti.
Við getum farið að dæmi Karls Bretaprins, Václav Klaus Tékklandsforseta og Merkel Þýskalandskanslara og sniðgengið opnunarhátíð Ólympíuleikana eða farið að dæmi Forsætisráðherra Póllands Donalds Tusk og bókað viðtal við Dalai Lama í stað þess að fara á opnunarhátíðina.
Þetta bréf verður sent á alla alþingismenn allra flokka, þar sem þeir eru hvattir til að svara þessum spurningum samviskusamlega og svör þeirra verða svo birt á netinu, birgitta.blog.is.
Með vinsemd
Vinir Tíbets
![]() |
Alþjóðlegur aðgerðadagur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.3.2008 | 06:59
Minni á að alþjóðaaðgerðadagurinn til stuðnings Tíbetum er í dag
Mánudaginn 31. mars munu Íslendingar ekki láta sitt eftir liggja og þaka þátt í alþjóðadegi til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum og hittast fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðimel 29, kl 17:00.
Alþjóðaaðgerðadagurinn til stuðnings Tíbet er haldinn til að vekja athygli á að nærri 1,5 miljón manna hafa skráð nöfn sín á lista Avaaz Tibet petition, sem kallar á hófsemi í aðgerðum, að mannréttindi séu virt og að kínversk yfirvöld hefji samræður við Dalai Lama.
Samskonar aðgerðir verða haldnar um heim allan og kínverskum yfirvöldum afhentur þessi listi á táknrænan máta,
Eftir stutt stopp við kínverska sendiráðið verður gengið saman að Alþingi þar sem að opið bréf verður afhent til Forsætisráðherra og Utanríkisráðherra.
![]() |
Ólympíueldurinn til Peking |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.3.2008 | 06:43
Gagnlegar aðgerðaupplýsingar fyrir Tíbet
Ég setti saman smá aðgerðaupplýsingar sem ég dreifi á fundum okkar fyrir utan kínverska sendiráðið svo fólk geti haldið áfram að gera eitthvað þegar það kemur heim...læt það fylgja hér... þá hefur Sigurður Darri sett upp vefinn tibet.is og þar er hægt að nálgast falleg dagatöl með myndum frá Tíbet, en allur ágóði þeirra rennur til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum.
Gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem vilja gera eitthvað til að vekja athygli á málefnum Tíbet og verða sér úti um meiri upplýsingar um núverandi ástand og sögu Tíbet.
Þeir sem hafa hug á að skrifa beint til kínverska sendiherrans geta gert það með því að senda tölvupóst á chinaemb@simnet.is
eða senda sendibréf á
Kínverska sendiráðið
Víðimel 29
107 Reykjavík
Tillaga að bréfi til kínverska sendiherrans
Dear Chinese ambassador in Iceland
Please read this carefully and pass this on to your superiors
I am deeply concerned about the reports of the killings and imprisonment of protestors in Tibet. Every day we see new photos and hear reports of more killings despite the attempts of the Chinese government to smother all attempts for foreign media to report what is really going on.
I am also deeply concerned by reports that foreign journalists in China who have recently attempted to travel to the Tibet Autonomous Region and Tibetan areas in Qinghai, Gansu, and Sichuan have been barred entry from the cities they wished to travel to or expelled after reaching their destination, and have even in some cases been detained, threatened, or had their video footage confiscated. This contravenes the promise of media freedom for foreign journalists in the lead up to the Beijing Olympics that was made by the Chinese government and the Beijing Organizing Committee for the Olympic Games (BOCOG).
The Chinese government's assurances of wider media freedoms during the Olympic Games were key to the International Olympic Committee's 2001 decision to allow Beijing to host the Games. At that time, Wang Wei, secretary-general of the Beijing Olympic Games Bid Committee, promised international media complete freedom to report when they come to China for the 2008 Olympic Games.
I urge you to ensure that the temporary regulations are respected by all Chinese law enforcement officials in the coming days and that journalists are immediately granted access to the Tibet Autonomous Region and all Tibetan areas in Qinghai, Gansu, Sichuan and Yunnan.
I want to know the truth about what is going on it Tibet but it is impossible to know the truth if you dont give access to unbiased reporting from journalists from around the world.
My demands are simple: Allow international media to enter Tibet. Allow human rights movements to meet with the protestors who have been imprisoned.
I also demand an international inquiry into what occurred in Tibet during and after the protests in Lhasa.
There will be peaceful protests and pro-Tibetan actions outside the embassy every day until our demands will be met.
With regards
Þeir sem hafa áhuga á að lesa fréttir frá Tíbet geta kíkt á eftirfarandi vefsvæði
Tibetan Centre for Human Rights and Democracy
Tibetan Womens Asssociation
Phayul News and views on Tibet
International Campaign for Tibet
Þeir sem hafa áhuga á að skrifa undir undirskrifalista á netinu geta farið á eftirfarandi vefsvæði:
http://actionnetwork.org/campaign/freetenzin/alerts
http://www.petitiononline.com/fot2008/petition.html
http://www.avaaz.org/en/tibet_end_the_violence/6.php?cl=62284627
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 31. mars 2008
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson