Leita í fréttum mbl.is

Borgarahreyfingin bætir við sig mestu fylgi

Samkvæmt þessari skoðanakönnun bætir Borgarahreyfingin - þjóðin á þing við sig mestu fylgi eða úr 2,5% í 3,4%.

Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir okkur sem erum að vinna að því hörðum höndum að bjóða upp á þennan valkost í komandi kosningum. Ég er sannfærð um að við náum fólki inn - miðað við þann stöðuga meðbyr sem við finnum fyrir úti í samfélaginu - aðalatriðið er að almenningur fái vitneskju um tilvist okkar - ætla að skella hér inn stefnuskránni okkar ef einhver er að lesa bloggið mitt sem ekki þekkir til XO.

 

Réttlæti — siðferði — jafnrétti Basic RGB

Gripið verði þegar í stað til neyðarráðstafana í þágu heimila og fyrirtækja

1. Alvarleg skuldastaða heimilanna verði tafarlaust lagfærð með því að færa vísitölu verðtryggingar fram fyrir hrun hagkerfisins (til janúar 2008). Höfuðstóll og afborganir húsnæðislána lækki til samræmis við það. Raunvextir á verðtryggðum lánum verði að hámarki 2–3% og afborgunum af húsnæðislánum megi fresta um tvö ár með lengingu lána. Skuldabyrði heimila vegna gengistryggðra íbúðalána verði lagfærð í samræmi við verðtryggð íbúðalán. Í framhaldinu verði gert samkomulag við eigendur verðtryggðra húsnæðislána um að breyta þeim í skuldabréf með föstum vöxtum og verðtryggingarákvæði í lánasamningum verði afnumin.

2. Leitað verði leiða út úr myntvanda Íslands með myntbandalagi við aðrar þjóðir eða, ef þess þarf, einhliða upptöku annars gjaldmiðils.

3. Boðin verði víðtæk aðstoð við atvinnulausa um allt land með það að markmiði að aðstoða þá í að nýta atvinnuleysið sem tækifæri.

4. Skuldsett fyrirtæki verði boðin til sölu og tilboðum aðeins tekið ef ásættanlegt verð fæst. Annars verði starfsfólkinu leyft að taka yfir fyrirtæki. Skuldir eigenda verði ekki felldar niður sjálfkrafa en veita má hagstæð lán eða breyta skuldum lífvænlegra fyrirtækja í hlutafé í eigu ríkisins frekar en að afskrifa skuldir.

5. Halla á ríkissjóði verði mætt með endurskoðun skattkerfisins, m.a. með fjölgun skattþrepa, hátekjuskatti og breytingum á virðisaukaskatti, frekar en niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fái ekki að taka yfir stjórn á landinu.

6. Strax verði hafist handa við að meta heildarskuldir þjóðarbúsins og að því loknu gert upp við lánardrottna eftir bestu getu. ICESAVE-reikningar Landsbankans og aðrar skuldir bankanna erlendis verði ekki greiddar fyrr en álit óháðra sérfræðinga liggur fyrir um skyldur Íslands, m.t.t. þess að sennilega hafi verið um svikamyllu að ræða en ekki eðlilega bankastarfsemi. Rannsakað verði hvað varð um allar færslur á reikningum bankanna erlendis sem og lánveitingar þeirra til tengdra aðila, fjármunirnir sóttir og þeim skilað til eigenda. Stjórnendur og eigendur bankanna verði gerðir ábyrgir fyrir því sem upp á vantar. Samið verður við grannþjóðirnar um það sem út af stendur m.t.t. neyðarástands efnahagsmála á Íslandi og reynt að fá þær skuldir niðurfelldar. Samhliða því verði gefið loforð um að 2% af VLF Íslands renni til þróunaraðstoðar á ári í tíu ár til að sýna góðan vilja Íslendinga til að verða ábyrg þjóð meðal þjóða.

Landsmenn semji sjálfir sína eigin stjórnarskrá

1. Þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um mál sem varða þjóðarhag óski 7% þjóðarinnar þess. Sama skal gilda um þingrof.

2. Bera skal alla samninga sem framselja vald undir þjóðaratkvæðagreiðslu.

3. Rofin verði öll óeðlileg hagsmunatengsl milli viðskiptaheims og þingheims.

4. Viðurkenna skal þau sjálfsögðu mannréttindi að vægi atkvæða í alþingiskosningum verði jafnt, sbr. 1. gr. Mannréttindayfirlýsingar S. Þ., enda sé það í samræmi við hugmyndir um aukið vægi þjóðaratkvæðisgreiðslu um einstök mál. Það er augljóst að ekki gengur að láta suma landsmenn hafa meira vægi en aðra í þjóðaratkvæðagreiðslu.

5. Fjöldi þingmanna miðist við fjölda á kjörskrá og verði hlutfallið 1/4000. Það er í samræmi við algengt hlutfall hjá öðrum þjóðum sem við berum okkur saman við. Þetta myndi þýða örlitla fækkun þingmanna frá því sem nú er en hægfara fjölgun í framtíðinni með vaxandi fólksfjölda.

6. Kjördæmaskipan verði endurskoðuð og kjördæmum á suðvesturhorninu fækkað úr þremur í eitt.

7. Tryggð verði skipting valdsins milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds, m.a. með því að ráðherrar sitji ekki á þingi.

8. Ráðherrar, þingmenn og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins gegni embætti í mesta lagi í átta ár eða tvö kjörtímabil samfellt.

9. Fyrstu málsgrein 76. greinar stjórnarskrárinnar verði breytt til samræmis við Mannréttindayfirlýsingu S. Þ. um réttinn til lífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan. 76. gr. verði á þessa leið eftir breytingu: „Öllum skal tryggður réttur til grunnlífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og lífsviðurværi þeirra sjálfra og fjölskyldu þeirra. Grunnlífskjör teljast vera nauðsynleg næring, hreint vatn, klæði, húsnæði, læknishjálp og félagsleg þjónusta, svo og réttur til öryggis vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, fyrirvinnumissis, elli eða annars sem skorti veldur og menn geta ekki við gert.“ Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. 10. Allar náttúruauðlindir verði í þjóðareigu og óheimilt að framselja þær nema tímabundið og þá aðeins með viðurkenndum gagnsæjum aðferðum þar sem fyllsta jafnræðis og arðs er gætt.

Trúverðug rannsókn á íslenska efnahagshruninu fari af stað undir stjórn óháðra erlendra sérfræðinga og fari fram fyrir opnum tjöldum. Frysta skal eignir grunaðra auðmanna STRAX meðan á rannsókn stendur

1. Tafarlaust verði sett í gang opinber rannsókn undir stjórn erlendra sérfræðinga á hruni íslenska efnahagskerfisins. Samhliða því verði sett lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára, þ.m.t. gerninga skilanefnda bankanna, og í undantekningartilfellum lengra aftur í tímann ef sýnt þykir að um óeðlilega gjörninga hafi verið að ræða.

Lögfest verði fagleg, gegnsæ og réttlát stjórnsýsla

1. Ráðningar og skipanir í embætti og þ.a.l. uppsagnarfrestur allra embættismanna sé í samræmi við það sem almennt gerist hjá stjórnendum á vinnumarkaði. Nánari útfærsla verður gerð í samráði við Kjararáð.

2. Tiltekinn minnihluti þingmanna geti boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt.

3. Hæfi umsækjenda um störf hæstaréttar- og héraðsdómara verði metið af hlutlausri fagnefnd skipaðri af Alþingi eftir tilnefningu Hæstaréttar. Ráðherra beri að velja dómara úr hópi þeirra sem fagnefndin telur hæfasta.

4. Ráðið verði í stöður innan stjórnsýslunnar á faglegum forsendum.

5. Fastanefndir þingsins verði efldar. Nefndarfundir verði almennt haldnir í heyranda hljóði. Gerð verði krafa um að fastanefndir afgreiði öll mál og skili niðurstöðu innan ákveðins tíma.

6. Settar verði siðarreglur fyrir alþingismenn, ráðherra og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins og til þess ætlast að þeir m.a. geri grein fyrir öllum eignum og skuldum, stjórnarsetu í fyrirtækjum og upplýsi jafnharðan um allar breytingar á þessu sviði. Þingmenn, ráðherrar og embættismenn beri ábyrgð á gjörðum sínum.

Lýðræðisumbætur STRAX

1. Stjórnlagaþing fólksins í haust

2. Persónukjör í alþingiskosningum

3. Afnema 5% þröskuldinn

4. Þjóðaratkvæðagreiðslur

5. Ný framboð fái sama tíma í fjölmiðlum og sama stuðning og aðrir stjórnmálaflokkar

Borgarahreyfingin leggur sig niður og hættir störfum þegar þessum markmiðum hefur verið náð eða augljóst er að þeim verður ekki náð.


mbl.is VG upp fyrir Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já pældu í því, en ég er ekki sannfærður og það versta við þetta að þið eruð eki að taka eitt einasta atkvæði frá Sjálfstæðis eða Framsóknarflokki. Það er gallinn við þetta allt saman, það vita allir að Borgarahreyfingin er full af fólki frá vinstri, sennilega ekki einn einasti hægrimaður. Það væri svo ljótt ef úrslit kosninganna yrðu þau að ykkar prósent yrðu til að koma þessum fyrrnefndum flokkum til valda. En ef þið kæmust í oddastöðu þá yrði það til góðs aftur á móti. Þú hlýtur að skilja þessar áhyggjur mínar? Svo ef þið verðið undir 5% þá fá hægri flokkarnir ef til vill einum þingmanni meira á kostnað vinstriflokanna.

Valsól (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 07:44

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Valsól - hverjir eru þessir allir? Ég veit ekki betur en borgarahreyfingin er þverpólitísk hreyfing - þar er meira að segja meiri hægri slagsíða ef eitthvað er:) Flestir sem sagst hafa ætlað að kjósa okkur er fólk sem hefði hvort er skilað auðu eða kosið XD. Veit ekki hvaðan þú hefur þínar vangaveltur en ég held að flestir sem ætla að kjósa til dæmis VG munu gera það því þar ríkir ekki sama pólitíska tómarúm og hjá þeim er ábyrgð hafa á ástandinu hérlendis. Held að þú þurfir ekki að hafa neinar áhyggjur - við stefnum á oddastöðu :)

Birgitta Jónsdóttir, 27.3.2009 kl. 07:53

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

úps þarna á að standa veit ekki betur en að borgarahreyfingin sé þverpólitísk:)

Birgitta Jónsdóttir, 27.3.2009 kl. 07:54

4 Smámynd: Baldvin Jónsson

Það háir Valsól aðeins í dómgreind sinni að vera enn í því farinu að stjórnmál séu liðs íþrótt. Fyrir mér ber Samfylkingin ekki mikið minni ábyrgð á ráðaleysinu og þögguninni sem viðgengist hefur á Íslandi frá 2007, þegar að fyrir lá að kerfishrun væri mögulega yfirvofandi.

VG er einfaldlega eini kostur þeirra sem vilja kjósa einhvern af gömlu flokkunum, þeirra blað er óspillt og reyndar óskrifað.

Fyrir okkur hin sem ekki kjósum VG er Borgarahreyfingin frábær kostur.

Valsól heldur áfram með þessa mýtu um að fylgi okkar komi frá vinstri, samt er til dæmis Samfylkingin hans búin að styrkja sig mikið síðustu vikur í könnunum. Ég tel að stærsti hluti okkar fylgis komi frá Framsókn, sem er nánast að hverfa. Það tel ég afar jákvæða þróun.

Baldvin Jónsson, 27.3.2009 kl. 08:28

5 identicon

Ég mun kjósa XO að öllu óbreyttu og ég kaus XD í síðustu kosningum.

Kolbrún (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 08:40

6 identicon

Kannski er ég bara "úti að aka", en ég skil ekki alveg hvernig þú  færð það útúr þessu að O bæti mest við sig?? Hef alltaf haldið að 1.6% væri stærra en 0.9% av sömu tölu. Að þið bætið ykkur hlutfallslega mest er allt annað mál, því fylgið var lítið fyrir og þarf því færri einstaklinga til að auka það.

Annars virðist mér á "stefnuskránni", að hún sé tiltölulega "þunn" og að mörgu leyti endurspeglun, af mörgu því sem er verið að setja í gang þessa dagana og svo punktum sem þegar finnast í VG og SF. Lít því þannig á, að ef núverandi ríkisstjórn fær endurnýjað umboð eftir kosningar, verði O flokkurinn "ónauðsynlegur". 

Snæbjørn Bjornsson Birnir (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 09:18

7 Smámynd: Sigurður Hrellir

Birnir, það er átt við prósentulega aukningu á fylgi eins og oftast þegar talað er um fækkun eða fjölgun ákveðinna hópa.

Varðandi stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar vs. núverandi stjórnarflokka þá er það til að segja að það var grasrótin, þ.m.t. fólk í Borgarahreyfingunni sem kom fram með flestar þessar kröfur. Það að Sf., VG og Framsókn boði breytingar í lýðræðisátt er vissulega af hinu góða en við treystum því einfaldlega ekki að það samrýmist raunverulegum hagsmunum þeirra. Það hafa alltaf verið valdaklíkur á bak við flokkana sem stjórna úr fjarska, í mismiklu mæli þó. Borgarahreyfingin berst á móti þessu flokksræði.

Sigurður Hrellir, 27.3.2009 kl. 09:33

8 identicon

Ónauðsynlegur til hvers Snæbjörn? Til að viðhalda valdablokk vinstrimanna?

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 09:51

9 identicon

Það er ekki rétt að fólk í Borgarahreyfingunni sé fólk úr vinstri átt. Ég til að mynda kem sjálf úr röðum sjálfstæðismanna, fæddist inn í flokkin en sagði mig úr flokknum fyrir 20 árum síðan. Hef verið í flokksbundin í Samfylkingunni, VG og síðast í Íslandshreyfingunni en hvergi fundið mig þar sem flokksræðið hefur aldrei heillað mig.

Það eru mjög margir er að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna og Framsókn. Það er mjög áberandi hvað fólk er sárt og ósátt við að þessir flokkar skuli hafa leynt fólkinu í landinu jafn mikilvægum upplýsingum um stöðu bankanna í janúar 2008. Fólk talar um að það vilji ekki láta kenna sig við flokkana lengur og finnst það hafa verið blekkt.

Borgarahreyfingin er óháð og þverpólitísk hreyfing sem bíður alla velkomna. Við sameinumst um ákveðin málefni sem aðrir flokkar vilja ekki ræða. Við krefjumst þess að bankahrunið verði rannsakað sem sakamál en ekki eitthvert alþjóðlegt bankahrun sem er eintóm blekking.  Við höfum staðið fyrir mótmælum sem beindust fyrst og fremst að ráðamönnum sem ætluðu að blekkja almenning og líta á hann sem ákveðinn fórnarkostnað í anda nýfrjálshyggjunnar.

Landið okkar er á kafi og nánast að sökkva í spillingu. Ríkið ætlar að kaupa allar eignir landsmanna og leigja landanum þær aftur. Ég tel það vera meir en alvarlegt mál og sætti mig ekki við slíka afgreiðslu.

Glæpamennirnir eiga sleppa.

Borgarahreyfingin boðar neyðarráðstafanir fyrir heimilin strax og lýðræðisumbætur strax. Án lýðræðisumbóta mun spillingin grassera áfram og tugir þúsunda munu flýja land. Ég vil berjast með Borgarahreyfingunni vegna þess að ég sætti mig ekki við að afkomendur mínir þurfi að flýja land svo að þeir sem hafa gerst brotlegir um glæpsamlegt athæfi geti eignast landið fyrir ekkert og það án nokkurar refsingar.

Kjósum Borgarahreyfinguna til að stöðva þessa ógnvænlegu þróun.

Ef ekki - þá mun ekkert breytast og ekkert gerast!

www.xo.is

Sigurlaug Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 10:29

10 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Ef ég á að kjósa þennan lista verð ég að sjá almennilegt fólk á listanum. Ég bý í kraganum og sá sem vermir fyrsta sæti þar skv. nýjusu fréttum (að vísu bara munnlegum) fær ekki mitt atkvæði. Það er á hreinu.

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 27.3.2009 kl. 14:05

11 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

P.s. Kannski er þetta bara kjaftasaga. Hef ekki fengið hana staðfesta í netheimi.  Finn heldur ekki nafnið skrá á heimasíðunni ykkar.

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 27.3.2009 kl. 14:08

12 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta er flökkusaga - kom mér eins mikið á óvart og þér - þessi sem þú heldur að ætli að verma sætið tók það uppi hjá sjálfum sér að tilkynna um þetta:)

Birgitta Jónsdóttir, 27.3.2009 kl. 15:56

13 Smámynd: AK-72

Vill benda Valsól á, að hræðsla hans er óþörf. Ef rýnt er í fylgistölur kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi og það fer að einhverju leyti til Borgarahreyfingarinnar.

AK-72, 27.3.2009 kl. 16:00

14 Smámynd: Bara Steini

XO XO XO XO

:) :) :)

Bara Steini, 27.3.2009 kl. 17:51

15 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Mér lýst rosalega vel á þennan stjórnmálaflokk. Ég ætla að kjósa annað hvort ykkur eða vinnstri græna svo það sé ljóst. Mér finnst vinnstri grænir hafa staðið sig mjög vel í núverandi ríkisstjórn og vera gegnheilir í sínum verkum. Það sem ég er sérstaklega hrifin af með varðandi borgarahreifinguna er hvað þessi listi er óvenju vel mannaður..... Valgeir Skagfjörð, Þóar saari og síðast en ekki síðst Jón Þór Ólafsson sem ég þekki ágætlega sjálfur af góðri raun er  gott dæmi um manneskjur sem eru miklu meiri hugsuðir en hinir venjulegu fulltrúar stjórnmálaflokka að mínu mati.

Jaðarfólk höfðar miklu betur til mín..... sem eru með gegnheilar skoðanir.  

Brynjar Jóhannsson, 27.3.2009 kl. 18:28

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábært hjá ykkur.  Baráttukveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2009 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband