Leita í fréttum mbl.is

Von á von ofan

Þetta þýðir að möguleikarnir á því að réttlæti nái fram að ganga margfaldast - sér í lagi ef hún fær raunsanna mynd af því hvernig spillingin hefur ofið sig hér allt um kring og ofan í dýpstu rætur fjórvaldsins.

Ég finn fyrir ákveðnum létti og von - þessi kona kann sitt fag og hlífir engum:) 


mbl.is Eva Joly sérstakur ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér verður aldrei sú ríkisstjórn að ekki komi að henni annaðhvort Sjálfstæðisflokkur eða Samfylking.

Hvorugur þessara flokka hefur áhuga á að koma upp um þá spillingu sem viðgengist hefur undanfarin ár.

Ég held að því miður, þá séu möguleikar á einhverju réttlæti engir.  Ráðning þessarar manneskju sem sérstaks ráðgjafa er bara stönt sem lítur vel út rétt fyrir kosningar.  Þessi manneskja er ekki að fara að vinna að nokkrum sköpuðum hlut hér á landi, hún er einungis ráðgjafi.

Hvort á ráð hennar verður hlustað efast ég síðan um, allavega ekki þar sem það kemur til með að skipta einhverju máli.

Björn I (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 17:34

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Alveg sammála Birgitta. Mikilvægt er að almenningur leggi traust á Jolly svo hún geti sinnt starfi sínu sem best.

Hilmar Gunnlaugsson, 10.3.2009 kl. 19:07

3 Smámynd: Þór Jóhannesson

Rétt að vissu leiti Björn I - því þarf mjög öflugan VG í sterkri vinstirstjórn eftir kosningar sem tryggir að auðvalds- og spillingararmur Samfylkingar hrökklist heim í helli sinn (Sjálfstæðisflokk) en strax hefur tekist að hrekja nokkar þeirra frá en því miður er sá stærsti - Björgvin G. - ennþá á leið á þing.

En með Evu og hennar líka að störfum með sterkan VG í vinstristjórn verður þessum fáu Samfylkingarspillingaröflum sem eftir eru einfaldlega bolað burt - því þegar allt kemur til alls að þá er grasrót Samfylkingarinnar öflug og óspillt.

Sterk vinstri stjórn með öflugan VG er beinasta og breiðasta leiðin út úr vandanum - sameinumst öll í VG og rekum þessa spillingu burt, annars er hætta á að glundroði og óeining okkar verði til þess að styrkja Sjálfstæðisflokkinn!

Þór Jóhannesson, 10.3.2009 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband