Leita í fréttum mbl.is

Var að fá heildarútgáfuna af tónlistinni

hennar mömmu í hús. Mikið er ég ánægð með hvernig þetta kemur út. Það var ekkert hægt að fá útprentaða próförk vegna þess hvað það var flókið að ganga frá settinu. Ég varð bara að bíða og vona að útlitið sem ég hannaði kæmi þokkalega út. Ég er mjög ánægð með þetta allt. Gott sound á lögunum, fallegur kassinn og gaman að sjá og handfjatla umslögin af plötunum svona pínulítil.

Yngri sonur minn fékk eitt sett og hélt dauðahaldi í það... hann var svo tengdur ömmu sinni. Svo kom ég að honum elsku krúttinu grátandi inní eldhúsi með mynd af sér og ömmu B að hlusta á fyrsta diskinn. Það var bæði svo fallegt og sorglegt.

Ég finn fyrir ákveðinni sátt gagnvart öllu sem erfitt er að setja í orð. Þakklát þeim velvilja og hlýju sem minningu mömmu hefur verið auðsýnd. Minningartónleikarnir voru ólýsanlega fullkomnir og ég hefði engu viljað breyta í þessari mögnuðu alkemíu sem þarna skapaðist fyrir viku síðan...

Takk allir sem tóku þátt í þessu, þessir tónleikar voru ekki síst magnaðir vegna þess hve áhorfendur voru frábærir. Allir sem voru með í að skapa þetta voru líka einstaklega jákvæðir og mikið ævintýri að fá að heyra þau klæða lögin í nýjan búning. 

Vegna þess að það seldist upp svo hratt og hve margar fyrirspurnir við höfum fengið um aukatónleika þá erum við á fulla að vinna að því. Þeir munu verða í mars. Set færslu um það hér og á Bergþórubloggi um leið og dagsetningarnar eru komnar á hreint. 


Auglýsingar og ekki auglýsingar á moggabloggi

Ég var ein af þeim sem hafði hátt þegar skyndilega auglýsing frá fyrirtæki sem ég er lítið hrifin af birtist á bloggi mínu. Moggabloggsstjórar hafa brugðist við athugasemdum bloggverja sem kærðu sig ekki um þetta og getur maður nú keypt auglýsingarnar burt af sinni síðu. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir það. Ég er ekki ein af þeim sem ætlast til að fá hlutina ókeypis en margir kverúlantar hafa talað niður til okkar sem vildum valkost og sagt okkur vera frekjur og nöldurskjóður. Ég hygg að margur haldi mig sig:)

Ég er allavega búin að kaupa þessa auglýsingu burt og býð mínum lesendum og vinum upp á auglýsingafrítt blogg:) og get þá farið að blogga af kappi á ný. Auðvitað hefur margt gott gerst í blogghléi og ég hef oft verið alveg að springa úr löngum að tala um það. Þetta svæði hefur verið einskonar tilraunasvæði í mannlegum samskiptum hjá mér og hefur mér fundist þessi tilraun í 99% skipta hafa verið mjög jákvæð upplifun. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á netheimum og verið forvitin um hvernig það þróast. Hélt meira að segja út bloggi í aðdraganda fyrstu margmiðlunarhátíð landsins árið 1996. Hygg að það hafi verið eitt af fyrstu bloggum landsins. Það er enn til í netheimum sem söguleg heimild. Skammast mín smá fyrir afleita ensku á því... en það er samt eins og mörg góð blogg einlægt og laust við hroka.

Enn og aftur : takk fyrir að hafa valkost:) 

 


Ástæðan fyrir því að hætti að borða kjöt

fyrir 21 ári. Ég veit að ástandið er ekki svona slæmt hérlendis, en þó eru dæmi þess að ákaflega illa sé farið með dýrin á hænsabúum hérlendis og það hefur verið vitað lengi. Er ekki að fara fram á að fólk hætti að borða kjöt, vildi bara gjarnan að fólk kannaði við hvernig aðbúnað dýrin sem það kýs að éta búi við. Þetta bandaríkska sláturhús sem hér er fjallað um hefur á sér ákveðinn góðmennsku stimpil og hafa voðaverkin verið framin undir þeim stimpli. Downed kýr, þýðir að dýrin eru orðin það veikburða að þau geta ekki gengið lengur.

Take actionnow!Yesterday, the USDA issued the largest recall of beef in U.S. history, the latest action in response to The Humane Society of the United States’ groundbreaking undercover investigation of a dairy cow slaughter plant in Southern California.

The recall of 143 million pounds of beef came two days after San Bernardino County District Attorney Michael Ramos filed criminal charges against slaughter plant workers caught on video torturing crippled cattle, and two weeks after the USDA shut down that slaughter plant.

Our undercover investigation revealed shocking abuses of "downed" dairy cows -- those who are too sick or injured to walk -- at the Hallmark Meat Packing Company slaughter plant. Cows too weak to stand were dragged along the ground, shocked with electric prods, rammed with forklifts, and even forced to endure water being forced into their noses and throats -- an act right out of the manual on water boarding.

 

Please watch our investigative video, and then take action today to stop this cruelty from happening again.

Our video of the cruelty is very difficult to watch. Even worse is the thought that an outfit like Hallmark Meat Packing Company got away with this kind of abuse every day, without proper oversight from the USDA.

Urge the USDA to tighten its lax enforcement of the downer rule and to close the rule's loophole -- so that cows who are obviously in no shape to walk are not brought to slaugherhouses in the first place and then abused once they are there. 


Enn bíð ég eftir svörum vegna auglýsinga

Maður er búinn að leggja óhemju vinnu í þetta blogg, og ég er alveg til í að borga fyrir hýsingu ef ég losna við hreyfimyndahörmung af bloggi mínu.

ÉG VIL FÁ VALKOST, TAKK FYRIR, NÚNA! 


Dagur hins óskilyrta kærleika

**********(¨`·.·´¨)*************

**********(¨`·.·´¨)*************

******(¨`·.·´¨).¸..(¨`·.·´¨)********

*(¨`·.·´*·. ¸.·´ ** `·.¸.·´ `·.·´¨)****

* `·.¸.·*****ÁST*****.¸.·´****

*******(¨`·.·´¨) (¨`·.·´¨)*********

********`·.¸(¨`·.·´¨)..·´**********

************`·.¸.·´**************

******(¨`·.·´¨).¸..(¨`·.·´¨)********

*(¨`·.·´*·. ¸.·´ ** `·.¸.·´ `·.·´¨)****

* `·.¸.·*****ÁST*****.¸.·´****

*******(¨`·.·´¨) (¨`·.·´¨)*********

********`·.¸(¨`·.·´¨)..·´**********

************`·.¸.·´**************

**********(¨`·.·´¨)*************

******(¨`·.·´¨).¸..(¨`·.·´¨)********

*(¨`·.·´*·. ¸.·´ ** `·.¸.·´ `·.·´¨)****

* `·.¸.·*****ÞÚ*****.¸.·´****

*******(¨`·.·´¨) (¨`·.·´¨)*********

********`·.¸(¨`·.·´¨)..·´**********

************`·.¸.·´**************

**********(¨`·.·´¨)*************

******(¨`·.·´¨).¸..(¨`·.·´¨)********

*(¨`·.·´*·. ¸.·´ ** `·.¸.·´ `·.·´¨)****

* `·.¸.·*****MIG*****.¸.·´****

*******(¨`·.·´¨) (¨`·.·´¨)*********

********`·.¸(¨`·.·´¨)..·´**********

************`·.¸.·´**************

**********(¨`·.·´¨)*************

******(¨`·.·´¨).¸..(¨`·.·´¨)********

*(¨`·.·´*·. ¸.·´ ** `·.¸.·´ `·.·´¨)****

* `·.¸.·*****ÁST*****.¸.·´****

*******(¨`·.·´¨) (¨`·.·´¨)*********

********`·.¸(¨`·.·´¨)..·´**********

************`·.¸.·´**************



Moggabloggsverkfall vegna auglýsinga

Hætt að blogga, þangað til að mér verður boðinn samningur eða eitthvað slíkt, þar sem ég hef eitthvað að segja um hvort og eða hvernig auglýsingar birtast inni á mínu bloggi. Ég gæti ekki lifað með sjálfri mér ef það kæmi til dæmis Landsvirkjunar auglýsing eða Alcoa auglýsing inn á bloggið mitt, eða kjöt eða mjólk eða goldfinger.... listinn er of langur til að nokkur myndi nenna að lesa hann.
 
Ef fólk vill málefnalegri rök þá hefur hann Sigurður Þór sagt allt sem ég segja vil á sínu bloggi, nimbus.blog.is  
 
Mér finnst líka NOVA ömurlegasta fyrirtæki sem hefur rutt sér inn á íslenskan markað. Þeirra aðferðir eru svona in your face aðferðir sem fá mig til að sniðganga fyrirtækið um aldur og ævi. Kemur mér ekki á óvart að þeir skildu troða sér inn í bloggsamfélagið. Hvet ég alla sem koma hingað að sniðganga NOVA
 

Vetur konungur

Það er ágætt að vera minntur á það að maður er búsettur á landi þar sem allra veðra er von. En verð að viðurkenna að þrátt fyrir að vera alveg ýkt bjartsýn mannvera, þá er þessi vetur að slá öll met í að ögra þolinmæði minni. Það sem mér finnst bagalegast er að þurfa að hanga svona mikið inni. 

Finn að fátt gefur mér meiri lífsfyllingu en að þvælast úti, fara yfir heiðina til ömmu og kíkja á foss í hennar heimabæ, eða bara labba í hring um tjörn. 

Sumarið hlýtur að verða alveg rosalega gott. Og kannski erum við Íslendingar með svona mikið gullfiskaminni til að gleyma vondu veðurfari, annars væri þessi þjóð sennilega óhamingjusamasta þjóð í heimi en ekki hamingjusamasta. Það væri gaman ef að þjóðarpúls gallup tæki könnun á hamingjustuðli þjóðarinnar í dag. Hygg að hann væri allt öðruvísi í svona veðurfari en á sætum sumardegi. 

 


mbl.is Lægðir og úrkoma út mars?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjötborg er besta búðin í borginni

Þeir bræður er þekktir fyrir að vera mikil gæðablóð og er það svo augljóst á Öskudaginn, því engin búð tekur eins vel á móti börnunum sem rata þar inn á þessum degi. Ég vona að þessi búð leggist ekki af, þarf að vera miklu duglegri að versla hjá þeim. Það nefnilega fæst allt á milli himins og jarðar hjá þeim. Alger ævintýraheimur þótt matvöruverslun sé þeirra aðal.

Langaði bara að þakka þeim Kjötborgarbræðrum fyrir að vera til og fyrir manngæskuna sem ég hef alltaf mætt þegar ég versla hjá þeim. 

 


Rangfærslur

Ég átti í stappi við mannanafnanefnd í mörg ár, vegna úrskurðar þeirra um að heimila ekki nafn eldri sonar míns. Nafnið féll undir allar þessar meginreglur sem tilgreindar eru. Rökin sem við fengum voru þau að honum gæti verið strítt ef hann fengi að halda nafninu. En það er hægt að stríða öllum börnum á nöfnum sínum. Meira að segja venjuleg nöfn eins og Anna er til þess fallin að nota til að uppnefna. Það eru abstrakt rök sem við gátum ekki fellt okkur við. Neptúnusi hefur ekki verið strítt meira en öðrum börnum á nafninu sínu. Hann hefur alla tíð verið mjög ánægður með þetta nafn og alveg ferlegt að þurfa að nota leppnafn á opinberum skjölum í mörg ár. Átta árum eftir fyrsta úrskurð var loks komið annað fólk í þessa nefnd sem feldi sig við rök mín og nafnið fékkst á endanum samþykkt eftir mikið vesen í kerfinu. 

Þegar ég var ólétt af Neptúnusi dreymdi mig í tvígang drauma þess efnis að sonur minn vildi þetta nafn. Og hér á landi er hefð fyrir því að virða draumanöfn. Nafnið féll algerlega að íslenskum málfari, enda ekkert nýyrði. Beygt eins og Markús eða Júlíus og frá sömu rótum runnið. En ekki dugðu þau rök á sínum tíma og ef ég væri ekki alveg afskaplega þrjósk manneskja og ef hann hefði sjálfur ekki óskað þess svo innilega að fá að hafa þetta nafn þá er ekki ólíklegt að maður hefði gefist upp. 

Skil ekki af hverju Curver má ekki fá nafnið sitt samþykkt. Held að þetta hafi einmitt meira með skoðanir að gera en eitthvað sem faglegt mætti teljast.

Satt best að segja þá held ég að tími sé kominn á að leggja þessa nefnd niður, hún er allt of forræðishyggjuleg og hennar úrskurðir eru æði mistækir og lituð af skoðunum þeirra sem í henni sitja. 

 


mbl.is Guja og Vár en ekki Curver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég elska Laugaveginn

hljomalind

Ég viðurkenni fúslega, að ég elska Laugaveginn. Því varð ég fyrir verulegu áfalli þegar ég fletti í gegnum myndir af öllum húsunum sem fyrirhugað er að rífa eða fjarlægja frá götunni sem ég elska að labba og hef arkað svo oft að ég hef ekki tölu á því.

Ég átti eitt sinn heima í einum af þessum sérdeilis sérstöku húsum sem til stendur að taka í burtu. Það eru 20 ár síðan og þá stóð einmitt til að rífa húsið. Ekki var mikið gert fyrir húsið á þessum tíma vegna þess að það átti að rífa það einhvern næsta daginn. En mikið var rosalega góður andi í þessu húsi og tréð sem slútti yfir innganginn er víst næst elsta tré borgarinnar. Þetta hús er Laugavegur 21 og hefur hýst alls konar merkilega og manngöfgandi starfsemi síðan ég leigði þar. Nú síðast hefur Hljómalind verið með vinalegasta kaffihús bæjarins í húsinu og tréð aldrei fallegra. Á sumrin er portið iðandi af lífi og oft opið inn í Sirkusportið og alls konar skemmtilegir markaðir þar sem hægt er að kaupa sögulega nútíma hluti. Ég get ekki sætt við mig að það eigi að endanlega ganga frá þessari götu sem er einmitt skemmtileg vegna þess að þessi hús grípa augað með sögu sinni og handverki. 

Hver hefur ekki farið í Brynju til að fá aukasett af lyklum og eins og einn nagla. Það sem er kannski sorglegast við þetta allt saman er sú staðreynd að þeir sem ákváðu að það væri í lagi að rífa og breyta, sjá ekki að sérstaða Laugavegins er þessi fullkomna alkemía þess gamla og nýja. Það er stór hópur fólks sem fer aldrei í verslunarmiðstöðvar vegna þess að þeim hugnast ekki hve ópersónulegar þær eru. Laugavegurinn er persónuleg gata, þar sem hægt er að fá hluti sem fást ekki annars staðar í borginni okkar.

Ég er frekar fúl yfir þeim mistökum sem gerð voru þegar hin ólýðræðislega einveldisborgarstjórn tók upp á því að kaupa tvö hús um daginn fyrir 600 milljónir, þetta eru í raun og veru lang ljótustu húsin sem stendur til að rífa eða færa. Af hverju var ekki hægt að bíða eftir úrskurði Menntamálaráðherra? Ég kemst ekki hjá því að hugsa um maðka í mysu. Veit ekkert hverjir þessir maðkar eru en þetta er bara svo mikið ofurklúður að maður á bágt með að trúa því að fólk geti klúðrað svona stórt án þess að gera það að yfirlögðu ráði!

Mér finnst þessi ákvörðun veikja möguleikana stórum á að hægt sé að bjarga götunni minni, en sem betur fer þá eru fullt af duglegu og kláru fólki að vinna að því að hindra þetta slys. Hér er slóð í vefinn Laugavegur og nágrenni, þar sem hægt er að skoða húsin sem eru á útrýmingarlistanum. Þau eru í afar misjöfnu ástandi en þau eiga að það skilið að vera gerð upp og sýnd virðing. Við eigum alveg nóg af götum í borginni sem eru einsleitar. Þeir sem sækja í stóru verslunarmiðstöðvarnar, fara hvort er eð ekki að spássera um Laugaveginn í verslunarerindum.

Það sem mætti gera fyrir Laugaveginn væri að leyfa honum að vera eins og hann er. Þessi gata þarfnast einskis, nema skilning á að húsin megi standa og eitthvað verði gert fyrir þau. Það er nóg af bílastæðum, gönguleiðum, skringilegum og skemmtilegum verslunum, kaffihúsum og veitingastöðum til að halda áfram að laða að sér mannfólk um langa hríð.

Læt hér fylgja með ljóð úr smákverabók minni Reykjavík sem ég skrifaði þegar ég bjó

Við Laugaveg

 

Hvít hönd

strýkur burt frostrós.

Börn borgar 

     ljós borgar

í einum punkti

í miðju borgar.

 

Bros mót götuvitum

og sól við tjörn.

 

Augu anda og svana

fyllt grátklökkum

saknaðartárum

þegar vorið sem 

aldrei varð 

sekkur í djúpin.

 

Þá rís upp úr 

vatninu

andi horfinna tíma.

Kallast á við fuglana.

 

En svanirnir synda um

í blúndugardínu í glugga

sem vísar út á lífið.

Tileinkað húsinu að Laugavegi 21 

þar sem þetta ljóð var skrifað 1988. 


Dregur nær tónleikum og Bergþórulag dagsins

Ég mun fram að minningartónleikum til heiðurs Bergþóru Árnadóttur setja inn nýtt lag á hverjum degi sem verður flutt á tónleikunum inn á bergthora.blog.is. Hvert lag verður bara inni í einn dag í senn, ég set jafnframt inn nafn flytjanda og ljóðið. Hvet alla til að taka frá nokkrar mínútur dag hvern og leggja við hlustir og lesa eitt gott ljóð í kaupbæti:)

Ég er orðin mjög spennt að heyra og sjá dagskránna. Enda alveg frábært samansafn af tónlistarfólki sem mun taka þátt.

Annars er ég líka spennt yfir öðru sem ég hef verið að setja saman. Ég fann alveg frábæra skáldkonu þegar ég var í Níkaragva í fyrra og þegar hún sendi mér handrit af óútgefnu handriti, þá varð ég hreinlega að gefa bókina út. Ég er að leggja lokahönd á uppsetningu bókarinnar en hún verður gefin út í litlu handgerðu upplagi í byrjun febrúar og flest eintökin fara til Níkaragva með skáldkonunni Margréti Lóu sem fer út í þetta sinn til að taka þátt í algerlega ótrúlega sérstakri skáldahátíð þar í landi. Mér finnst alltaf svo mikil gjöf að fá að hjálpa öðru fólki að láta drauma sína rætast:) En bókin hennar Helen Dixon er ein af bestu ljóðabókum sem ég hef verið svo lánsöm að lesa.


Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni

Siggi nokkur pönk var að gefa út bókina Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni, ætla að tryggja mér eintak, þó svo maður hefur lesið fjölmargar bækur um þessi hluti þá er alltaf gaman að lesa þá í samhengi við okkar sérstæða og gjörspillta samfélag:) Mæli með að þeim sem er nóg boðið í tengslum við valdaránið í borgarstjórn fengju sér þessa bók... Læt tilkynninguna sem ég fékk frá honum fylgja...

"Út er komin ný bók frá Anarkistaútgáfunni Andspyrnu. Hún heitir "Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni" og er kynning á friðsamlegum mótmælum, beinum aðgerðum og borgaralegri óhlýðni sem verkfærum almennings til varnar sínu samfélagi. Meðal annars er sagt frá hvernig rannsaka má fyrirtæki, skipuleggja grasrótarhópa og undirbúa aðgerðir, stöðva vinnu, hindra aðgang að afmörkuðum svæðum, fjallað er um mótmælabúðir, réttarstöðu mótmælenda, consensus og kulnun í aktivistahlutverki.

Þessi bók kemur út á réttum tíma, þar sem mikil umræða hefur átt sér stað um náttúru og tilgang mótmælaaðgerða og óflokksbundinnar stjórnmálaþátttöku, sem náði ákveðnu hámarki þegar mótmælendur stöðvuðu fund nýs meirihluta í borgarstjórn í síðustu viku.

Af bókarkápu:Andspyrna við valdbeitingu og óréttlæti er náttúrulegt og eðlilegt ferli í samfélögum manna.  Því erum við ekki að berjast fyrir náttúruna þegar við myndum andspyrnuhópa gegn stóriðju heldur erum við náttúran að svara fyrir sig.  

Við erum heldur ekki beint að berjast fyrir betra samfélagi þegar við myndum hópa sem verja mannréttindi, heldur erum við samfélag að verja sig.  

Bók þessi fjallar um beinar aðgerðir og borgaralega óhlýðni sem verkfæri þeirra sem vilja hafa áhrif í sínu samfélagi en hafa hvorki opinber völd né áhuga á þeim. 

Hér er meðal annars fjallað um og leitað svara við eftirtöldum atriðum: Hver er munurinn á friðsamlegum mótmælum, borgaralegri óhlýðni og beinum aðgerðum? Hverning má stöðva vinnu á afmörkuðum svæðum og gæta eigin öryggis um leið?  Hvernig er gott að standa að skipulagi aðgerða  og aðgerðahópa.  Hvernig geta borgarar myndað þrýstihópa, rannsakað starfsemi fyrirtækja og ef til vill hent rjómatertum í stjórnmálamenn. Er hægt að taka yfir götur og breyta þeim í útivistarsvæði?  

Við getum aldrei myndað hið fullkomna samfélag-en það er rétt að reyna hvað maður getur til þess. 

-Í raun fjallar þessi bók um ábyrgð og hugrekki. 

"Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni" er ríkulega skreytt myndum og skýringamyndum. Hún er 100 bls og kostar rétt rúmlega 1000 kr (fer nokkuð eftir mismunandi álagi ólíkra útsölustaða). Hún fæst m.a. í Hljómalind, 12 Tónum, Nexus, Ranimosk og nokkrum verslunum Pennans/Máls og Menningar."

 


Ó, borg, mín borg, söng paradísafuglinn og hló og gelti

Mikið hefur verið rætt um borgarmálin og var ég rétt í þessu að horfa á alveg bráðskemmtilegt Silfur Egils tileinkuðu farsa að hætti Dario Fo. Ég hló miklu mun meira af því sem þar fór fram enn af umdeildum Spaugstofuþætti, sem note bene, mér fannst bara ekkert leiðinlegur, þó þeir hefðu mátt fara mildari höndum um núverandi borgarstjóra. 

Það var með ólíkindum að horfa upp á sumt fólkið sem þarna var, réttlæta það sem undan er gengið. Finnst einmitt það sem Dagur vék að vera afar heilbrigð sýn á þessi mál. Ólafur er notaður sem skjöldur, á meðan aðal átökin ættu að vera á milli xD og xS.

Hvert klúðrið á fætur öðru hefur ungast út eftir valdaránið í vikunni. Ég hef reyndar haft litla trú á því að ég búi við lýðræði undanfarin ár, en hef aldrei áður fengið jafn mikla sönnun á því að ég búi við einveldi. 

Mér fannst sorglegt að fylgjast með fulltrúum Íslandshreyfingarinnar í þessum þætti. Þau virðast alveg jafn áfjáð í völd eins og hinir, sama hve fórnarkostnaðurinn er mikill. Hvað með borgarbúa, hvað með alla borgarstarfsmennina sem þurfa enn einu sinni að byrja upp á nýtt út af síbreytingum sem ekki aðeins núllstilla allt of margt, heldur eru jafnframt afar kostnaðarsöm fyrir okkur. Hvernig er hægt að réttlæta 600 milljónirnar fyrir Laugaveg 4-6, svona stuttu áður en Menntamálaráðherra myndi afgreiða málið. Hvernig er hægt að réttlæta að við fáum ekki að kjósa um nýja borgarstjórn, þegar svo stórt hlutfall borgarbúa vill ekki þetta fólk í þau embætti sem þau hafa tekið sér með glórulausri valdafíkn? Það sem mér finnst kannski alvarlegast enn sem komið er, var að borgarstjórninn setti konu yfir barnaverndarnefnd að henni forspurði og sú hin sama hafði bara alls ekki hug á því embætti. Þetta er einmitt viðkæmasta nefndin og afar mikilvægt að hún sé starfshæf. Þá finnst mér einkennilegt hve mikið er um að sama fólkið sé sett yfir nefndir, en forsenda þess að afgreiða málefni á nefndarfundum er, hefði ég haldið að formaður nefndar sé til staðar. Úff þetta er nú meira ruglið.

Ég finn að ég er óhemju gröm yfir þessu og vildi óska þess að samborgarar mínir leggi nú meira á sig en að tala bara um þetta. Við megum ekki gera þeim þetta valdarán auðvelt. Mér finnst ég eiga rétt á að fá að kjósa og hygg að ég muni senda allavega eitt eða tvö bréf á dag á þessa borgarstjórn og biðja um slíkt.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 509628

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.