Leita í fréttum mbl.is

Árlegir minningartónleikar til heiðurs mömmu

Ég hlakka til að heyra lögin hennar mömmu færð í algerlega nýjan búning í kvöld. Hefði auðvitað átt að láta vita af þessu fyrr - en tíminn er eitthvað svo fljótur að renna úr greipum mínum þessa dagana. Lofa að skrifa næst um pólitík. Mamma hefði orðið 62 ára í dag og hennar er sárt saknað, sér í lagi á svona dögum. 

Nýi Kvartettinn á árlegum minningartónleikum til heiðurs Bergþóru Árnadóttur

Kápan af bókinniFrumfluttar verða nýjar útsetningar Nýja Kvartettsins á lögum Bergþóru við ljóð hennar og margra þjóðkunnra skálda. Hér verður einstakt tækifæri til að heyra nýjar og áður óþekktar hliðar á lögum Bergþóru í flutningi þeirra Gissurar Páls Gissurarsonar tenórs, Hjörleifs Valssonar fiðluleikara, Örnólfs Kristjánssonar sellóleikara og Árna Heiðars Karlssonar píanóleikara sem saman skipa Nýa Kvartettinn. Þeir eru allir mjög virkir í íslensku tónlistarlífi og hafa sem kvartett vakið athygli fyrir vandaðan flutning og skemmtilega sviðsframkomu.

Óhætt er að mæla með þessum sögulegu tónleikum sem hefjast í Salnum kl 20 á afmælisdegi Bergþóru 15. febrúar.

Hægt að kaupa miða hér: 
http://midi.is/tonleikar/1/5830/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú heldur betur við hæfi Birgitta mín að Gissur Páll Gissurarson ætli að syngja því þar er fanta-Tenór á ferðinni.

Til hamingju með daginn!

g

sandkassi (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 13:45

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Enginn flytur lögin hennar betur en hún gerði sjálf. Blessuð sé minning hennar.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.2.2010 kl. 14:32

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með mömmu þína Birgitta mín.  Ég er sammála því að engin flytur lögin betur en hún.  það er samt gaman að heyra aðra útsetja og flytja löginn hennar.  Sýnir bara svo glöggt hve góður lagasmiður hún var, og hvað hún var nösk á að velja texta við hæfi.  Hún var alveg einstök kona og ég er svo glöð að hafa kynnst henni persónulega setið með henni í eldhúsinu og hitt þar margt merkilegt fólk og ekki síst hana sjálfa og lífsstíl hennar.  Blessuð sé minning Bergþóru sem svo sannarlega skilur eftir sig margt fallegt og lærdómsríkt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2010 kl. 17:25

4 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Innilega til hamingju kæra vina, lögin hennar mömmu þinnar munu lifa með þjóðinni um aldur og ævi og hennar minnst með þakklæti og virðingu. Einnig langar mig að þakka þér framgöngu þína í þjóðmálum í okkar þágu og hvet þig til að halda ótrauð áfram þeirri baráttu.

Hulda Haraldsdóttir, 16.2.2010 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.