Leita í fréttum mbl.is

Vík frá ríkisstjórn

Þjóðin þarf að losna við ykkur svo að við getum fengið að reisa landið úr öskustónni án hagsmunatengsla og spillingar. Vík burt vík burt vík burt --- við þolum ekki meiri vanhæfni frá ykkur.
mbl.is Mikilvægt að stjórnin fái vinnufrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég tek undir þetta. Við viljum ekki spillinguna og tengslin...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 17:35

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:15

3 identicon

Þú gætir kannski upplýst hverjir "Við" erum sem ætlið að reisa landið úr öskustónni.

Jón Björnsson (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 19:27

4 identicon

Við erum þjóðin sem lýsum því yfir að ríkisstjórn Íslands er vanhæf.    Við erum fólkið í landinu sem erum búin að fá nóg. Við erum fólkið sem þolum ekki einn dag í viðbót af þessari óhugnanlegu þróun. Við erum allir þei sem segja stopp - nú er nóg komið. Við erum fólkið sem getur flett upp fólki í símaskránni til að vinna betur en þtta fólk er að gera. Við erum fólkið sem kusum þetta ekki yfir okkur. Við erum fólkið sem viljum búa við lýðræði. Við erum fólkið sem látum ekki kúga okkur til þagnar.Við erum fólkið sem treystum íslensku þjóðnni betur til að reisa hér nýtt lýðveldi heldur en þeirri ógnarstjórn sem situr í þingsal Alþingis í dag og telur það mest áríðandi að ræða hvort það eigi að selja brennivín í búðum hér á landi. Við erum þjóð sem eigum gott betra en þetta skilið frá hrokafullum stjórnvöldum sem nokk sama um mig eða þig. Við erum fólkið. Fólkið er valdið. Við erum valdið. Ég og þú.

Cilla (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 20:15

5 identicon

Vel mælt Cilla, rétt mælt Cilla, við erum ekki gjörspilltir Alþingismenn Sjálfstæðisflokks eða fjósruglaðir þingmenn Samfylkingar og þaðan af síður enn spilltari framsóknarmenn, hinir þingmennirnir sem eftir eru þurfa samt að fara líka.

Þór skór (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 23:41

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já Cilla

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 00:01

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk fyrir þetta fallega innlegg Cilla - við erum fólkið - heimurinn breytist þegar við tökum höndum saman og virkjum raunverulegt réttlæti saman ytra sem innra

Birgitta Jónsdóttir, 21.1.2009 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband