Leita í fréttum mbl.is

Enn herðist sultarólin

Ég skil vel að fólk gerir sér almennt ekki grein fyrir hve alvarlegt ástandið á eftir að verða hér.

Ég skil vel að margir kjósa að horfast ekki í augu við þann veruleika sem við stöndum frammi fyrir.

Ég skil vel að margir afneita undirrótum vandans og neita að axla ábyrgð.

Ég skil vel ótta og óvissu - ég skil vel að fólk víðsvegar í samfélaginu láti eins og þetta komi þeim ekki við. 

Ég skil vel að sumir tala tæpitungulaust gegn því að trufla björgunarleiðangurinn þó svo þeir sjái að skipstjórinn er blindur og vanfær um að sjá skerin sem hann er að stefna björgunarskipinu í.

Ég er því miður því marki brennd að ef ég veit um óréttlæti - þá finnst mér, að mér beri að gera eitthvað í því. 

Ég veit að við sem einstaklingar getum breytt heiminum - sérstaklega ef nógu margir einstaklingar standa saman gegn órétti og spillingu. 

Ég ætla að standa vörð um lýðræðið í dag klukkan 12 við alþingishúsið  OKKAR - þar ætla ég að hitta annað fólk sem finnur sig knúið til að sýna samstöðu á þessum erfiðu tímum - það er það sem sálartetrið mitt þarf - að finna samstöðu og að við getum gert eitthvað. Það er óþægilegt fyrir ráðamenn að vera í návígi við okkur og þurfa að horfast í augu við að fjöldi fólks vill spillinguna burt - að alþingi okkar verði hreinsað af þeirri óværu sem hreiðrað hefur um sig þar: óheiðarleika og vanhæfni til að sjá sinn þátt í óreiðunni sem dynur yfir þjóðina. 


mbl.is Verðbólgan nú 17,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Ég kemst ekki í dag en hvet allir sem geta til að taka þátt.
Bestu kveðjur.

Heidi Strand, 26.11.2008 kl. 10:44

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sjáumst Birgitta mín

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.11.2008 kl. 10:52

3 identicon

Myntkarfan verður með ykkur í anda www.myntkarfan.wordpress.com

Myntkarfan (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 14:13

4 identicon

Ég er einn af þeim sem gerir sér grein fyrir því að ástandið hér á eftir að verða mjög alvarlegt, ég geri mér líka grein fyrir því að kosningar munu breyta litlu um það. Skaðinn er raunverulegur og það tekur langan tíma að komast fyrir hann, sama hver stýrir skútunni.

Ég er einn af þeim sem treystir núverandi ríkisstjórn en treysti minna ákveðnum framapoturum sem maður hefur á tilfinningunni að hafi meiri áhuga á að komast til valda en að koma með raunverulegar lausnir á vandanum.

Ég er einn af þeim sem vill fá Seðlabankastjóra sem er ráðinn sökum hæfni og menntunar, en ég er samt ekki einn af þeim sem í blindni kennir Davíði Oddsyni um allt sem úrskeiðis hefur farið.

Ég er einn af þeim sem styður friðsæl mótmæli fyrir utan alþingishúsið enda afar mikilvægt að halda ríkisvaldinu við efnið og sjá til þess að þeir gleymi ekki þeim sem eru verst settir. En ég er aftur á mót einn af þeim sem fordæmir glórulaust tal um byltingu, jafnvel vopnaða eins og sumir hafa mælt fyrir, enda munu svoleiðis aðgerðir einungis gera vont ástand skelfilegt.

Ég er einn af þeim sem telur að yfirmenn bankanna beri langmesta ábyrgð á ástandinu eins og það er í dag, en tel líka að margt fólk beri ábyrgð á sínum eigin fjárhagserfiðleikum með því að eyða langt um efni fram með illa úthugsuðum lánum og yfirdráttum. Ég er líka einn af þeim sem telur að Fjármálaeftirlitið hafi brugðist eftirlitsskyldum sínum.

Sturla (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband