Leita í fréttum mbl.is

Ógleymanlegir tónleikar

Björk og Jónas Sen á Náttúrutónleikum

Ég var svo heppin að standa beint fyrir framan hátalarna og tónlistinn nötraði á tíðum eins og alvöru jarðskjálfti í gegnum mig. Það er mikill frumkraftur í Björk og mér finnst hún alltaf frábær á sviði. Það var gaman að sjá svona mikið margmenni og ég vona að alla vega stórt hlutfalla þeirra sem mættu gerðu það fyrir náttúruna okkar sem á svo sannarlega undir högg að sækja. 

Ég kíkti á vefinn nattura.info og hann er mjög fróðlegur og alveg ótrúlega mikið af fallegum myndum af náttúrunni sem fórna á. Ég hvet fólk til að skoða vefinn og njóta þeirrar fræðslu sem þar er að finna.

Ég náði ekki að upplifa þrjú síðustu lögin, yngri sonurinn orðinn svo þreyttur að við laumuðumst heim áður en lagið sem ég var að bíða eftir alla tónleikana var spilað... Declare independence .... sá reyndar brot af því í beinni á national geographic webcastinu.... 

 


mbl.is Óður til náttúrunnar í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Umhverfissóðarnir á staðnum skildu eftir áldósirnar sínar

Hólmdís Hjartardóttir, 28.6.2008 kl. 23:33

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég horfði á alla tónleikana á beinni á vefnum...frábært, snilld!!! (engin áldós eftir frá mér!!!)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.6.2008 kl. 23:35

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég drekk ekkert sem kemur úr áldósum:) en auðvitað er alltaf sóðaskapur þegar svona margmenni er og sér í lagi ef áfengi er haft um hönd... ég kýs samt að hugsa til þess mannlega samspils sem var þarna og er bara þakklát fyrir framtakið. Það er alltaf hægt að gagnrýna það sem miður fer... ég vel að sjá allt sem gekk upp varðandi þetta framtak...

Birgitta Jónsdóttir, 28.6.2008 kl. 23:40

4 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Þakka þér fyrir að benda á þessa vefsíðu. Myndirnar eru stórfenglegar.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 29.6.2008 kl. 00:27

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég horfði á netinu og þetta voru frábærir tónleikar fyrir lífsnauðsynlegu málefni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.