Leita í fréttum mbl.is

Aumingja vesalings blóðsugan

Mér ofbýður Jón Ásgeir, að þú notir ekki tækifærið og axlar ábyrgð. Þú ættir frekar EN að láta eins og  saklaust fórnarlamb að biðja okkur afsökunar á þeirri stöðu sem þú ásamt öðrum hefur komið þjóðinni í. Þú tókst svo sannarlega þátt í að koma okkur á hausinn og gera okkur að alþjóða athlægi.

ef17d4a0998f666d.jpgAuðvitað tóku flestir þátt, en eingöngu vegna þess að fjölmiðlarnir þínir sáu um að koma aldrei fram með sannleikann. Allt var í himnalagi og spilað var á lægstu hvatir mannskepnunnar. Þú tókst þátt í því. Þínar verslanir ólu t.d. á ótta almennings um að hér yrði vöruskortur og þínir menn hvöttu fólk til að hamstra, svo þú fengir meiri pening til að eyða í spillingarhýt þína. Jón Ásgeir þú ættir að skammast þín. Ég vorkenni ekki blóðsugum. Þér og þínum hefur tekist að mergsjúga þetta samfélag og svo spilar þú þig sem fórnarlamb. Þú ert siðblindur það er harla augljóst. Ef þú ert svona góður ættir þú að taka undir þinn verndarvæng þær fjölmörgu fjölskyldur sem nú standa frammi fyrir því að eiga ekki í sig og á vegna þeirrar kreppu sem þú tókst þátt í að skapa. 

Þú minnir mig um margt á spilafíkil sem er kominn út í horn og getur ekki horfst í augu við að hann hefur sett fjölskyldu og vini á hausinn. Spilafíkillinn hugsar um það eitt í þeirri stöðu að hann hafi verið óheppinn en ef hann kæmist nú í eitt spil enn, þá er öruggt að hann vinni stóra vinningin. Munurinn á þér og hefðbundnum spilafíkli er hinsvegar sá að þjóðin treysti þér fyrir sínum fjöreggjum en þú falbauðst þau fyrir meiri gróða handa þér sem var víst samkvæmt þér ekki raunverulegur. 

Aumingja vesalings litla blóðsugan. Hvenær ætlar þú að vakna upp við þá staðreynd að við höfum séð hvað þú ert veikur og viljum ekkert frekar en að þú farir í meðferð og ástundir vægðarlaust heiðarleika prógram. Komir svo vonandi andlega heill út úr þessu og skilir því sem þú hafðir af þjóðinni með auðmýkt. 


mbl.is Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón Ásgeir er barn alkaholista og ber þess merki, þótt framkoma hans hafi lagast hin síðari ár. Það er upp á markaðssetninguna og ímyndina að gera. Ég hef ekki hitt brenglaðari mann í samskiftum, fyrst þegar ég átti samskifti við hann þegar Bónusævintýrið var byrjað.Jóhannes vinur litla mannsins, sem hann arðrænir svo, er einn af þessum þjófnuðum sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarna áratugi. Einn var myntbreytingin á sínum tíma þegar 2 núll voru tekin aftan af krónunni, sjávarkvótaþjófnaðurinn, þar sem lögin telja 3 greinar og sú síðasta er að sjáfarauðlindin er eign allar þjóðarinnar. Íslendingar eru upp til hópa stórpersónuleikaraskaðir, formið er bara annað, menn nota ekki vopn lengur til að kljúfa niður mann og annan lengur, eins og var hérna fyrir 100 árum eða svo.Menn halda áfram í fríkn sinni eftir peningagræðgi, þótt allar bjöllur hringdu. Daginn áður en Glitnir var yfirtekinn af ríkinu, hlupumenn í unnvörpum til að kaupa bréf í bankanum, af því þau höfðu lækkað, þótt þau yrðu einskis virði daginn eftir. Á Íslandi er alltaf horft á afleiðingarnar en ekki orsakirnar fyrst. Samanber það er ekkert unglingavandanál til, þetta er foreldravandamál. Jóhannes ólst upp hjá SS og fékk að valsa þar óáreittur, vegna þess að Jón Bergs, frumkvöðull í eftirlokaswamningum til æviloka með 500.000 ámánuði til æviloka var starfinu sínu ekki vaxinn, bullandi virkur alki líka eins og Jóhannes. Rekinn á endanum. Jóhannes var borgaður af SS til að koma Bónus á laggirnir, en hann sótti fyrirmyndina meðal annars til Danmerkur, þegar hann var þar í innkaupaleiðangri fyrir SS. Komst í samband við birgja og sett var á stofnum gripið og greitt og vísir lagður að því að hrekja gömlu heildsalana af markaði. Jóhannes gerðist heildsali sjálfrur og hirti allan ágóðann og alltaf lék hann vin litla mannsins. En í allri þessari umræðu um Bónus kom aldrei fram viðskiftahættir þeirra við birgja, sem þeir gengju yfir með frekju. Hvað haldið þið að þeir séu búnir aðpína marga niður í verði og gers mörg fyrirtæki gjaldþrota. Einstaklingar hafa dottið í þá grifju að fara að eiga viðskifti við þá, horft á það á skammsýnan hátt. Sparnað í rekstrarkostnaði og umsýslu, en ekki áttað sig svo eftir mánuð kallar Jóm Ásgeir þá á fund og vill að brauðið  eðakjötið lækki í innkaupi um 30%, nú annars geti þeir bara komið sér út. Eða meðferðin á starfsfólkinu. Í byrjun voru ekki börn eins og núna verslunarstjuórar sen ráku mannskapinn áfram og gáfu liðinu á tímabili rippel fuel til að ná sembest út úr þeim. Fengu svo í bónus nokkra daga skútusiglingu á Florida með Jóni Gerald. Menn tala um samkeppni, það er engin samkepni. Bónus á markaðinn og er með samninga þannig gerða að þeir eru alltaf lægstir í verði. Ef einhver annar fær eitthvað, er þeimþað bætt upp rækilega svo þeir geti lækkað sig. Á sínum tíma var verkfall hjá coca cola , hjá kaupmönnunum í Breiðholtinu. þeir keyptu bara millistærð aqf kók, til að knýja fram 3% staðgreiðsluafslátt. Ætli Bónus sé ekki ekki með 60% afslátt hja kók í dag, en samt háir í verði. Það er ekki allt sem sýnist og Íslendingunum virðist þykja það gott að láta taka sig endalaust í afturendann. Þetta eru allt blekkingar og svik. Alkarnir færa bara fíknina yfir á annað og gerast enn ófyrirleitari.

Þórarinn Þórarinsson (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 09:55

2 identicon

Ég les á milli línanna hjá þér Þórarinn að þú ert stúkumaður.  En þú getur ekki ætlast til að allir aðrir séu það.  Ef þú getur samið um gott  vöruverð þá tekur þú þann kostinn er það ekki?  annars værir þú ekki í bisness,  allavega ekki lengi.  Þú breytir þessu ekki neitt með því að skammast út í drykkjuvenjur annarra.  Þú gerir þig að minni manni fyrir vikið.  Hatur fer illa með fólk.

J.a. (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 10:51

3 identicon

Sæl Birgitta, ein tillaga: Förum í átak og kennum börnum okkar að þekkja siðblindingja og verk þeirra.  Siðbót er eina von okkar og ég segi þetta ekki vegna þess að ég sé trúaður... það er ég ekki.

Framhald á þýddri grein um Panopticon er komin, og ekki lækkar dampurinn hjá þeim félögum á seinni hlutanum: Glæpamenn við stjórn

Gullvagninn (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband