Leita í fréttum mbl.is

Leyndarmálamenning=lágmenning

bananalydveldi_707953.jpgÉg skora á almenning að krefjast þess af flokkum þeim sem þau ætla sér að kjósa að flokkarnir afnemi allri leynd. Ég skora á almenning að krefjast þess að bankaleynd verði afnumin ellegar neita að kjósa, ég skora á almenning að krefjast þess að leynd á orkuverði til fyrirtækja verði afnumin ellegar neita að kjósa, ég skora á almenning að krefjast þess að leynd á skilmálum IMF/AGS verði aflétt, ellegar neita að kjósa.

Við höfum valdið, við eigum þetta kerfi kæru landsmenn. Í leyndarmálamenningu þrífst spilling og óvissa. Leyndarmálamenning er lágmenning sem við eigum að hafna að taka þátt í. Við viljum allt upp á borðið hjá öllum flokkum. Hverjir styrkja flokka og menn í prófkjörum frá t.d. 2000. Aðeins með því að koma öllu upp á borðið er hægt að byrja að taka á spillingu og siðrofi sem einkennir allt hérlendis.


mbl.is Allt komið fram sem máli skiptir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Rósa Sigurðardóttir

Frábær pistill Birgitta. Burt með klíku-, þöggunar- og leyndarmálasamfélagið.

Margrét Rósa Sigurðardóttir, 12.4.2009 kl. 10:51

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Nákvæmlega!

Georg P Sveinbjörnsson, 12.4.2009 kl. 14:40

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

"Leyndarmálamenning", eins og þú orðar það svo ágætlega Birgitta, er alltaf ávísun á sjúkt og spillt samfélag.

Gleðilega páska,

Hildur Helga Sigurðardóttir, 12.4.2009 kl. 15:37

4 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Birgitta. Ég vek athygla þína á fánalögunum. Það er ykkur í Borgarahreyfingunni ekki til sóma að brjóta landslög.

Hilmar Gunnlaugsson, 13.4.2009 kl. 01:32

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég hef notað þessa mynd við ólík tækifæri í mörg ár - til að vekja athygli á því að við búum í bananalýðveldi. Ég birti þessa mynd persónulega - á mínu persónulega bloggi og myndbirtingin hefur ekki neitt með borgarahreyfinguna að gera:)

Birgitta Jónsdóttir, 13.4.2009 kl. 08:56

6 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Hilmar: þú gerir þetta liggur við á hverri einustu bloggsíðu sem þú kommentar á, gagnrýnir myndir sem fólk birtir. Hver dó og gerði þig að einhverjum sérlegum bloggsiðapostula?

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 13.4.2009 kl. 12:31

7 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er auðvitað á þína ábyrgð að nota þessa mynd en ég taldi þó rétt að benda á lögin.

Jónína. Ég hef sárasjaldan sett út á myndbirtingar á síðum en það tel ég rétt séu myndbirtingarnar ósæmilegar.

Hilmar Gunnlaugsson, 13.4.2009 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 508711

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.