31.12.2010 | 13:24
Brú á milli þings og þjóðar
Áramótagrein fyrir Fréttablaðið: Birgitta Jónsdóttir
Það er ófriður á Íslandi. Í ranglátu samfélagi ríkir ófriður. Stór hluti almennings hefur glatað trausti á æðstu stofnanir landsins, aðeins 9% aðspurðra treysta Alþingi. Vantraustið hríslast um allt samfélagið, því ráðamenn og stofnanir hafa brugðist trausti fólksins. Við lifum í samfélagi þar sem ljóst er að lögin ná ekki til allra þeirra sem landið byggja. Hinir ósnertanlegu ganga enn um göturnar og halda áfram að þiggja greiða frá stjórnmálafólki sem þykist ekki, þrátt fyrir að sitja að völdum, geta gert neitt til að breyta því ástandi óréttlætis sem við búum við. Til að endurheimta traust þurfa þeir sem hafa völdin að sýna í verki að þeir séu traustsins verðir. Orð skulu standa en ekki vera föl fyrir völd.
Skipta þarf út efstu lögum stjórnenda
Það hafa margir furðað sig á að það fólk sem flestir treystu til að mynda skjaldborg um heimilin í landinu, hafi brugðist því trausti á jafn afgerandi hátt og raun ber vitni. En það er ekkert furðulegt við það. Kerfið sjálft er ónýtt. Hefð hefur skapast fyrir því að ráða fólk eftir flokkskírteinum í efstu lögin á kerfinu. Þeir sem fara með æðstu völdin eru ekki ráðnir eftir menntun, hæfni eða getu. Ef kerfið er eins og skemmt móðurkartafla þá er ljóst að þeir sem standa henni næst skemmast. Það er nákvæmlega sama hverjir komast til valda þeir munu skemmast ef ekki verður alvöru uppstokkun í kerfinu. Til hvers að reyna stöðugt að tjasla í götin á ónýtu kerfi þegar tækifæri til endurnýjunar er til staðar? Það er ekki aðeins hérlendis sem fólk hefur gert sér grein fyrir því að kerfi sem þjónar alltaf hinum ósnertanlegu er ekki lengur ásættanlegt. Samhljómur almennings víðsvegar um heim verður sífellt sterkari. Fólk er hætt að bærast sem einstök hálmstrá í vindi. Samstaða er möguleg á víðtækum grunni vegna tilkomu netsins og þar má finna sístækkandi hópa fólks sem er byrjað að undirbúa breytingar í takt við þá staðreynd að við eigum bara eina plánetu og ef heldur fram sem horfir, þá munu lífsgæði barna okkar og barnabarna verða mjög slæm miðað við það sem við höfum fengið að njóta.
Stefnuskrá Hreyfingarinnar er einfaldur tékklisti
Við í Hreyfingunni höfum stundað tilraunapólitík. Við skilgreinum okkur hvorki til hægri né vinstri. Það er ljóst að sú hugmyndafræði er að renna sitt skeið á enda. Við skilgreinum okkur útfrá málefnunum. Þegar stefna Hreyfingarinnar var mótuð í árdaga Borgarahreyfingarinnar var ákveðið að setja saman stefnuskrá sem er tékklisti. Þessari tiltölulegu einföldu stefnu fylgjum við en hún lýtur fyrst og fremst að því að koma hér á víðtækum lýðræðisumbótum. Að færa völd og ábyrgð til almennings. Þetta er hægt að gera með því að lögfesta réttinn til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri þvert á flokka, skera á tengslin á milli fyrirtækja og flokka og nýrri stjórnarskrá sem tryggir að auðlindir þjóðar tilheyra henni en ekki hinni ósnertanlegu valdamafíu sem hefur hrifsað til sín þessar auðlindir á markvissan hátt allt frá upphafi hins unga lýðveldis okkar.
Almenningur taki þátt í að móta samfélagið
Stefnuskráin er grunnstoðin sem við í þinghópnum virðum og vorum kosin út á. Önnur mál sem ekki falla undir þessa stefnu fylgjum við sem einstaklingar rétt eins og kveður á um í því drengskaparheiti sem við skrifum undir sem nýir þingmenn. Við sækjumst ekki eftir völdum. Sú blinda foringjahollusta sem hefur einkennt mannkynið um árþúsundir er eitthvað sem almenningur verður að láta af. Þessi öld verður öld almennings ekki leiðtoga. Völdum fylgir mikil ábyrgð. Er almenningur tilbúinn að taka við völdum með því að gefa þau ekki frá sér heldur verða virkir þátttakendur í að móta samfélagið sitt? Ég vona það. Sífellt fleiri kalla eftir því. Ég mun gera mitt besta til að skapa nauðsynleg verkfæri til að það sé hægt. Þegar stefnumálum Hreyfingarinnar verður náð getum við með góðri samvisku lagt hana niður, því þá hefur traust brú á milli þings og þjóðar hefur verið smíðuð.
22.11.2010 | 19:06
Fundað í aðdraganda kjarasamninga
Upphaflega stóð til að fundað yrði með Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ en hann hafði óskað eftir fundi með þingmönnum Hreyfingarinnar til að ræða stöðuna í aðdraganda kjarasamninga. Þegar þingmennirnir óskuðu eftir því að þeir Vilhjálmur og Ragnar tækju einnig þátt í fundinum neitaði Gylfi hins vegar að mæta. |
7.11.2010 | 08:04
AGS styður almennar aðgerðir: fyrir suma
Það hefur borið nokkuð á því að AGS hafi haldið því fram, á fundum með þingmönnum, hagsmunasamtökum og fjölmiðla, að sjóðnum finnist það nauðsynlegt að fara í almennar aðgerðir fyrir heimilin.
AGS boðaði Hreyfinguna á sinn fund á föstudaginn og var um margt afar fróðlegur. Á fundinn mættu þingmenn Hreyfingarinnar og 4 fulltrúar frá AGS.
Ég hef í nokkur ár viðað að mér upplýsingar um það hvernig þeim löndum sem hafa verið undir handleiðslu AGS hefur farnast í því prógrammi og því var ekki laust við það að ég hefði af því þungar áhyggjur þegar engin önnur leið virtist fær en að kalla eftir aðstoð þeirraí árdaga hrunsins. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og við höfum fengið að finna fyrir því á eigin skinni hvernig okkur farnast í þessu prógrammi. Margir sérfræðingar og stjórnmálamenn héldu því fram að við myndum fá sérmeðferð og að við myndum koma betur út úr AGS prógrammi en t.d. Argentína.
Nú er svo komið að það lítur út fyrir að það sé að takast að þurrka út millistéttina hérlendis eins og tókst í Argentínu. Það sem var gagnlegt við fundinn með 4 fulltrúum AGS í gær var að hægt var að leiðrétta misskilning og fá á hreint álitamál.
Ég hóf fundinn á því að spyrja hvort að það væri rétt að sjóðurinn væri fylgjandi almennum aðgerðum. Þeir sögðu svo vera. Fulltrúar AGS viðurkenndu að þeir hefðu lagt það til síðan í upphafi árs 2009 og það hefði verið rætt við ríkisstjórnina, þingmenn og hagsmunasamtök. Mér fannst eitthvað ekki passa og þrýsti á að fá vitneskju um hvað þeir ættu nákvæmlega þegar þeir töluðu um almennar aðgerðir. Þá kom hið merkilega í ljós: AGS styður almennar aðgerðir fyrir suma! (Í mínum huga er þá ekki hægt að kalla það almennar aðgerðir, ef það er bara fyrir suma.)
Hér er skilgreining AGS á almennum aðgerðum varðandi húsnæðislán.
Það eru tveir hópar húsnæðislántakenda. Fyrsti hópurinn er fólkið sem getur ekki borgað. (Þeir sem eru nú þegar komnir fram yfir bjargarbrúnna.) Seinni hópurinn er fólkið sem enn getur borgað.
Vegna þess að fyrsti hópurinn á ekkert og getur ekki borgað, þá fær hann leiðréttingu. Hinn hópurinn getur borgað og því er ekkert réttlæti samkvæmt hugmyndafræði AGS þeim til handa. Þeim ber að borga. AGS finnst ranglátt að aumingja vesalings fjárfestarnir taki á sig eitthvað af því vandamáli sem þeir báru höfuðábyrgð á að skapa.
Mér fannst merkilegt að þeir hefðu ekki skilgreint þetta sem þrjá hópa og lagði til að þeir myndu flokka þetta á annan hátt, það væri ekki hægt að horfa fram hjá því að þriðji hópurinn sem hægt væri að staðsetja á milli fyrsta og þriðja er hópurinn sem rétt nær svo að borga núna, þessi hópur er kominn út að bjargbrúninni og mun fara sömu leið og fyrsti ef ekkert verður gert. Það vill svo til að þetta er langstærsti hópurinn. Ég spurði Franek Roswadowski hvort að fulltrúar AGS á Íslandi vildu vera ábyrgir fyrir því að þessi hópur myndi hrynja fram að bjargbrúninni á næstu mánuðum og við tók aðeins þögn frá fulltrúum sjóðsins.
Það er deginum ljósara að AGS styður EKKI almennar aðgerðir og munu aðeins leggja til að þeir sem reiknaðir eru sem fólkið sem getur ekki borgað útfrá viðmiðum umboðsmanns skuldara fái leiðréttingu.
Mér finnst í það minnsta mjög gott að þetta er þá komið á hreint, því sumir sem hafa barist fyrir leiðréttingu hafa fallið fyrir mjúkmælgi AGS og ekki gengið nægilega hart að þeim að skilgreina hvað þeir eiga við. Það má ekki gleymast að AGS hefur yfirleitt alltaf staðið vörð um fjármagnseigendur og því fannst mér eitthvað bogið við tal þeirra um almennar aðgerðir.
Þeir þvertóku fyrir að orðalag sem hægt væri að skilja sem tillögu um að orkufyrirtækin yrðu einkavædd væri rétt, eftir útskýringar þeirra um hvað þessi texti þýddi get ég tekið þá trúarlega, þeir leggja semsagt til að einkavæðingin verði víðtækari, ekkert samt sem undanskilur orkufyrirtækin, en þeir leggja til almennar einkavæðingar hjá hinu opinbera.
Ég læt svo fylgja bréf frá Gunnari Tómassyni sem hann skrifaði Roswadowski í gær út af þessum málum.
November 6, 2010
Dear Mr. Roswadowski,
As an old IMF hand(1966-1989), I noted with interest Althing member Margrét Tryggvadóttirs following comments on her Facebook page (in my translation):
[I] met with four IMF staff members today [November 5]. They found it totally incomprehensible why we are requesting that creditors and debtors should share losses resulting from the economic collapse.
And, indeed, it makes no sense in the context of the IMFs mainstream economic world-view (The Washington Consensus) to re-allocate losses incurred on account of Icelands economic collapse between creditors and debtors through the political process.
However, many/most of those who emerged as substantial creditors from the collapse owed their good fortune to strictly non-economic causes, namely, actions taken through thepolitical process to shelter their capital at the cost of their fellow citizensand foreign creditors.
As a matter of principle, the IMF does not interfere in the internal affairs of member countries. Thus, the IMF did not oppose the Icelandic governments expansion of deposit insurance and retroactive re-ordering of the priority status of claims on the financial system in October 2008.
The request that creditors and debtors should share losses resulting from the economic collapseis predicated on grounds of equity and justice. It envisages a partial roll-back of the pro-creditor measures previously taken by the Icelandic government on non-economic grounds.
The request is one that the IMF, as an institution, based on law and moral authority in the words of former Managing Director Jacques de Larosière, can and should embrace and support.
With kind regards,
Gunnar Tómasson
IMF Advisor, ret.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
21.9.2010 | 08:41
Ráðherraábyrgðar ræða
Ég vil byrja á að þakka háttvirtum þingmönnum Atla Gíslasyni og Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir mjög greinagóðar ræður þar sem störf nefndarinnar eru rakin og hvet þingmenn til að kynna sér ræður þeirra.
Í dag ræðum við um ábyrgð. Þegar maður les skýrslu rannsóknarnefndar er ljóst að enginn gengst við ábyrgð. Farið er í hinn margfræga leik, hver stal kökunni úr krúsinni í gær og ábyrgðinni velt á aðra. Enginn er maður með meiru og viðurkennir mistök sín og axlar þá ábyrgð sem þeim fylgja. Ég verð að viðurkenna frú forseti að ég ber litla virðingu fyrir fólki sem getur ekki gengist við ábyrgð á sínum mistökum og minnsta virðingu ber ég fyrir fólki sem varpar henni yfir á aðra í von um að sleppa og að athyglin beinist að einhverju öðru.
Ég ber aftur á móti mikla virðingu fyrir fólki sem gengst við mistökum, iðrast og einsetur sér að læra af mistökunum. Það fer ekki mikið fyrir slíku fólki hér innan dyra fyrr og nú.
Í íslenskri stjórnmálahefð er þetta viðtekin venja og það eru ekki margir þingmenn né ráðherrar sem hafa stigið hér upp í pontu og viðurkennt æpandi mistökin í gegnum árin og vikið af þingi í kjölfarið. Enginn hefur stigið hér upp í pontu og gengist við ábyrgð á aðgerðaleysinu í aðdraganda bankahrunsins. ENGINN. Því miður er það ljóst að afleiðingar hrunsins eru sviðinn jörð hjá þúsundum íslendinga sem höfðu ekki aðgengi að sömu upplýsingum og ráðherrar og þingmenn sem áttu aðild að þeirri ríkisstjórn sem hrakin var frá völdum með búsáhaldabyltingunni.
Ein afleiðing hrunsins mun birtast í þeirri ömurlegu staðreynd að í næsta mánuði munu mörg hundruð fjölskyldur missa heimi sín vegna þeirra mistaka, vanrækslu og gáleysis ráðamanna sem hér er fjallað um í dag.
Frú forseti nú þegar hafa ansi mörg stór orð verið látin falla, ég ásamt fleirum þingmönnum úr þingmannanefndinni höfum m.a. verið vænd um að vera blóðþyrst út af því að við viljum láta kalla saman Landsdóm til að taka til umfjöllunar ákæru á hendur 4 ráðherrum. Við skulum aðeins setja hlutina í samhengi, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar alþingis eru þeir aðilar sem við leggjum til að verði kallaðir fyrir Landsdóm ábyrgir vegna aðgerðaleysi og vítaverðu gáleysi. Væri það ekki vítavert gáleysi að gera ekki neitt og bregðast við þeim áfellisdómi sem skýrslan er með sanni? Ég upplifi það ekki sem sérstakan hefndarþorsta eða blóðþorsta að vilja lúta leiðsögn þeirrar skýrslu sem svo mikið hefur verið mærð hér í þingsölum sem tímamóta skýrsla sem okkur ber að læra af. Við getum ekki bara sleppt því sem er óþægilegt og snýr að ábyrgð ráðherra.
Ég vil ekki kalla saman landsdóm til að friðþægja almenning eins og einn hæstráðandi ráðherra lét nýverið hafa eftir sér, ég vil aftur á móti kalla saman Landsdóm vegna þess að mér ber að gera það útfrá þeim starfskyldum sem okkur voru settar í þingamannanefndinni, út af samvisku minni og útfrá ótal fundum sem við sátum með sérfræðingum á þessu sviði og tóku undir það lagalega mat um ráðherraábyrgð og tilefni til ákæru sem fólst í skýrslu rannsóknarnefndar.
Mér finnst líka mikilvægt í ljósi þess að enginn hefur sýnt iðrum né vilja til að breyta þeim ónýtu hefðum sem tíðkast með oddvitaræði og vanvirðingu fyrir heilbrigðri skynsemi eins og að halda almennilegar fundargerðir á efstu stigum stjórnsýlsunnar, mér finnst það mikilvægt að við þingmenn sýnum í verki að slíkt að slíkt verklag er ekki boðlegt og að við séum meðvituðum um hve skaðlegt það er velferð landsmanna að halda áfram á sömu braut og haldið var í náinni fortíð. Við erum að kljást við skaðann af óvönduðum vinnubrögðum. Iðrunarleysið er svo stórfellt að töluverður hluti fyrrum ríkisstjórnar situr enn á þingi, bæði sem óbreyttir þingmenn sem og í æðstu stöðum í ráðuneytunum.
Að draga fólk fyrir Landsdóm er orðalag sem heyrist mikið hér inni og endurvarpast í fjölmiðlum. Þá tala margir um að það sé erfitt að senda vini sína hugsanlega í fangelsi og upp teiknast mynd sem á sér litla stoð í veruleikanum. Það vita það allir að hámarks refsing ef Landsdómur dæmir er tveggja ára fangelsisdómur, ólíklegt er að neinn muni sæta hámarksrefsingu. Ef ráðherrarnir fyrrum verða sakfelldir þá er næsta ljóst að þeir munu sennilega aðeins þurfa að sæta refsingar sem inniber skilorð eða fjársekt. Í þessu samhengi langar mig á að benda að einn af þeim aðilum sem dæma á út af því að hún leyfði sér að mótmæla vanhæfri ríkisstjórn á hinum háhelgu áheyrendapöllum verður í orðsins fyllstu merkingu dregin fyrir dóm laugardaginn 1. desember þrátt fyrir að eiga von á barni á sama tíma. Ekkert tillit er tekið til hennar í þeim pólitísku ofsóknum sem eiga sér stað gagnvart þeim einstaklingum sem var nóg boðið út af vanmætti ráðamanna að axla ábyrgð og segja af sér á sínum tíma, þrátt fyrir að öllum var ljóst að sú ríkisstjórn sem hér réði ríkjum var með öllu vanhæf og hafði sýnt af sér vítavert gáleysi.
Þeir níu einstaklingar sem ákærðir eru fyrir árás á þingið eru ákærð útfrá 100gr. þar sem hámarks refsins er hvorki meiri né minni en lífstíðarfangelsi. Ef maður ber saman þessi tvö mál þá verður maður að draga efa hvort að við með sanni búum í alvöru réttarfarsríki, sér í lagi ef að þingið mun ekki hafa dug til að afgreiða þessar þingsályktanir með því sniði sem lagt upp var með.
Það var með sanni ekki hægt að koma fyrir hrunið, en það var hægt að minnka hve stórfellt það varð með eðlilegum stjórnsýslulegum aðgerðum sem raktar eru í greinagerð þingsályktunnar þeirrar sem við fjöllum um í dag. Það er mikilvægt að muna að ef við setjum ekki skýr mörk gagnvart því hvar ábyrgðin liggur fyrir þá sem sitja á valdastólum nú og í framtíðinni. Við verðum að sína í verki að við viljum læra af fortíðinni.
Því miður er hætt við því að allt hólið á aðra vinnu þingmannanefndarinnar og varðar hina sameiginlegu þingsályktun nefndarinnar sé byggt á innan tómum orðum sem ættu betur heim í 17. júní ræðum eða í kosningaherferð. Við viljum ekki endurtaka oddvitaræðið, valdaránin, brotnu ráðherraábyrgðarkeðjuna eða að fólk firri sig ábyrgð með því að benda á aðra, eða hvað?
Frú forseti
Af hverju eru ekki þeir sem bera mesta ábyrgð á hinu hryllilega hruni látnir sæta ábyrgð? Til hvers að kalla saman landsdóm ef Davíð og Halldór verða ekki látnir sæta ábyrgð? Er ekki verið að hengja bakara fyrir smið?
Auðvitað væri best ef við hefðum þannig lög að ráðherraábyrgð fyrnist ekki á aðeins þremur árum.
En þau rök að ekki sé forsenda til þess að kalla fólk til ábyrgðar sem er ekki eins mikið ábyrgt fyrir hruninu og afleiðingum þess er auðvitað alger rökleysa. Það mætti bera þetta saman við það ef að tveir aðilar taka þátt í þjófnaði. Einn stelur 5 milljónum, hinn 4 milljónum, þessi sem stal mest sleppur, á þá ekki að kæra þann sem stal minna?
Mikil harmakveini heyrast víða um að löginn um Landsdóm séu úr sér genginn, forngripur sem lítið mark sé á takandi, risaeðla í lögfræðilegu tilliti og marklaus vegna hrumleika. Vil ég benda á að þessi lög eru óvenju vel úr garði gerð miðað við háan aldur, lögin eru þó ekki eldri en 50 ára sem er nokkuð yngra en flest það sem finna má í stjórnarskránni okkar og ef þetta eru rökin og fólk getur ekki fellt sig við gömul lög þá skulum við bara hætta að fylgja öllum lögum sem eru eldri en 50 ára, þar á meðal undirstöðum stjórnarskrár landsins.
Frú forseti
Þúsundir landsmanna hafa flúið land, þúsundir hafa misst vonina, þúsundir þurfa að velja á milli þess að borga af stökkbreyttum lánum eða geta brauðfætt fjölskyldur sínar. Tugþúsundir hafa glatað öllu trausti á valdastofnanir þessa lands, sér í lagi alþingi.
Því er það með sanni hálf ömurlegt að eyða dýrmætum tíma í þessi ræðuhöld á meðan mikil ólga er í samfélaginu út af því sem margir upplifa sem sérpantaðan dóm í hæstarétti. Það verður samt ekki undan því komist að fjalla um þetta "erfiða" mál og hvet ég samþingmenn mína að hafa hugrekki til þess að láta ályktunina hafa sinn gang án klækja eða tilrauna til að eyðileggja málið. Ég leyfi mér að trúa því að háttvirtir þingmenn búi yfir nægilega miklu hugrekki til að kjósa um þessar ályktanir í stað þess að hindra að þær fái eðlilega þinglega meðferð.
frú forseti
Mikið er talað um virðingu þingsins, ég leyfi mér að spyrja þingmenn, háttvirta sem hæstvirta um það hvort að það sé til þess fallið að auka virðingu þingsins að hér sitja í valdamestu stólum hins háa alþingis fólk sem átti aðild að ríkisstjórn þeirri sem fékk áfellisdóm í skýrslu rannsóknarnefndar? Hvernig er hægt að firra sig ábyrgð á þeim hörmungum sem þess þjóð þarf að bera um ókomna tíð og ekkert sér fyrir endann á? Ætlar enginn að gangast við þeirri ábyrgð? Enginn? Hvernig er hægt að ætlast til þess að almenningur virði þetta svokallaða réttarríki ef það á bara við suma? Það er skylda þingsins að sýna af sér gott fordæmi og skora ég á þingmenn að fylgja þeim drengskapareið sem þau tóku þegar þeir háttvirtir tóku við embætti. Ég skora á þá að hlusta á samvisku sína og hjarta og beita sig vægðarlausum heiðarleika um hver heill þessa samfélags eru ef enginn ráðamaður mun sæta ábyrgð?
![]() |
Mikil reiði innan VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.7.2010 | 11:21
Mótmæli fyrir utan Seðlabankann á mánudaginn
Fann þessa auglýsingu á facebook: ég ætla að mæta.
Tilmælum FME og Seðlabanka Íslands gegn Hæstarrdómi mótmælt
Date: | Monday, 05 July 2010 |
Time: | 12:00 - 13:00 |
Location: | Við Seðlabanka Íslands |

Tekin er afstaða fjármálafyrirtækjanna eina ferðina enn, þar sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands leyfa sér að vaða yfir dóm Hæstarréttar með "TILMÆLUM UM LÆGSTU MEÐALVEXTI FRÁ 2007 SEM ERU 14.76%". (ekki 8,6%).
Hvert eru menn að fara með Ísland? Eiga þessar stofnanir að fá leyfi til að hnekkja dómi Hæstarrétar? Látum við þetta líka yfir okkur ganga?
Takið með ykkur verkfæri sem búa til mikinn hávaða ásamt spjöldum og öllu öðru sem þið hugsanlega hafið meðferðis.
Við kyngjum þessu ekki þegjandi - nú er mælirinn fullur! Bakkafullur bikarinn er ekki nægjanlega stór fyrir allt það óréttlæti sem yfir okkar þjóð hefur gengið! Næjanlega stór bikar fyrirfinnst ekki!
Stöndum saman öll sem eitt!
![]() |
Krafðir um háar bætur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.7.2010 | 10:40
TILMÆLI frá Ráðgjafarstofu um FJÁRMÁL BANKANNA
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.5.2010 | 15:08
Er ekki mál að linni þingheimur, er ekki mál að linni?
Ræða sem ég flutti í gærkvöldi um frumvarp iðnaðarráðherra um skattaívilnanir til fyrirtækis í eigu Björgólfs Thor, mér tókst að semja um að atkvæðagreiðslu yrði frestað þangað til eftir sveitastjórnarkosningar, finnst mikilvægt að það sé ekki kosið um svona umdeilt mál á miðnætti eins og til stóð. Enn og aftur er lítil sem engin fjölmiðlaumfjöllun um mikilvægt mál eins og þetta, það var til dæmis ekki stafkrókur um frumvarp sem forsætisráðherra flutti um fjármál flokkanna, en meira um það síðar.
Frú forseti
Hér fjöllum við um mál sem ríkisstjórn og ríkisstjórnarþingmenn með dyggri aðstoð meirihluta minnihlutans hafa þurft að beita skapandi hugsun við að koma í gegnum þingið. Þetta er líka þannig mál að það er erfitt að réttlæta fyrir sér að styðja það eins og því er fyrirkomið hér á lokastigum þess hér í þinginu.
Hér eru nokkur atriði sem mér svíður undan: Það vita það allir sem hér sitja inni að það getur bara ekki verið rétt að verðlauna þá aðila sem hér tóku með einbeittum brotavilja þátt í því að koma þjóðinni í þá háskalegu stöðu sem við stöndum frammi fyrir. Hvernig er hægt að réttlæta að maður sem einsýnt er samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar alþingis flokkast undir að vera fjárglæframaður, hvernig er hægt að réttlæta það að hann fái yfir höfuð að halda áfram að fjárfesta í framtíð landsins, og ekki nóg með það þá á að gefa honum skattaívilnanir. Nú kunna aðrir þingmenn að réttlæta þennan fáránlega gjörning með að blessaður maðurinn hefur afsalað sér afsláttinn í tíu ár og hafi skrifað auðmjúkt afsökunarbréf til þjóðarinnar. Flestir réttlæta þetta fyrir sér með því að það sé mikið atvinnuleysi á Reykjanesi og því verði þetta mikil búbót og mörg störf um að ræða. En það verður nú að segjast ágæti forseti að enginn virðist hafa hugmynd um hve mörg störf skapist eða hvernig störf þetta séu. Það hlýtur að vera hægt að finna aðra lausn, kannski væri lag að aðstoða íslensk fyrirtæki sem vilja setja upp smærri einingar af gagnaverum með því að gefa þeim sambærilega skattaafslætti og líta svo á að þau erlendu fyrirtæki sem hér munu hýsa gögn sín hafi um fjölbreytta kosti að velja í hýsingu og komi þar af leiðandi hér inn með fjölbreyttari störf sem slíkt umhverfi gæti leitt af sér.Ég vil vekja athygli á því að málið minnir mig á sögu sem hefur verið spunnin áfram af spunameisturum og kannski eru þeir spunameistarar kannski í stjórn fyrirtækisins sem vill gagnaverið byggja og tengjast auðvitað flokki með völd? Ó, hve dásamlegt þetta fjórflokkakerfi er - allir fá einhvern tíman tækifæri á að hygla sér og sínum.
Það að geta ekki hugsað handan stóriðju hvort heldur hún heitir álver eða gagnaver er sorgleg þróun. Sorgleg vegna þess að ef þetta fyrirtæki gengur illa, þá mun þetta sveitarfélag aftur líða fyrir stórmennskudrauma sem breyttust í martröð, ég hef hugleitt mikið hvernig hægt væri að bregðast við afleiðingum þeim sem maðurinn sem á að fá að halda áfram að fjárfesta í íslensku vinnuafli og nota þjóðina áfram sem veð ég hef mikið hugleitt frú forseti hvort að það sé virkilega svo að það sé bara ein leið fær. Og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að svo er ekki. Það er aldrei bara ein leið fær. Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki eru miklu öruggari leið til að viðhaldi stöðugleika en ein risalausn. Ef eitt meðalstórt fyrirtæki af mörgum rúllar þá mun það hafa lítil áhrif á samfélagið, en ef fyrirtæki gerast svo stór að þau geta ekki axlað ábyrgð af óráðsíu eins og við upplifum nú, þá lendir baggi einkafyrirtækja sem fá afskriftir á skattborgurum og bökin er núna orðin ansi fá og veikburða og við getum ekki leyft okkur að halda svona áfram. Einhver þarf alltaf að borga fyrir uppgufun fjármagns þó íhaldsmenn haldi öðru fram.
Frú forseti, hvernig hefur verið staðið að því að finna annan aðila til að fjárfesta í þessu gagnaveri en Björgólf Thor og hans fyrirtæki? Frú forseti, ég veit að þessi spurning hefur borið á góma en ekki hafa fengist nægilega skýr svör við henni. Ég myndi með sanni styðja þetta mál ef Björgólfur Thor hefði sýnt þann manndóm að sleppa tökunum af þessum draumi og gefið öðrum kost á að fjárfesta í stað sín.
Best væri hreinlega ef að það á að halda áfram að gefa manninum gulleggin okkar að bíða í það minnsta uns rannsókn er yfirstaðin á gamla bankanum hans. Ég get ekki stutt þetta verkefni vegna þess að mig hreinlega svíður undan þessu í minni réttlætiskennd. Er þetta nýja Ísland frú forseti, er þetta sá hornsteinn að uppbyggingu landsins sem við viljum leggja? Ef Björgólfur Thor fær enn að fjárfesta í framtíð Íslands þrátt fyrir það sem kemur fram í skýrslunni, þá verður varla hægt að segja nei við hina fjárglæframennina, og til hvers þá að vera með einhverja sýndarmennsku varðandi réttarhöld og handtökur, hættum þessu bara og látum strákana okkar aftur við stjórntaumana og leyfum þeim að halda áfram í útrás og innrás.
Mér skilst að ríkissjóður hafi ábyrgst nokkra milljarða lán út af farice-strengsins sem flytur gögn á milli landa, móðurfélag Verne Holding fékk lán upp á nokkur hundruð milljónir sem nú er verið að afskrifa, ríkisábyrgðin mun því falla á herðar skattborgara eins og svo mörg önnur ævintýri út- og innrásar víkinganna.
Er ekki mál að linni frú forseti, er ekki mál að linni?
Ég skora á þingmenn að kanna innra með sér af hverju það sé svo að þingið nýtur ekki meiri trausts en svo að aðeins 1 af hverjum 10 landsmönnum treysta þingheimi eins og kom fram í skoðanakönnun í dag: gæti það verið út af því að svona vinnubrögð sýna skort á siðgæði og almennri skynsemi.
Frú forseti er ekki mál að vitleysunni linni og að háttvirtir þingmenn og hæstvirtir ráðherrar beiti örlítið meiri skapandi hugsun til að koma í veg fyrir að þeir sem rændu okkur fái að halda áfram að ræna okkur?
William Black sagði til að ræna þjóð, skaltu kaupa banka
nú er það svo að við vitum ekki hverjir eiga nýju bankana, vitum ekki hvort að Magma Energy sé skúffufyrirtæki bankaræningja og áfram heldur leikurinn áfram og enn og aftur líður almenningi sem nóg sé komið en engin björg sé í boði nema að taka þessari siðblindu því það sé ekkert annað í boði.
Sýnum nú þjóðinni aðeins meiri virðingu en þetta, sýnum hugrekki, og höfnum því að gefa bankaræningja gullin úr tönnum okkar því við eigum ekkert meira að gefa. Nú þegar verið er að seilast enn og aftur í tóma vasa öryrkja og ellilífeyrisþega til að borga fyrir sukkið hjá þessum sama aðila og við erum að gefa tækifæri á að fjárfesta áfram.
Nú er mál að linni frú forseti, nú er mál að linni.
19.5.2010 | 08:01
Oft er þörf en nú er nauðsyn
Ég hef verið haldin ritstíflu á bloggvettvangi, vissi eiginlega ekki hvar skildi bera niður vegna þess hve víða pottur er brotinn í samfélaginu og pólitíkinni og var haldin valkvíða um hvað ég ætti að skrifa um. Hef fundið ágæta lausn á þessu útfrá góðri ráðgjöf vina minna: taka fyrir eitt mál í einu sem er ef til vill að fá brotakennda umfjöllun í fjölmiðlum og almenningur er ekki að fá heilstæða mynd af.
Grundvallarforsenda til að umbylta óréttlæti að fólk hafi aðgang að réttum upplýsingum. Sú er oftast ekki raunin. Flestir fjölmiðlar eru enn máttlausir, vegna niðurskurðar og eignarhalds. Sjálfsritskoðun og hraði einkennir mikið af umræðunni og það sem sorglegast er flokkadrættir drepa alla gagnrýna hugsun og málefnalega umræðu. Nú stöndum við frammi fyrir stórum málum á alla vegu. Mál sem munu hafa afgerandi áhrif á framtíð landsins. Ber þar hæst: auðlindir okkar og sú vá við stöndum frammi fyrir varðandi eignarhald á þeim, Icesave, AGS, ESB, Magma energy, mótmæli, fæðuöryggi og búsifjar vegna eldgoss.
Ég hef reyndar notað facebook mikið til að koma skoðunum mínum á framfæri sem og til að deila upplýsingum með vaxandi hópi vini - innlendra sem erlendra:) Þar er meiri virkni á milli fólks - svo margir vinir mínir horfnir frá þessum vettvangi um víðan völl.
17.5.2010 | 09:59
Óvanalegt ástand í Hérðasdómi Rvk (Vakandi auga)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2010 | 06:10
Hverjum datt í hug að kæra útfrá 100 greininni? Svar óskast!
1. Þingpallar eiga samkvæmt 57. grein stjórnarskrár okkar, að vera opnir almenningi, svo almenningur geti með góðu móti fylgst með löggjafarsamkundunni. 57. gr. Fundir Alþingis skulu haldnir í heyranda hljóði. Þó getur forseti eða svo margir þingmenn, sem til er tekið í þingsköpum, krafist, að öllum utanþingsmönnum sé vísað burt, og sker þá þingfundur úr, hvort ræða skuli málið í heyranda hljóði eða fyrir luktum dyrum.
Útskýring: Það þarf að halda þingfund og skera úr um það hvort vísa á utanþingsmönnum burt. Það er ekki hlutverk annarra en þingforseta og þingmanna. Hvorki þingverðir, lögregla né aðrir hafa heimild til að vísa fólki burt sem á stjórnarskrárbundinn rétt til að fylgjast með störfum alþingis.
2. Oft er fólki meinaður aðgangur að þingpöllum vegna geðþóttaákvarðana þingvarða, enda hafa þeir engar skýrar reglur nema úr stjórnarskrá, sjá 57 greinina hér að ofan, um til dæmis hvort að tiltekinn klæðnaður sé bannaður. En það hefur komið fyrir ítrekað að fólki er meinaður aðgangur vegna klæðnaðar. (Ekki nógu fínar lopapeysur, merki, húfur, bolir og svo framvegis.)
3. Fleiri þúsund manneskjur tóku þátt í mótmælunum og því þykir það furðu sæta að 9 manneskjur séu kærðar á forsendu 100 greinar hegningarlaga: 100. gr. Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.
Það er 100 greinin sem fólk hefur gagnrýnt, en EKKI er verið að leggja til að þeir sem kunna að vera ábyrgir fyrir líkamstjóni annarra svo sem þingvarða og lögreglumanna verði ekki látnir svara fyrir dóm.
106. gr. Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta fangelsi allt að 6 árum. [Beita má sektum, ef brot er smáfellt.]
4. Það ætlar ekki að ganga þrautarlaust að komast að því hver ákærir útfrá 100. greininni. Hið dæmigerða athæfi íslenskra ráðamanna er enn við líða: þ.e.a.s. hver stal kökunni syndromið. Skrifstofustjóri alþingis hefur bent á þáverandi saksóknara Valtý (sá hinn sami og varð að segja sig frá málinu vegna náinna vensla við einn þingvarðanna sem kært var út af). Valtýr sagði að hann hefði ekki fengið hin stórsnjöllu hugmynd að kæra útfrá 100 grein, heldur hefði það komið frá þinginu. Spjótin beinast því að skrifstofustjóra alþingis eða eins og Ásta Ragnheiður kallaði hann eitt sinn úr embættisstól sínum: yfirmanni þingsins.
Hér er svar forseta Alþingis við fyrirspurn minni um ákærur vegna atburða í Alþingishúsinu og við það 8. desember 2008. (athugið að hvergi er minnst á 100 greinina í svarinu heldur aðeins fjallað um 106 greinina).
1. Með hvaða hætti var tekin ákvörðun um aðkomu Alþingis að ákærum gegn níu einstaklingum vegna atburða sem áttu sér stað í Alþingishúsinu og við það 8. desember 2008?
Þegar þingfundur hófst á Alþingi kl. 3 síðdegis mánudaginn 8. desember 2008 opnuðu þingverðir bakdyr Alþingishússins til þess að gestir, sem þess óskuðu og fylgdu almennum reglum, kæmust á þingpalla. Þegar fyrstu pallagestir voru komnir í húsið kom hópur manna í kjölfarið og ruddi sér leið fram hjá þingvörðum, sumir með klúta fyrir andliti, og komst upp í stigagang Alþingishússins. Sex þingverðir og lögreglumaður, sem var á vakt í þinghúsinu, lentu í átökum við hópinn þegar hann var stöðvaður. Ýmsir þeirra hlutu meiðsl í átökunum sem kunna að vera varanleg.
Strax í kjölfarið var farið nákvæmlega yfir myndbandsupptöku sem sýndi hvernig hópurinn þröngvaði sér inn í þinghúsið. Þá áttu aðallögfræðingur Alþingis (sá hinn sami og fékk vinnu í síðustu viku sem dómari hjá Héraðsdómi Reykjavíkur) og forstöðumaður rekstrar- og þjónustusviðs samtöl við þingverðina og lögreglumanninn um atvikið. Myndbandsupptakan sýnir að þingvörður, sem átti að gæta inngangsins, var yfirbugaður til að tryggja að mannsöfnuðurinn kæmist óhindraður inn í húsið. Því mátti ætla að hann væri ekki kominn í friðsamlegum tilgangi. (er hægt að kæra út af ályktunum?) Af samtölunum við þingverði og lögreglumanninn varð enn fremur ráðið að hópurinn skirrðist ekki við að beita líkamlegu valdi til að komast í tæri við þingmenn sem sátu í þingsalnum á fundi. (hmm er ekki alveg að skilja hvað þetta þýðir, er það slæmt að komast í tæri við þingmenn? Það er vonlaust að komast í tæri við þingmenn af þingpöllum, miklu mun auðveldara að gera það bara út í kjörbúð). Það var því mat aðallögfræðings Alþingis að rík ástæða væri til að málið yrði rannsakað af lögreglu með tilliti til þess hvort ákvæði almennra hegningarlaga, einkum 106. gr. þeirra, (þarna vantar að fá svar við því hver ákvað að meta það svo að nota ætti 100 greinina, engin hefur gert athugasemd við 106. greinina þó að það hafi verið látið í veðri vaka í umræðunni.) hefðu verið brotin. Þar sem ekki var ljóst hvort lögreglan mundi eiga frumkvæði að rannsókn málsins ákvað skrifstofustjóri Alþingis (næsta skref er að fá þetta bréf birt almenningi), að óska eftir því bréflega fyrir hönd skrifstofu Alþingis og þeirra starfsmanna, sem í átökunum lentu, að málið yrði tekið til lögreglurannsóknar. Áður hafði málið verið borið undir starfsmennina sem hlut áttu að máli.
2. Hver óskaði eftir rannsókn málsins og í umboði hvers var það?
Um fyrri liðinn í þessari spurningu er vísað til svars við 1. tölul. Skrifstofustjóri Alþingis fer með ráðningarvald yfir öðrum starfsmönnum þingsins og ber ábyrgð á rekstri skrifstofu Alþingis, sbr. 11. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991, sbr. 6. gr. laga nr. 68/2007. Hann er því forstöðumaður skrifstofunnar í skilningi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Eins og fram hefur komið urðu starfsmenn þingsins fyrir meiðslum í átökum meðan þeir gegndu skyldustörfum fyrir Alþingi. Forseti Alþingis lítur svo á að á skrifstofustjóra Alþingis hvíli sjálfstæð skylda til að standa vörð um öryggi starfsmanna Alþingis sem og alþingismanna. Að mati forseta er augljóst að skrifstofustjórinn var bær til að taka sjálfstæða ákvörðun um hvort óskað yrði eftir rannsókn á atvikinu. Til þess þurfti hann hvorki atbeina forseta né annarra eins og ýjað er að í spurningunni. (Hvet fólk til að lesa fyrirgreinda málgrein vel og vandlega, oftast er það enginn annar sem sjálfur skrifstofustjórinn sem svarar fyrirspurnum eins og þessari sem þú ert að lesa núna. Hver er yfirmaður þingsins: forseti eða skrifstofustjórinn?)
Þá er til þess að líta að lögreglurannsókn á atvikinu var ekki háð því að sá sem misgert var við eða bar ábyrgð á starfseminni sem brotið var á óskaði eftir henni. Beiðni um rannsókn var því ekki nauðsynleg forsenda þess að rannsóknin færi fram. Hver sem bjó yfir upplýsingum um atburðinn gat aftur á móti vakið athygli lögreglu á að efni væri til að rannsaka málið.
Það er grundvallarregla í réttarríki að þeir sem hafa gerst sekir um refsiverða háttsemi sæti ákæru og séu beittir lögmæltum viðurlögum. Að því vinna lögregla, handhafar ákæruvalds og dómstólar hér á landi sem starfa sjálfstætt og af hlutlægni. Mikilvægt er að þessir aðilar fái svigrúm til að meta atvik í réttu ljósi og án utanaðkomandi þrýstings.
3. Er það rétt sem fram kom í máli verjanda tveggja hinna ákærðu fyrir héraðsdómi að skrifstofa Alþingis hafi haft aðkomu að málinu og ef svo er, hver var sú aðkoma og hver var formlegur grundvöllur hennar?
Sjá svar við fyrri töluliðum fyrirspurnarinnar.
Ljóst er að enginn vill gangast við því að leggja til að 100 greinin var notuð: Ég skora á þann aðila, hvort heldur þáverandi saksóknara, skrifstofustjóra þingsins, aðallögfræðing þingsins eða forseta þingsins að svara þessu með afgerandi hætti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
10.3.2010 | 07:33
immi á Al Jazeera
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.3.2010 | 14:34
Samstaða með Tíbetum Í tilefni að 51 ára afmæli "Tibetan Uprising"
Vinir Tíbets taka þátt í alþjóðaaðgerð til að sýna tíbesku þjóðinni stuðning í baráttu þeirra fyrir mannréttindum og trúfrelsi. Safnast verður saman fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðimel 29, miðvikudaginn 10. mars kl: 17:30. Tsewang Namgyal flytur erindi um ástandið í Tíbet. Birgitta Jónsdóttir fer yfir í stuttu máli hvað við getum gert til að treysta böndin á milli þjóðanna.
Í Tíbet getur það varðað margra ára fangelsi að eiga fána Tíbets. Í Tíbet búa nú fleiri Kínverjar en Tíbetar. Í Tíbet er tungumálið að glatast. Í Tíbet hafa verið herlög í meira en tvö ár og harkan gagnvart íbúum landsins virðist engan enda taka. Fyrir tveimur árum síðan lýsti Dalai Lama ástandinu í Tíbet á þann veg að þar væri verið að fremja menningarlegt þjóðarmorð.
Fjölmennum og sýnum tíbesku þjóðinni samstöðu í verki.
5.3.2010 | 07:19
Fjölmiðlafríríkið Ísland!
Opinn hádegisfundur Félags stjórnmálafræðinga.
Félag stjórnmálafræðinga efnir til opins hádegisfundar í samstarfi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna.
Fundurinn verður föstudaginn 5. mars í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands. Hann hefst klukkan 12:00 og lýkur klukkan 13:00.
Á fundinum verða ræddar hugmyndir um að gera Ísland að griðastað alþjóðlegrar fjölmiðlunar, fjórða valdið og tengsl frjálsrar fjölmiðlunar og lýðræðis.
Kynnt verður tillaga til þingsályktunar um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis sem nú er í meðförum Alþingis.
Að loknum stuttum framsögum verða umræður og tekið verður við spurningum úr sal.
Eftirfarandi verða gestir í pallborði:
Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður og 1. flutningsmaður þingsályktunartillögu.
Elva Björk Sverrisdóttir, varaformaður Blaðamannafélags Íslands.
Julian Assange, blaðamaður og stofnandi vefsíðunnar Wikileaks.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri er Svavar Halldórsson formaður félags stjórnmálafræðinga.
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar: Icelandic Modern Media Initiative
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.3.2010 | 06:23
Kjósum með fótunum í göngunni niður Laugaveg
Fréttatilkynning frá grasrótinni
Nú hafa nokkrir grasrótarhópar ákveðið að standa fyrir kröfugöngu frá Hlemmi laugardaginn 6. mars kl 14. Gengið verður niður Laugarveginn og að lokinni göngu verður haldinn útifundur á Austurvelli kl. 15.
Ræðumenn verða Andrés Magnússon læknir og Júlíus Valdimarsson húmanisti. Á fundinum verður Alþingi götunnar stofnað. Magnús Þór Sigmundsson mun syngja. Hljómsveitin Stjörnuryk mun flytja lag.
Helstu áhersluatriði Alþingis götunnar eru:
Leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, fyrningu lána við þrot, jöfnun ábyrgðar og að fjárglæframenn Íslands séu hvorki stikkfrí né endurreistir, AGS í úr landi, manngildið ofar fjármagni, aukin völd til almennings, bættur neytendaréttur.
Trommusláttur og lúðrablástur mun fylgja með niður Laugaveginn. Mælst er til þess að göngumenn taki með sér potta, pönnur, flautur eða annað sem getur framkallað hóflegan hávaða. Takið með kröfuspjöld.
Gerum næsta laugardag að sögulegum degi. Fjölmennum við formlega stofnun Alþingis götunnar. Gefum skýr skilaboð til umheimsins, lýðræðið er númer eitt, valdið er fólksins.
Gerum Alþingi götunnar að stórviðburði. Ekki láta þig vanta. Tölum einum rómi með samtökunum okkar. Látum það ekki fara neitt á milli mála hver vilji okkar er. Kjósum með fótunum í göngunni niður Laugaveg.
Hagsmunasamtök heimilanna,
Nýtt Ísland,
Attac samtökin á íslandi,
Siðbót,
Húmanistafélagið,
Rauður vettvangur,
Vaktin,
Aðgerðahópur Háttvirtra Öryrkja.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2010 | 09:50
Ísland marki sér lagalega sérstöðu á heimsvísu í þágu tjáningar- og upplýsingafrelsi
Ráðgjafar og stuðningsmenn ályktunarinnar eru aðilar sem hafa víðtæka reynslu og yfirsýn yfir ástand mála þegar kemur að skerðingu tjáningar og upplýsingafrelsi í heiminum. Ber þar helst að nefna Evu Joly, Julian Assange aðalritstjóra wikileaks, hinn virta breska rannsóknarblaðamann Martin Bright, Smára McCarthyfrá félagi um stafrænt frelsi og David Dadge en hann veitir TheInternational Press Institute forstöðu.
Eva Joly sagði um ályktunina eftirfarandi með leyfi forseta:
Ég er stolt af því að vera til ráðgjafar til að tryggja alþjóðlega vernd fyrir rannsóknarblaðamennsku. Í huga mér inniber þessi ályktun sterk skilaboð og hvatningu til eflingar heilinda og gagnsæis hjá ríkisstjórnum víðsvegar um heim, þ.á.m. á Íslandi. Í starfi mínu við rannsóknir á spillingu hef ég orðið vitni af því hve mikilvægt það er að hafa öflugt regluverk til tryggja aðgengi almennings að upplýsingum. Ísland getur með nýstárlegri sýn á samhengi tilverunnar og vegna tilhneigingar til að fara sínar eigin leiðir orðið hinn fullkomni staður til að hrinda af stað verkefni af þessu tagi sem yrði til þess að efla gagnsæi og réttlæti á heimsvísu.
Hrunið varð til þess að þjóðin vaknaði og þurfti að horfast í augu við að ekki var allt sem sýndist í samfélaginu okkar, en með því að taka höndum saman náðum við að koma á sögulegum breytingum. Ríkisstjórnin var þvinguð til að segja af sér, seðlabankastjórinn og stjórn fjármálaeftirlitsins voru jafnframt neydd til afsagnar. Íslendingar áttuðu sig á því að með samtakamætti gætu raunverulegar breytingar orðið að veruleika.
Fólk áttaði sig á því að innviðir samfélagsins sem það hafði reitt sig á höfðu brugðist. Akademíska stéttin, ríkisstjórnin, þingheimur, Seðlabankinn og fjölmiðlar brugðust öll hlutverki sínu. Almenningur áttaði sig á því að fjölmiðlar landsins voru máttlausir, að gagnsæi skorti, að spillingin var víðtækari en menn óruðu fyrir og til þess að getað lifað í heilbrigðu samfélagi yrði almenningur að taka þátt í að móta það.
Fólkið í landinu hefur áttað sig á því að það þarf að gera grundvallarbreytingar sem lúta að lýðræðisumbótum og að ný löggjöf sem byggir á gagnsæi og pólitískri ábyrgð er nauðsynleg.
Vegna þess hve heimurinn er samofinn á flestum sviðum, sér í lagi þegar kemur að frjálsu flæði fjármála og upplýsinga er deginum ljósara að þær tálmanir á birtingu upplýsinga sem almenningur á rétt á að hafa aðgang að er ekki aðeins okkar vandamál, heldur hnattrænt vandamál. Réttur almennings til að skilja hvað er að gerast í samfélögum þeirra þarf að verða styrktur. Með því að setja hér bestu mögulegu löggjöf sem völ er á til að tryggja öruggt starfsumhverfi fyrir þá hugrökku blaðamenn og rithöfunda sem margir hverjir hafa misst vinnu sína við að fjalla um efni þeirra sem eitthvað hafa að fela og vilja leggja allt í sölurnar til að halda huldu, með því erum við að standa vörð um réttlæti, heiðarleika og mannréttindi.
Julian Assange aðalritstjóri Wikileaks hafði eftirfarandi að segja um þingsályktun þessa: með leyfi forseta;
Wikileaks er álitið leiðandi afl þegar kemur að birtingu efnis sem oft er haldið frá almennri umræðu og varðar spillingu. Til að afhjúpa spillingu höfum við þurft að leggja mikið á okkur. Til að mynda höfum við þurft að dulkóða samskipti okkar, dreifa starfseminni um víða veröld og verja hærri fjárhæðum til málareksturs fyrir dómstólum en gagnaðilar okkar sem í einu tilfelli var stærsti svissneski einkabankinn.
En það er ekki hægt að ætlast til að allir útgefendur og félagasamtök geti staðið undir slíku fjárhagslegu álagi. Jafnvel stórir fjölmiðlar á borð við BBC og mörg stærri dagblöð veigra sér reglulega við að birta fréttir af ótta við íþyngjandi kostnaði við málarekstur. Smærri baráttuaðilar gegn spillingu, allt frá GlobalWitness til TCI Journal eru hundeltir heimshorna á milli til að koma í veg fyrir þessir aðilar geti flutt fréttir eða komið upplýsingum til almennings. Það er kominn tími til að slíkum ofsóknum verði hætt. Það er kominn tími til að alþjóðasamfélagið spyrni við fótum og segi hingað og ekki lengra, sannleikurinn þarf að vega þyngra en fjárhagslegur styrkur, sagan verður að haldast varðveitt án tilrauna til að fjarlægja hana úr upplýsingasamfélaginu. Við sem stöndum að baki wikileakserum stolt af því að hafa verið til ráðgjafar við gerðþingsályktunartillögun
Index on Censorship, leiðandi bresk samtök á sviði frjálsrar fjölmiðlunar lýstu stuðningi á eftirfarandi máta, með leyfi forseta, Samhæfing og nútímavæðing upplýsinga og málfrelsislöggjafar sem þessi ályktun felur í sér tekur á lykilatriðum varðandi tjáningarfrelsi á stafrænum tímum og gæti reynst farvegur lagalegra umbóta sem eru öllum lýðræðisþjóðfélögum nauðsynleg á 21. öldinni.
Í nýlegri grein í New York Times er haft eftir David Ardia, sem hefur umsjón með verkefni um lagaumhverfi borgaralegrar fjölmiðlunar í Harvard, með leyfi forseta; Ef Ísland gerir þessa löggjöf að veruleika er líklegt að áhrifa hennar muni gæta til langframa. Hann laut lofi á þá skynsemi sem lægi á baki þess að búa til heildræna löggjöf um öflun, dreifingu og lesningu frétta í hinu stafræna umhverfi. Hin heildræna sýn og löggjöf er dýrmætt verkfæri þegar kemur að því að skapa umhverfi til að hlúa að vandaðri blaðamennsku. Valdamiklar stofnanir hafa sýnt í verki vilja sinn til að notfæra sér völd sín til að hindra að fréttir sem þeim hugnast ekki séu fluttar. Allt það sem tryggir jafnræði í þeim ójafna leik er til hins góða.
Aldrei hefði mig órað fyrir þeim mikla stuðning og athygli sem þetta verkefni hefur fengið um heiminn allan. Það sýnir svo ekki er um að villast að rík þörf er á að leggja fram heildræn lög, ekki bara um þennan málefnaflokk heldur öllu jafna um allt sem þarf að endurskoða í ljósi þess hve ört heimurinn okkar breytist. Ég vona að sú góða samvinna sem um þetta mál hefur mótast muni halda áfram innan þings sem utan. Það er ljóst að þessi löggjöf mun ekki leysa þann vanda sem íslenskir fréttamenn standa frammi fyrir þegar kemur að starfsöryggi, en þetta mun með sanni efla aðgengi þeirra að upplýsingum og verndun á samskiptum heimildarmanna og fréttamanna er eitthvað sem er afar brýnt hérlendis vegna fámennis.
David Dadge, forstöðumaður, International Press Institute: sendi frá sér eftirfarandi stuðningsyfirlýsingu,með leyfi forseta;
Félagasamtök okkar hafa barist fyrir frelsi fjölmiðla í hjartnær 60 ár, þess vegna fögnum við af fullri einurð ályktun sem fara mun fyrir íslenska þingið á næstunni. Með því að velja það besta frá núgildandi lögum víðsvegar um heim og setja þau saman í heilstæða mynd, getur Ísland orðið að sterku leiðarljósi fjölmiðlafrelsis á heimsvísu. Þingsályktunin býður upp á trausta löggjöf til verndar málfrelsi, gagnsæi, vernd heimildarmanna, vernd innri samskipti fjölmiðla, vernd frá meinyrðamálaflakki, vernd fyrir þá sem reka vefþjóna og hýsa efni fyrir fjölmiðla, sem og vernd gegn lögbannskröfum á efni áður en það er birt. Ísland hafði mjög gott orð á sér í alþjóðasamfélaginu þegar kom að frelsi fjölmiðla, þessi löggjöf mun renna styrkari stoðum undir fjölmiðla landsins og endurheimtur á þeim góða orðstír sem fór af landinu áður en til bankahrunsins kom.
Við hjá IPI vonum að restin af heimbyggðinni, sér í lagi þau lönd sem hafa verið hve öflugust í að tryggja vernd fjölmiðlunar, munu taka sér Ísland til fyrirmyndar og skapa áþekka löggjöf, viðbíðum spennt eftir að sjá hvernig þessu muni farnast á íslenska þinginu.
Við verðum að vera búin að koma okkur saman um það hvert við stefnum varðandi upplýsingar og gagnsæi áður en skýrslan kemur frá rannsóknarnefndinni. Það er mikilvægt að finna tón samstöðu til að fyrirbyggja að við stöndum aftur í sömu sporum og við gerum núna. Það er einlæg von mín að við getum risið upp úr rústum fjárglæfra, siðrofs og niðurlægingar með stefnu á eitthvað í farateskinu sem færir okkur aftur einskonar stolt yfir því að tilheyra þessu örsamfélagi okkar úti við jaðar heimsins á forsendum sem sýna hvað það er sem þjóðin vill hlú að eins og kom fram á þjóðfundinum: heiðarleiki, frelsi, jafnrétti og réttlæti.
Smelltu hér til að sjá þessa ræðu í samhengi á Skuggaþingi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Nýja Ísland
Ég les:
Tíbet
- Fréttir frá Tibet
- Tibet Info Net An Independent Information Service on Contemporary Tibet
- Undercover in Tibet Ný heimildarmynd frá Channel 4 um hvernig ástandið er í raun og veru í Tíbet
- Leaving Fear Behind Viðtöl við Tíbeta í Tíbet stuttu fyrir mótmælin í mars
- Cry of the Snow Lion Margverðlaunuð heimildarmynd um Tíbet
- Yeti - heimildarmynd
- Yogis of Tibet Heimildarmynd um Jógameistara Tíbets sem eru óðum að hverfa
- Students for a Free Tibet
- Dalai Lama
- Tibetan Uprising
- Kerti fyrir Tíbet
- Tibet TV
- Central Tibetan Administration
- Om mani padme hum
Ýmsar slóðir
sem ég man eftir í andartakinu
- The Hunger Site
- THE MEATRIX
- Myspace síðan mín
- Úgáfan Beyond Borders Alþjóðleg útgáfa sem ég stofnaði árið 1999 í netheimum
- Hitt bloggið mitt
- Félagið Ísland-Palestína
- Womb of Creation Vefurinn minn sem ég hef haldið við síðan 1995
- Myspace síðan hennar mömmu
- Saving Iceland
- Be the change:)
- Náttúra vefur með umhverfisvitund
- Nattura info
- Care 2 make a Difference
Bækur
Bækurnar mínar
-
: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni -
: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra. -
: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónhlaða
Bloggvinir
-
ADHD
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Alexandra Briem
-
Andrés Magnússon
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Ari Sigurðsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Baldvin Jónsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Bergur Sigurðsson
-
Bergur Thorberg
-
Bergur Þór Ingólfsson
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Binnan
-
Birgir Þórarinsson
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Bjargandi Íslandi
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
SVB
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja skordal
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Daníel Haukur
-
Dorje
-
Dísa Dóra
-
Egill Bjarnason
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Guðjónsson
-
Einar Indriðason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Ólafsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Eldur Ísidór
-
Elyas
-
Elín Sigurðardóttir
-
Elísabet Markúsdóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Eydís Hentze Pétursdóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Finnur Bárðarson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Fríða Eyland
-
Félag Anti-Rasista
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gaukur Úlfarsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
Goggi
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gunnar Pétursson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Bergmann
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðmundur Helgi Helgason
-
Guðmundur M Ásgeirsson
-
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðný Lára
-
Guðrún S Sigurðardóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Hjálmar
-
Haffi
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannibal Garcia Lorca
-
Haukur Már Helgason
-
Heidi Strand
-
Heilsa 107
-
Heiða Þórðar
-
Helga Auðunsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlekkur
-
Hlynur Hallsson
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Hlédís
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Hulla Dan
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Húmoristaflokkurinn
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingibjörg Helga
-
Ingibjörg SoS
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Isis
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Johann Trast Palmason
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Bjarnason
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jón Sigurgeirsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þór Ólafsson
-
DÓNAS
-
Katrín Mixa
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Ketill Sigurjónsson
-
Ketilás
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristbergur O Pétursson
-
Kristján B. Jónasson
-
Kristján Kristjánsson
-
Kristján Logason
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Snorradóttir
-
Krummi
-
Kári Harðarson
-
Landvernd
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Árnason
-
Mafía-- Linda Róberts.
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Margrét Lóa Jónsdóttir
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
María Kristjánsdóttir
-
María Pétursdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Morgunblaðið
-
Myndlistarfélagið
-
Mál 214
-
Máni Ragnar Svansson
-
Neo
-
Oddi
-
Paul Nikolov
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pálmi Guðmundsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Rannveig H
-
Ransu
-
Róbert Björnsson
-
Rögnvaldur Hreiðarsson
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samstaða - bandalag grasrótarhópa
-
SeeingRed
-
Sema Erla Serdar
-
Sigga
-
Signý
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigurgeir Þór Hreggviðsson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Sigurður Hrellir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Skuldlaus
-
Snorri Sturluson
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
-
Stríða
-
Sveinbjörn Eysteinsson
-
Sveinn Hjörtur
-
Sveinn Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Swami Karunananda
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Finnbogason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
TARA
-
Tilkynning
-
Tinna Jónsdóttir
-
Trausti Traustason
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Tína
-
TómasHa
-
Valgeir Skagfjörð
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Vilhelmina af Ugglas
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Vinir Tíbets
-
Viðar Eggertsson
-
Viðar Freyr Guðmundsson
-
Vér Morðingjar
-
Vésteinn Valgarðsson
-
arnar valgeirsson
-
fingurbjorg
-
hreinsamviska
-
leyla
-
molta
-
oktober
-
Einhver Ágúst
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Ár & síð
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Ásgerður
-
Ásta Hafberg S.
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf de Bont
-
Ómar Ragnarsson
-
Óskar Arnórsson
-
Örlygur Hnefill Örlygsson
-
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
-
Þröstur Unnar
-
Þór Jóhannesson
-
Þór Saari
-
Þórhildur og Kristín
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Andrés.si
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Ari Jósepsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Barði Bárðarson
-
Bergþór Gunnlaugsson
-
Billi bilaði
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bogi Jónsson
-
brahim
-
Daði Ingólfsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Dóra litla
-
Dúa
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elsabet Sigurðardóttir
-
Esther Anna Jóhannsdóttir
-
Frosti Sigurjónsson
-
Grétar Eiríksson
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hreyfingin
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jack Daniel's
-
Jóhann Ágúst Hansen
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jóhann Pétur
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Jónas Bjarnason
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Lárusson
-
Karl Gauti Hjaltason
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Madhav Davíð Goyal
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Morten Lange
-
Óðinn Kári Karlsson
-
Ólafur Eiríksson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Rannsóknarskýrslan
-
Rúnar Freyr Þorsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Vaktin
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson