Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega birtuhátíð og þakklæti

Fyrir 10 árum síðan hélt ég jólasýningu í kjallara gallerís sem kennt er við Hornið. Ég var eiginlega búin að gleyma henni. Fann hana í stafræna safninu mínu og langaði að gefa ykkur smá jólastemmningu mitt í kreppublús. Ég tileinka þessari sýningu pabba sem dó á aðfangadag 1987 og mömmu sem dó á kvenfrelsisdaginn í fyrra: blessuð sé minning þeirra.
 
Gleðileg jól kæru vinir og vandamenn í netheimum. Megi þessi hátíð veita ykkur birtu og frið allt um kring og innra með ykkur. Kærar þakkir fyrir allar andlegu gjafirnar og gullmola í formi orða og gjörða.
Með birtukveðjum.
BirgittaWizard
 
 
birtuhátíð
kaka.jpg
birtuhátíð
pabbi.jpg
adfangadagskvold.jpg
fjosi.jpg
jolagjofin.jpg
flottust.jpg
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Takk fyrir mig :)

Gleðileg jól Birgitta og hlakka til að hitta þig eftir jól

Heiða B. Heiðars, 24.12.2008 kl. 09:09

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sömuleiðis Heiða... finnst þú frábær manneskja :)

Birgitta Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 09:23

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndisleg myndasaga

Gleðileg jól Birgitta mín

Sigrún Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 10:40

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gleðileg jól!

Þorsteinn Briem, 24.12.2008 kl. 13:30

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Flott sýning, gleðileg jól.

Magnús Sigurðsson, 24.12.2008 kl. 13:34

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk takk Sigrún... þetta var mjög skemmtilegt verkefni á sínum tíma að búa þetta til... dröslaðist með jólatréð mitt í strætó til að búa til fullkomna stemmningu þarna í kjallaranum:)

og gleðileg jól Steini undrabarn

Birgitta Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 14:09

7 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk Magnús - vona að hátíðin þín verði gleðileg

Birgitta Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 14:10

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fallegt. Gleðileg jól Birgitta.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.12.2008 kl. 14:57

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

takk Jakobína... hefur verið gaman að hlusta á þig í ár... þú hefur margt til málana að leggja varðandi nýtt Ísland:)

Birgitta Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 15:19

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gleðileg jól, elsku frænka. Æðisleg færslan þín!

Guðríður Haraldsdóttir, 24.12.2008 kl. 15:32

11 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Gleðileg jól Birgitta. Takk fyrir að standa baráttuvaktina fyrir okkur öll á liðnu ári. Takk fyrir eina eftirminnilegustu kvöldstund á árinu sem voru minningartónleikar Bergþóru í Salnum.

Með birtu og kærleik :-)

Kristján Kristjánsson, 24.12.2008 kl. 15:57

12 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

yndislegar myndir

gleðileg jól til handa þér og þínum

Brjánn Guðjónsson, 24.12.2008 kl. 16:22

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þetta.   Og Birgitta mín þú ert frábær og mikil baráttukona, með réttlætið og samhygðina að vopni.  Guð blessi þig og þína, kærleikskveðja til þín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2008 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 508717

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.