Leita í fréttum mbl.is

Bandormsræða 2

Hér eru rök mín fyrir að samþykkja EKKI bandorm meirihlutans:

Virðulegi forseti

Hvar er ríkisstjórnin – væri ekki eðlilegt að hún væri hér að verja þennan skelfilega gjörning sem bandormurinn hennar er?

Hvar er vonin sem þjóðin þarf svo sárlega á að halda? Hana er ekki að finna í áherslum ríkisstjórnarinnar, því nú hefur hin svokallað skjaldborg umbreyst í gjaldborg.

Ég hef gefið mér tíma til að tala við þá hugrökku öryrkja sem hafa staðið vaktina fyrir utan þinghúsið. Mér finnst ljótt að bæta á áhyggjur fólks sem nú þegar berst í bökkum ofan á það að búa við heilsubrest. Mér finnst það algerlega óafsakanlegt. Þetta ágæta fólk býr við næga óvissu til að bæta þessu ekki ofan á.

Því er Hæstvirtur forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir ekki hér til að verja lagasetningu sem hrifsar það sem hún barðist fyrir með kjafti og klóm til handa öryrkjum og ellilífeyrisþegum? Getur það verið rétt, að hæstvirtur forsætisráðherra stjórni ekki landinu heldur séu öll okkar ríkisfjármál og jafnvel pólitískar áherslur runninn undan rifjum Alþjóðagjaldeyrissjóðnum? Sagt var hér fyrr í dag að það væri þekkt aðferð hjá AGS að láta hýsilinn sinn skera niður í þá hópa sem síst mega við því – það er gert til að öðlast trúverðugleika í alþjóðasamfélaginu um að þetta sé allt gert af mikilli alvöru og engum verði eirt til að tryggja stöðugleika. Er þetta eitthvað sem við viljum taka þátt í? Er þetta eitthvað sem hægt er að verja?

Ríkisstjórnin virðist hafa villst frá vinstri vængnum og ástundar nú meiri nýfrjálshyggju með niðurskurði sínum en sá flokkur sem gjarnan er kenndur við nýfrjálshyggju.

Nú hef ég hlustað á áherslur og lausnir hjá öllum flokkunum sem sitja á þingi og ég held að ef ríkisstjórnin væri einhver alvara með samvinnu og samráð að hún ætti hreinlega að setja þennan bandorm í endurvinnsluna – þiggja aðstoð frá minnihlutanum – ég held nefnilega að það væri skynsamlegt að nýta sér þá margvísilegu styrkleika sem hér eru til innanhúss – þá ólíku sýn sem hér fyrirfinnst – ef hæstvirt ríkisstjórn væri alvara með að vinna sameiginlega að lausnum þá ætti hún að boða til alvöru samráðs – ég held að þá gætum við náð utan um þetta risavandamál saman og fengið stærri sýn á orsök og afleiðingu þeirra gjörninga sem boðaðir eru hér. Þá getum við komist hjá því að gera alvarleg mistök – því að það er ljóst að margt af því sem hér er kynnt er ekki alveg hugsað til enda.

Tökum bara niðurskurð sem tengist öldruðum og öryrkjum sem dæmi: þetta er aðeins um 1800 milljónir – það er bara dropi í hafið af þeim niðurskurði sem á að framkvæma.
Ég sat í fjárlaganefnd í fjarveru Þórs Saari og hlustaði þar á velferðarráðuneytin okkar tala um að þau væru komin að þolmörkum og að niðurskurður næsta árs myndi þýða uppsagnir og lokanir á stofnunum. Það hlýtur að vera til önnur lausn en sú sem er boðuð með þessum aðgerðum. Ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekki heildarlausn en það er aldrei bara til ein leið. Það væri ef til vill ekki vitlaust fyrir ríkisstjórnina að byrja á réttum enda og til dæmis skera niður ofurlaun skilanefndamanna sem hlaupa víst á milljónum í mánaðarlaun. Það kostar okkur 500 milljónir að taka þátt í bókaráðstefnu og 140 milljónir að taka þátt í heimssýningu í Kína – þetta eru nú bara nokkur atriði sem detta inn í huga mér núna, ég er alveg viss um að það mætti með smá hugarflugi finna leiðir til að seilast í aðra vasa en hálftóma vasa heldri borgara og hæstvirtra öryrkja.

Ég hefði átt von á heildrænni aðgerðum en að setja frekari skatta á heimilin í landinu án þess að aftengja vísitöluna – því jafnvel sykurskatturinn mun hækka húsnæðislánin hjá fólki sem berst í bökkum nú þegar og hjá þeim má lítið út af bera til að þau fari hreinlega í greiðsluþrot.

Ég skilaði ein séráliti í fjárlaganefnd þar sagi ég meðal annars:
Því er alveg ljóst að það myndi brjóta gegn stefnu Borgarahreyfingarinnar að samþykkja þessa aðferð til að standast fjárlög. Við erum alfarið á móti þeim niðurskurði sem boðaður er í heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Við teljum að með því að fylgja ráðgjöf og rammaáætlun AGS séum við að hefja vegferð sem mun enda á því að veikja svo mjög undirstöður velferðarkerfis okkar að það mun á endanum verða þjóðinni dýrkeyptara en svo að hægt sé að réttlæta það. Borgarahreyfingin skorar á hæstvirta ríkisstjórn að leita annarra leiða til að laga halla ríkissjóðs og styður almennt aðhald í ríkisfjármálum án þess þó að núverandi ríkisstjórn svíki kosningaloforð sitt um að standa vörð um velferðina. Ljóst er að bandormur þessi mun ekki standast ef marka má skýrslur úr ráðuneytunum. Því væri heillaráð að vinna betur að gerð hans og jafnvel horfast í augu við að halla ríkissjóðs verði ekki mætt með þeim aðferðum sem boðaðar eru í honum.

Frú forseti ég hef fullan skilning á því að þessi ríkisstjórn standi frammi fyrir því sem næst ókljúfanlegum vanda – en Afsakið æruverðugi forseti, er þetta ekki ríkisstjórnin sem boðaði að staðið yrði vörð um velferðarkerfið FYRIR kosningar?


mbl.is Boðar auknar álögur á áfengi og tóbak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andrés.si

Einmitt fyrir nokkrum dögum skrifaði ég grein í erlend tímarít og svo blog  um Icesave.  Niðurstaða pælingar er þannig að það á ekki að skrífa neitt undir. Ekki vegna ástæður sem öllum eru almennt fyrir auga og eyru heldur vegna samsæriskenning sem er rætur eru djúp í alþjóða pólitíkini. Þar snerti ég einnig allar þessar byggingar sem tómar eru í dag, interpol og að auki geðveiki landsmanna hér á Íslandi :)

Greinin kemur ekki út sem stendur á Íslandi, en skal bloga hér mbl eftir þýðingu.  

Andrés.si, 27.6.2009 kl. 13:43

2 Smámynd: Fríða Eyland

Kvitt, fín ræða

Fríða Eyland, 27.6.2009 kl. 18:01

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk og hlakka til að lesa grein Andrésar!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 27.6.2009 kl. 19:07

4 Smámynd: Andrés.si

Hvernig sem minn grein litur út er niðurstaðan altaf eins. Borga ekki.  Það er sko mál þess vegna Rockfellera en ekki mitt mál. Afleiðing þess verður flottamanna straumur sem mætti koma til Íslands á næstum árum.  Svo einfalt er það.

Andrés.si, 27.6.2009 kl. 19:45

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mikið er ég stolt af þér, þú ert að standa þig svo vel í þinginu.  Hinir þingmenn Borgarahreyfingarinnar eru líka góðir, sérstaklega Þór Saari.  Svo er  hér hugmynd að taka áfengi, tóbak og bensín út úr vísitölugrunninum.  Ef það á að vera það sem skattleggja á sérstaklega. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.6.2009 kl. 02:09

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þessi ræða um bandorminn er líka mjög góð eins og sú fyrri en þegar ég les hana svona strax á eftir þá fyrri þá dettur mér barátta Davíðs við Golíat í hug. Vonandi endar hin hreinlynda barátta þín og hinna í Borgarahreyfingunni á þann hátt að þið sigrið þau ofurmannlegu öfl sem þið eigið í höggi við.

Hef oft óskað þess að Borgarahreyfingin hefði fengið fleiri þingmenn en sjaldnar eins heitt og þegar ég sé það svart á hvítu í þessum ræðum þínum hve trú þú ert þeim málstað sem Borgarahreyfingin lofaði að standa fyrir kæmi hún mönnum inn á þing í nýliðinni kosningabaráttu.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 1.7.2009 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 508717

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.