Leita í fréttum mbl.is

SNÚUM BÖKUM SAMAN!

Hvatning til allra

Það ástand sem hefur skapast í þjóðfélaginu er hreint út sagt skelfilegt. Og
það á eftir að versna. Þeir ráðamenn sem sitja að völdum hafa sýnt að þeir
eru ekki vanda sínum vaxnir. Við viljum þá burt og betur menntað og
ábyrgðarfyllra fólk til að taka við.

Mótmæli verða hér eftir á Austurvelli daglega klukkan 12.00 á hádegi.
Þau byrjuðu í dag, laugardag 11. október. Hér með er skorað á fólk að láta
stjórnmálaskoðanir, eineltisaðferðir og ofbeldi í allri mynd, lönd og leið
og sameinast og mótmæla ríkjandi ástandi.

Krafist er þess að Seðlabankastjórn segi umsvifalaust af sér, eða verði
leyst frá störfum. Hún er rúin öllu trausti hérlendis og erlendis.

SNÚUM BÖKUM SAMAN! Hittumst og ræðum málin. FJÖLMENNUM!
mbl.is Ástandið verra en þjóðargjaldþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Heyr heyr!

Vésteinn Valgarðsson, 13.10.2008 kl. 10:50

2 identicon

Snúum bökum saman og gleymum því aldrei hverjir hafa ráðið hér fjármálakerfinu undanfarna tvo áratugi. Gleymum því aldrei hverjir gerðu þessum mönnum kleyft að koma okkur í þessa stöðu. Gleymum aldrei litlu frjálshyggju dindlunum sem hjálpuðu til við að koma þessari hugmyndafræði í verk. Gleymum aldrei!

Valsól (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 13:50

3 identicon

Það þýðir ekki að ætlast til að við snúum bökum saman með sökudólgana áfram yfir okkur, í óbreyttum stöðum. Þá erum við aðeins að standa með þeim, ekki gagnkvæmt.

Fjölmennum þá líka á Austurvöll, eftir nokkra daga, þegar verður kosið í öryggisráð sameinuðu þjóðanna. Tilbúin að sýna andstöðu ef Ísland verður kosið eða fagna, ef Ísland verður ekki kosið. Það verða líklega erlendir fjölmiðlar á staðnum og þess vegna mikilvægt að láta sjást út fyrir landsteinana að almenningur er ekki á sama báti og fíflin sem komu okkur í þessa stöðu. (Fólkið á dýru bílunum vinsamlega beðið um að halda sig fjarri).

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 14:32

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þið hafið bæði lög að mæla.

Vésteinn Valgarðsson, 13.10.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.