Leita í fréttum mbl.is

Röng frétt

Var að lesa mér til um þetta á vef anarkista og þar kemur í ljós að þessi fyrirsögn og frétt er röng. Fáninn var ekki skorinn, heldur bandið sem heldur honum uppi til að koma hinum fánanum á bandið. Íslenska flaggið var alveg ósnortið og ekkert vanhelgað eins og bloggheimur hefur verið að lepja upp eftir þessari frétt. 

Ég bara skil ekki svona vinnubrögð hjá vinsælustu netfréttaveitu landsins. Ég tek það fram að ég hef nákvæmlega enga skoðun á þessari aðgerð sem slíkri og hef ekki tíma til að þrasa um vanvirðingu eður ei því ég er sjálf að standa fyrir annarri aðgerð í dag og tengist hún auðvitað Tíbet. 

Í dag ætlum við að taka þátt í alþjóðaaðgerðum til að vekja athygli á ástandinu í Tíbet - hætt hefur verið við að hlaupa með kyndilinn um skjálftasvæðin í Tíbet í dag en kínversk yfirvöld ætla að fara með hann til Lhasa næstkomandi laugardag. Þrátt fyrir miklar tilraunir til að hafa áhrif á IOC til að þrýsta á CCP um að hætt verið við að fara með kyndilinn til Tíbets hafa þeir hunsað þá ósk, en óttast er að þessi athöfn verði tilefni mótmæla í Tíbet og það þýðir aðeins eitt: fleiri handtökur og jafnvel morð á þeim sem andmæla þessari táknrænu athöfn um yfirráð CCP á Tíbet. Við höfum fengið að láni alvöru Ólympuleikakyndil frá síðustu Ólympíuleikum og ætlum að fara frá kínverska sendiráðinu til stjórnarráðsins. Hittumst við kínverska sendiráðið klukkan 17:30 í dag.     

 


mbl.is Skar íslenska fánann á Stjórnarráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verð með þér í huganum duglega baráttukona. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2008 kl. 09:52

2 identicon

Og tilgangurinn með þessari ekki vanhelgun á Íslenska fánanum á 17 júní er hver ?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 09:52

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Birna mín kíktu á aftaka.net og lestu þar yfirlýsinguna...

en það sem ég er að benda á er að fréttin var röng... fáninn var ekki skorin í ræmur, hann var yfirhöfuð ekki skorin neitt..

hef ekki tíma til að fara í vangaveltur um tilgang fánaaðgerðarinnar

bendi þér á að lesa þér til um tilganginn inn á vef anarkista... aftaka.org

takk Ásthildur mín:)

Birgitta Jónsdóttir, 18.6.2008 kl. 10:22

4 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Ég skildi ekki skammstafirnar þínar, en ég er viss um að þú hafir farið með rétt mál.

Kær kveðja. Björn bóndi.  (KkBb).

Sigurbjörn Friðriksson, 18.6.2008 kl. 13:12

5 identicon

Það skammarlegasta við þennan atburð er að mbl.is flytur staðhæfulausa æsifrétt af honum og hefur ekki enn leiðrétt hana.

Ég gerði athugasemd við pistilinn á aftaka.org  og held það þurfi ekki að segja meira um fréttaflutning mbl.is.

Kalli (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 14:19

6 Smámynd: Jens Guð

  Það yrði saga til næsta bæjar ef mbl.is segði satt og rétt frá svona atburði. 

Jens Guð, 18.6.2008 kl. 18:52

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

CCP, er það ekki fyrirtæki sem gerir út tölvuleik á netinu?

Brjánn Guðjónsson, 18.6.2008 kl. 19:34

8 identicon

Vona að gangan hafi gengið vel og verið fjölmennt, hugsaði til þin um sexleitið, baráttuforkur!!

alva (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 23:35

9 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Þetta var yndælisganga - fullkomið fánaveður

Mættu allt of fáir, hefði viljað vita af skýrslu AI fyrr, en hún birtist í dag og í henni kom fram að yfir 1000 manneskjur í Tíbet eru horfnar eftir mótmælin þar í landi undanfarið...

Birgitta Jónsdóttir, 19.6.2008 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband