Leita í fréttum mbl.is

Fyrir þá sem ekki hafa aðgang að netinu

Ég veit að það kann að hljóma furðulega á netmiðli, en fólk hefur haft samband við mig og átt í vandræðum að skrifa á undirskriftarlistann - ég ætla því að búa til hefðbundinn pappírslista sem verður dreift á mótmælum sem boðuð hafa verið á morgunn fyrir utan Dómsmálaráðuneytið klukkan 12.

Hann vonandi fara sem víðast, ef fólk hefur áhuga getur það haft samband við mig og fengið slíkan lista sendan til útprentunar og beðið aðra um undirskriftir eða lagt hann fram á viðeigandi stöðum. Ég skal svo sjá um að halda um samantektinga á þessu. Sendið mér endilega póst á birgitta@tibet.is ef þið viljið að ég seti nöfnin ykkar á handskrifaða listann eða get sent ykkur lista á pdf. Við verðum að gera eitthvað núna áður en það verður of seint. Þá er mikilvægt að þrýsta á ráðamenn að konan hans Ramses verði ekki send af landi brott.  


mbl.is Undirskriftarlisti til stuðnings Ramses
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæl Birgitta,

því miður hef ég nokkrum sinnum í dag reynt að skrifa mig á listann. En þetta kerfi sem þið notið hafnar tölvubréfsföngum sem enda á dk (Danmörk) og vill vísa fólki til Þýskalands (de) eins og gyðingum forðum.

Getur þú ekki látið leiðrétta þetta. Ég gæti ímyndað mér að fleiri með dk adressur eigi líka í vandræðum að skrifa undir. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.7.2008 kl. 14:19

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

þú smellir á submit as is, blár linkur... það er bara verið að spyrja hvort að þú sért viss um að addressan sé rétt með dk enda....

"There was a problem with your signature!

We detected a possible typo in your email address.

Did you mean neptunus.e@gmail.de? You may correct it, or submit it as-is.

Array"

Birgitta Jónsdóttir, 4.7.2008 kl. 14:28

3 Smámynd: Andrea

Á morgun, laugardegi? Er fólk að vinna í Dómsmálaráðuneytinu þá?

Andrea, 4.7.2008 kl. 15:57

4 Smámynd: Hvumpinn

Þetta er svona atvinnukverúlantasíða. 

Hvumpinn, 4.7.2008 kl. 15:59

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Hvumpinn: ef ég væri atvinnukverúlant þá hlyti ég að fá greitt fyrir það. En skilgreining á kverúlant er einmitt fólk sem tuðar eins og fólk sem gerir eitthvað þegar því er nóg boðið er kallað aðgerðasinnar.

Andrea, ég stend ekki fyrir mótmælunum á morgunn, en mér finnst allt í lagi að fólk mæti og sýni á táknrænan máta að því standi ekki á sama um örlög Paul Ramses. Hvet bara sem flesta að mæta. Þegar hinn mikli fjöldi sem fór fyrir utan kínverska sendiráðið á sínum tíma út af Falun Gong fór þangað var enginn þar. Það er oft mótmælt fyrir utan alþingi þó enginn sé þar. Og hey kannski Björn vinni yfirvinnu:)

Birgitta Jónsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:31

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

úff eitthvað hef ég verið að flýta mér, ég er farin að skrifa eins og sumir á mbl.is, á að standa :

En skilgreining á kverúlant er einmitt fólk sem tuðar eins og sumir sem kommenta hér og fólk sem gerir eitthvað þegar því er nóg boðið er kallað aðgerðasinnar.

Birgitta Jónsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:32

7 Smámynd: Andrea

Birgitta; Ég er alveg sammála því að það sé ekkert áhrifaminna að mæta fyrir utan á laugardegi. Var eiginlega bara að athuga hvort ég væri að misskilja:)

Andrea, 4.7.2008 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 508726

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband