Leita í fréttum mbl.is

Spillingin vellur fram

ef17d4a0998f666d.jpgDag hvern vellur og sullar upp spillingin sem stjórnvöld með agaleysi og reglugerðaleysi leyfðu að krauma og æta upp undirstöður landsins. Hvernig stendur á því að það eru ekki hafnar alvöru vitnaleiðslur? Af hverju hefur enginn stórlax verið látin axla ábyrgð á þessu. Manni verkjar stöðugt í siðferðiskenndina og maður spyr sig hvað veldur seinaganginum að koma því fólki sem ber ábyrgð í gæsluvarðhald.

Af hverju er hin nýja ríkisstjórn ekki búin að stórefla efnahagsbrotadeildina? Eru stjórnvöld enn vanhæf til að taka á þessum risastóra spillingarvef sem teygir anga sína inn á þing.


mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

það þarf að spúla út - spurningin er þessu fólki treystandi til þess að gera það sjálft?

Birgitta Jónsdóttir, 6.3.2009 kl. 22:35

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Réttarhöld munu hefjast fljótlega. Við sjáum hvað setur.

Ég er farinn að hallast að því líka að Borgarahreyfingin og L- listinn gætu komið sterk inn í næstu kosningum og náð inn endurnýjun á þingi. Auk þess er töluverð endurnýjun í hinum flokkunum og á næsta ári tel ég að endurreisnin muni hefjast að nýju þegar dómstólar hafa komist til botns í öllu sukkinu.

Hilmar Gunnlaugsson, 6.3.2009 kl. 22:36

3 identicon

Góðir hlutir gerast hægt .

Alltaf.

Kveðja.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 00:25

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég held að nýja ríkisstjórnin sé vanhæf, vegna stjórnarsetunnar með sjálfsstæðisflokknum þegar hrunið varð.  Og aðgerðaleysisins eftir hrunið. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.3.2009 kl. 02:43

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég er svo gáttuð yfir aðgerðarleysinu að ég á ekki orð. Það eina sem mér finnst liggja í augum uppi hvað það varðar er að það er meðvitað... En getum við virkilega ekki gert neitt? Hvað varð um þennan landráðahóp? Eru engir lögfræðingar eða einstaklingar sem þekkja til hvort hægt er að kæra til t.d. Interpool að skoða þessi mál.

Íslensk stjórnvöld ætla ekkert að gera í þessu máli en hvað með íslenskan almenning?

Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.3.2009 kl. 22:29

6 Smámynd: Trausti Traustason

Mér finnst tekið á þessum hlutum af kærlueysi og finnst hlægilegt hvað lítill kraftur er í rannsókninni. Þarna er á ferðinni glæpur þar sem eigendur bankanna hafa matað krókinn og orðið feitir af eins og púkinn á bitanum. Hvernig er það eiginlega, tekur enginn stjórnmálamaður þetta ástand alvarlega?

Trausti Traustason, 18.3.2009 kl. 06:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.