Leita í fréttum mbl.is

Davíð út, Ragnar inn

Hvet fólk til að horfa á viðtal við Ragnar í Silfri Egils í dag. Þetta er maður sem ég ber traust til, enda greinilega með almennilega jarðtengingu. Er ekki hægt að virkja hann, skora á Björgvin og Geir að njóta ráðgjafar hans áður en fleiri mistök eiga sér stað. Held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir þeim hættum sem enn steðja að. Það á að skipta Davíð út fyrir Ragnar, strax í dag.

Tek það fram að ég þekki Ragnar ekki neitt og veit ekki einu sinni hvaða pólitísku stefnu hann fylgir en það er greinilegt að hann hefur 100% betri yfirsýn og þekkingu en sá sem stendur í stafni Seðlabankans. 


mbl.is Ragnar: Ríkið stendur ekki undir skuldbindingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birgitta,

vid erum med urvalshagfraedinga a landinu sem geta fyllt skardid i sedlabankanum, their hafa varad vid thessu i manudi ef ekki arum saman. Sá sem ítrekad benti á haetturnar i allan thennan tima opinberlega var Thorvaldur Gylfason en hann var afskrifadur vida sem nöldrari út i bae og vaeri bara eitthvad öfundsverdur af Davíd. Thorvaldur er hagfraedingur og med hann i Sedlabankanum hefdum vid aldrei thurft ad sjá thessi ósköp í dag, kvedja jón

jón (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 14:24

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi Ragnar var fyrsti maðurinn sem tjáir sig um efnahagsástandið þannig að ég skilji hvað snýr upp og hvað niður.

Fyrir utan að hann hafði traustvekjandi útgeislun.

Inn með hann út með Davíð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.10.2008 kl. 14:52

3 Smámynd: ??

Sammála! Inn með Ragnar út með Davíð!!! og það stax kannski verður einhverju hægt að bjarga með því??

??, 12.10.2008 kl. 15:17

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Algjörlega sammála: Ragnar Önundarson inn og Davíð út!

Ég er sjálfstæðismaður og aðdáandi Davíðs til yfir 20 ára, en hans "feill" var að fara í Seðlabankann.

Ragnar er maður með mikla reynslu í bankaheiminum og auðvitað voru greinar hans í fjölmiðlum hrein og klár "analísa" á því, sem var að gerast og hugsanlegum afleiðingum þess, ef ekki yrði gripið til aðgerða.

Ég þekki Ragnar ekki vel, en nógu vel þó til að ég myndi leggja höndina í eldinn fyrir hann - eins og Þjóðverjar orða það!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 12.10.2008 kl. 18:47

5 Smámynd: Heidi Strand

Davíð verður örugglega látin fara á næstunni.

Heidi Strand, 12.10.2008 kl. 21:39

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvað ert þú að hugsa Birgitta.Oft er þörf en nú er nauðsyn að mótmæla.Skoskur manndrápari og stríðsæsingamaður sem stundar hryðjuverk,í Írak,Afganistan, Palistínu og um alla heimsbyggðina segir okkur Íslensku þjóðina hryðjuverkamenn.Ég gleymdi að segja að þessi maður blessar kúgun Kínverja á Tíbetum.Nú þarft þú að lyfta litlafingri og kalla í mannskapinn til sóknar, og göngu að sendiráði því sem kallar sig Sendiráð hennar Hátignar, en er bæli þjófa og yfirgangssegga um alla heymsbyggðina.Ég hef eggjapokann klárann þegar þú kallar.

Sigurgeir Jónsson, 12.10.2008 kl. 21:56

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

látum sjá, vonum það besta.

Kærleikskveðjur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.10.2008 kl. 05:55

8 Smámynd: Ásgerður

Ég held að Davíð fái bara að ráða því sjálfur hvenær hann fer, eins og með allt annað sem snýr að honum.

En sá viðtalið við Ragnar og leist vel á hann og það sem hann var að segja.

Það á auðvitað að setja það í lög, að það eigi að vera fagmenn (ekki þreytti pólitíkusar) á stöðum eins og í Seðlabankanum.

Ásgerður , 13.10.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband