Leita í fréttum mbl.is

Leikhús fáránleikans

Á hverjum degi berast fregnir af viðburðum úr stjórnsýslu landsins sem minna meira á lélegan farsa og ég er farin að halda að ég sé stödd í leikhúsinu sem lýst var svo vel í Meistaranum og Margarítu.
mbl.is 95 milljóna gjaldeyristekjur af hval
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Eru þetta ekki árslaun tveggja til þriggja seðlabankastjóra ?

Finnur Bárðarson, 11.2.2009 kl. 16:00

2 Smámynd: Þór Jóhannesson

Munurinn á embættismönnunum í meistaraverki Búlgakovs "Meistaranum og Margréti" - eins og Árni Bergmann kallar bókina ávalt á íslensku - er sá að embættismannajakkafötin eru ekki tóm á Íslandi eins og í sögunni, það fylla út í þau spilltir flokksdindlar Sjálfstæðisflokksins hér á landi. Spurning hvort er skárra? 

Þór Jóhannesson, 11.2.2009 kl. 17:57

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú þarf að vakna.Það er enginn vafi að þessi tillaga um hvalveiðar er fyrst og síðast verk gagnbyltigasinna ,sem reyna nú að kæfa niður byltinguna.Mótmæli við hvalveiðiskipin og staða við þau allan sólarhringinn verður að byrja strax.Hægt væri líka að setja upp leiksýningu á Ægisgarði sem ætti að tákna hvalskurð, og lesa jafnhliða upp táknræn ljóð.En það verður að bregðast við strax.

Sigurgeir Jónsson, 11.2.2009 kl. 21:08

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Líka mætti huga að því að hella niður Ægisgarð rauðri málningu sem ætti að tákna blóð hvalanna, sem rynni að Hvalveiðiskipunum.

Sigurgeir Jónsson, 11.2.2009 kl. 21:12

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Betra væri náttúrlega að hella einhverju umhverfisvænu t.d.útþynntri tómassósu.

Sigurgeir Jónsson, 11.2.2009 kl. 21:14

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ekki veit ég hvort embættismenn úr röðum tvíturnaflokkaveldisins eða skeljarnar í Meistaranum séu skárri - þetta virkar allt eitthvað svo innantómt - ég er svo þreytt á þessu tuði inn á þingi um smáatriði á meðan fólk er að missa allt sitt og við að stefna í að glata öllu sem við eigum sem þjóð - fólk virðist bara ekki fatta hvað ICESAVE skuldbindingin mun gera okkur.

Ég væri alveg til í að mótmæla hvaladrápunum - veit að það er hægt að fá lífrænan rauðan lit - það var einhver listamaður sem litaði jökladranga á Grænlandi með lífrænum lit - man bara ekki hvað hann hét. Við vorum að spá í að gera svona gjörning út af Kárahnjúka drekkingunni. En það varð aldrei neitt úr því. 

Nú væri lag að fólk færi upp á Þjóðminjasafn og næði aftur í búsáhöldin sín - við erum rétt að byrja - embættismenn og ráðamenn halda áfram að hugsa fyrst og fremst um sig og sína flokkshagsmuni - við fólkið verðum að endurheimta landið okkar - kerfið okkar - látum ekki ræna okkur enn frekar. 

Ég hvet fólk til að hugsa vel og lengi og þrýsta á persónukjör - ég vil fá að raða fólki sjálf á lista. Ég vona líka að það komi annað framboð en það sem er í boði í dag - allir verða að stokka upp, endurskoða og ormhreinsa spillinguna sem hefur étið sig eins og fúi inn í íslenskt samfélag.

Birgitta Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.