Leita í fréttum mbl.is

Takk Ólafur Ragnar

Ólafur Ragnar Grímsson hefur einu sinni nýtt sér embætti sitt til að stoppa eitthvað sem honum fannst varða þjóðarheill. Fjölmiðlafrumvarpið! Það sýnir sig best í dag hvaða hagsmunum hann var að þjóna þá.  Ólafur Ragnar Grímsson er vanhæfur sem forseti á ögurstund. Dóttir hans Tinna er í stjórn Haga með Jóni Ásgeiri og Jóhannesi í Bónus. Þarna fara miklir hagsmunir.

Skil ekki af hverju enginn blaðamaður er búinn að búa til spillingartré - ættartré eða eitthvað sem útskýrir á myndrænan hátt hvernig stjórnmálamenn og viðskiptamenn eru tengdir.

Skora á atvinnulaust fjölmiðlafólk að taka sig saman og fara að vinna að þjóðþrifaverkinu að upplýsa almenning um stöðu mála á Stóru-Sikiley.

Ég ætla ekki að eyða orðum á Reyni - hef vitað um hans óheiðarlegu siðfræði um langa hríð og eins og allir vita þá vilja þeir hlutir sem maður hendir út í loft hafa tilhneigingu til að enda á hausnum á manni þegar síst skildi.


mbl.is Íhugar málsókn gegn Kastljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur fréttaflutningur RÚV

Vitandi sem maður veit að fréttamiðlum er stjórnað af eigendum, í tilfelli RÚV er það ríkisstjórnin, þá fannst mér áhugavert að lesa mismunandi útgáfur af mótmælum þeim er voru við Ráðherrabústaðinn í morgunn. Af hverju segja þeir alltaf að það séu ungmenni að mótmæla, miðað við þær myndir sem ég hef séð af mótmælendum í morgunn þá er þarna fólk á öllum aldri. Af hverju segja þeir að þarna séu um 25-30 lögreglumenn þegar annar miðill segir að það séu um 70? Ég veit ekki með ykkur en mig grunar að þetta sé ansi oft tilfellið með fréttamennsku hérlendis, þær eru ekki sagðar útfrá staðreyndum og getur því varla kallast fréttamennska  - myndi frekar kalla það gróusögur. Vinsamlegast lesið fyrst fréttina af mbl.is og síðan þessa af RÚV. Það er eins og verið sé að skrifa um sitt hvorn hlutinn.

"Hópur ungmenna, um hundrað manns, mörg með klúta fyrir andlitum komu sér fyrir við ráðherrabústaðinn í morgun, en þar hófst ríkisstjórnarfundur um hálf tíu leytið.

Hópurinn myndaði meðal annars keðjur þvert yfir Tjarnargötuna og lokaði henni þannig að ráðherrar komust ekki að. Ungmennin hrópuðu ýmis slagorð, meðal annars "vanhæf ríkisstjórn" og "út með ruslið," og köstuðu einnig snjóboltum í Ráðherrabústaðinn.

Sumir ráðherrarnir þurftu að fara bakdyramegin inn í húsið. Um 25-30 lögreglumenn voru á staðnum og hefur lögreglan nú lokað Tjarnargötunni vegna mótmælanna."
mbl.is Hávær mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2008

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband