Leita í fréttum mbl.is

Gleymum því ekki af hverju boðað er til kosninga

 
Burt með spillinguna, leyndina, ráðherraræðið
 
Hér er mínúturæðan mín um niðurskurð sem ég flutti á stöð 2
 
Það eru engar töfralausnir – stjórnsýslan er allt of dýr og illa rekin. Við þurfum að byrja á að skera af henni góðærisspikið, niðurskurður af óþarfa lúxus og gæluverkefnum er forgangsverkefni. Borgarahreyfingin hafnar því alfarið að skorið verði niður í mennta- og heilbrigðisþjónustu og að auðlindir landsins verða seldar eins og oft er krafa AGS.

Í stefnu Borgarahreyfingarinnar stendur að AGS eigi ekki að ráðskast með ríkissjóð og að auðlindir þjóðarinnar verði þjóðareign.

Samningur fyrri ríkisstjórnar við AGS skuldbindur okkur til að skera niður um 50 milljarða á ári og að varpa yfir á þjóðina skuldum sem hún stofnaði ekki til vegna ICESAVE. Slíkan samning er ekki hægt að standa við nema að skaða undirstöður samfélagsins og setja börn okkar og barnabörn í skuldafangelsi.

Slíkur samningur er siðlaus. Við verðum að semja við sjóðinn upp á nýtt.

mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

HEYR HEYR!! ROCK ON :)

41% fylgi hjá félögum í Hagsmunasamtökum heimilanna. Það er fólk sem er virkilega búið að skoða hvað framboðin ætla að gera fyrir heimilin.

Við erum á réttri leið Birgitta!

Baldvin Jónsson, 24.4.2009 kl. 10:14

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

það má segja það Baldvin :)

Birgitta Jónsdóttir, 24.4.2009 kl. 10:23

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Nú þekki ég þig ekki neitt eða neinn í X-O annan en Þráinn og mér finnst hann málefnalegur, skemmtilegur og hnyttinn. því ætla ég að vernda atkvæði mínu í kross og afhenda ykkur það, vinsamlegast farið vel með það og þið verðið án efa sigurvegarar í þessum kosningum, finn það á mér og fylgist vel með í netheimum og það virðist þið vera að fá mikið fylgi.

Sævar Einarsson, 24.4.2009 kl. 10:39

4 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Ég spái því að þið fáið óvænt 3 til 4% umfram það sem spár sýna og það kosti óvininn mikla, sjálfstæðisflokkinn tvo þingmenn eða svo.

Síðan er að sjá, eins og ég benti áður hvort flokkarnir snúi þessu ekki höndunum á ykkur og láti ykkur kviðrista sjálf ykkur. Það eina sem komið getur í veg fyrir það er að vera 100% lýðræðissinnar, um leið og þið verðið "flokkur" eyðileggið þið það sem þið standið fyrir. Á því eru yfirgnæfandi líkur, EN það er þess virði að gefa ykkur tækifæri. Lítið til Grikkja fornaldar í þessum efnum. ALGERT lýðræði er spennandi kostur sem í fyrsta sinní sögunni síðan borgríkin voru og hétu er það raunhæfur möguleiki.

Ég býst við að þið lendið í stjórnarandstöðu hinsvegar og þá þarf að  brýna baráttuaðferðirnar enn frekar í þá áttina. Málefni ykkar njóta nefnilega mun meiri stuðnings en þið gerið og þið þurfið að beisla það afl.

Gangi ykkur vel.

Rúnar Þór Þórarinsson, 24.4.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 508712

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband