Leita í fréttum mbl.is

Frábært framtak

Mótmæli og aðgerðir af einhverju tagi út af þessu málefni hafa átt sér stað daglega hérlendis undanfarna viku. Hópur fólks hefur kíkt við fyrir utan sendiráðið dag hvern, kveikt á kertum og farið með bréf, slagorð hrópuð eða ræður haldnar. Minni enn og aftur á hve krítískur tími þetta er fyrir Tíbeta. Nú er með sanni tími til að heimsbyggðin bregðist við.
mbl.is Jóga fyrir Tíbet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minni á mótmæli gegn mannréttindabrotum - meðmæli með sjálfræði Tíbet

á morgunn fyrir utan sendiráð Kína klukkan 13, að Víðimel 29. Vara jafnframt við upplýsingum frá Kína varðandi mannfall, ótrúlegt að fylgjast með fréttaflutningi þeirra af þessu sem og öðru. Ég hef legið í allskonar upplýsingaveitum málefni Tíbeta fyrr og nú. Og þessu meira sem ég kemst að, þessu meira vil ég gera til að vekja athygli á því sem þessi þjóð hefur þurft að þola. 

Hvet alla til að kíkja á vef Tibetan Centre for Human Rights and Democracy, þar er hægt að finna mikið af gagnlegum upplýsingum..

tibet 


mbl.is 19 látnir og 623 særðir í Lhasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessari stundu er Hansa að syngja Ráðið

á Rás 2, stórkostleg lag eftir hana móður mína og ekki síður magnað ljóð eftir Pál J. Árdal. Verið er að flytja minningartónleika Bergþóru Árnadóttur í heild sinni... frábært að fá að endurupplifa tónleikana. Kærar þakkir til Rás 2 fyrir að taka þá upp og senda þá út. 

Læt ljóðið fylgja hér því það minnir mig svo mikið á það hvernig Kína vinnur markvisst að því að sverta mannorð Dalai Lama

 

Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann,

Þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,

En láttu það svona í veðrinu vaka

Þú vitir, að hann hafi unnið til saka.

 

En biðji þig einhver að sanna þá sök,

Þá segðu, að til séu nægileg rök,

En náungans bresti þú helzt viljir hylja,

Það hljóti hver sannkristinn maður að skilja.

 

Og gakktu nú svona frá manni til manns,

unz mannorð er drepið og virðingin hans.

Og hann er í lyginnar helgreipar seldur

og hrakinn og vinlaus í ógæfu felldur.

 

En þegar svo allir hann elta og smá,

með ánægju getur þú dregið þig frá,

og láttu þá helzt eins og verja hann viljir,

þótt vitir hans bresti og sökina skiljir.

 

Og segðu: ,,Hann brotlegur sannlega er,

en syndugir aumingja menn erum vér,

því umburðarlyndið við seka oss sæmir.

En sekt þessa vesalings faðirinn dæmir.”

 

Svo leggðu með andakt að hjartanu hönd.

Með hangandi munnvikum varpaðu önd,

og skotraðu augum að upphimins ranni,

sem æskir þú vægðar þeim brotlega manni.

 

Já, hafir þú öll þessi happsælu ráð,

ég held þínum vilja, þú fáir þá náð

og maðurinn sýkn verði meiddur og smáður.

En máske, að þú hafir kunnað þau áður. 


Hvenær ætla íslensk stjórnvöld

að gera eitthvað... var að sjá þetta statement frá kanadíska forsætisráðherranum:

 Prime Minister Stephen Harper issued the following statement today:

“Canada shares the concerns about what is happening in Tibet. As His Holiness the Dalai Lama told me when I met him and as he has been saying recently, his message is one of non-violence and reconciliation and I join him in that call. Canada calls upon China to fully respect human rights and peaceful protest. Canada also calls on China to show restraint in dealing with this situation.” 


Mótmælum mannréttindabrotum í Tíbet

Mótmæli fyrir utan kínverska sendiráðið
Tíbet hefur verið lokað af, fjölmiðlafólki og ferðamönnum hefur verið vísað frá landinu. Símasamband og netsamband verið rofið. Herlögum hefur verið komið á og fólk handtekið fyrir þá einu sök að eiga mynd af trúarleiðtoga sínum, Dalai Lama í fórum sínum.

 

Undanfarið hafa mikil mótmæli brotist út í Tíbet, þau mestu í sögu landsins. Í það minnsta 1000 manneskjur hafa verið handteknar í Lhasa. Þeir sem þekkja til mannréttindabrota kínverskra yfirvalda vita að þetta fólk mun sæta miklu ofbeldi í fangelsunum. Dæmi eru um það að munkar hafa fremur skorið sig á púls en að þurfa að sitja undir þeim pyntingum sem bíða þeirra í kínverskum fangelsum.

 

Á laugardaginn 22. mars klukkan 13, boðum við til mótmæla fyrir utan kínverska sendiráðið, Víðimel 29. Tilgangur mótmælana er að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mannréttindi Tíbeta og hleypa alþjóðlegu mannréttindasamtökum inn í landið og sýnaTíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi.

 


mbl.is Pelosi ræddi við Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. mars 2008

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband