Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 identicon

Það var loksins að einhver vekur athygli á Zeitgeist,, ég mæli eindreigið að folk horfi a þessa mynd með opnum huga..

Kiefer (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 12:37

2 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Peter Joseph vissi hvað hann söng allan tímann - líka í Zeitgeist 1 myndinni. Það er bara svoleiðis. Það hefðu aðeins fleiri átt að kalla hann geðveikan anarkista í fyrra.

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 8.10.2008 kl. 13:24

3 identicon

Ég horfði á Zeitgeist 1 fyrir alllöngu og það rann ískaldur hrollur um mig, mæli með að allir horfi á Zeitgeist 1.

Atli Jóhann Guðbjörnsson (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 13:37

4 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Kveðja á þig Birgitta

Erna Friðriksdóttir, 8.10.2008 kl. 16:49

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Tímabært að fá þessa viðbót í miðjum fjármálastormi heimsins - nú er akkúrat tíminn til að hvert og eitt okkar spyrji: vil ég taka þátt í þessi sjónarspili gereyðingaraflanna eða ætla ég að stíga fram og segja: hingað og ekki lengra.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 8.10.2008 kl. 22:02

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sonur minn sem er 17 ára hefur í það minnsta fundið í þessari hugmyndafræði einhverja von í frekar vonlausum heimi:)

Ég upplifði það sama og þú Atli Jóhann... þegar ég sá fyrri myndina. Finnst vonargneistinn í mynd 2 nauðsynlegur á þessum miklu umbreytingartímum. Ég held að nú sé uppi sú staða að við hreinlega verðum að skoða nýjar leiðir - allir ismarnir hafa í raun og veru sýnt að þeir verða alltaf að skrímslum í höndum okkar... við erum bara ekki þróaðri en svo að falla í gryfju valdahroka þegar þræðirnir hanga í höndum okkar.

Birgitta Jónsdóttir, 9.10.2008 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.