Leita í fréttum mbl.is

Höldum áfram

Ég ætla að fara aftur á eftir. Í gær var fólk þarna á öllum aldri - frá öllum samfélagsstéttum - frá öllum flokkum - frá öllum trúfélögum - hef aldrei séð annan eins þverskurð af fólki á mótmælum. Sumir dönsuðu í kringum eldinn - aðrir stóðu í þvögunni og slógu á potta og pönnur og hrópuðu "vanhæf ríkisstjórn", enn aðrir stóðu utar og sýndu stuðning með viðveru sinni - það er pláss fyrir alla í mótmælum sem ekki er hægt að kalla annað en lýðveldisbyltingu - þetta er mótmælin okkar allra.

Ekki vera feiminn að koma ef þú vilt breytingar - ef réttlætiskennd þín hrópar hingað og ekki lengra. Ekki vera hræddur við okkur - því á mótmælunum erum við öll eitt - þarna rekst maður á ættingja og vini, þjóðþekkt andlit og fólk sem maður hefur aldrei skilið - en það skiptir ekki máli - því í grunninn erum við öll eins þó skoðanir okkar séu ekki alltaf eins. Okkur dreymir um réttlátt samfélag og til þess að fá það verður við að sýna það í verki - því það gerir það enginn fyrir okkur. 

Ef þið eigið ekki potta og pönnur til að framkalla hávaða - takið þá vatn og brauð handa þeim sem standa kannski vaktina allan daginn - sýnum að okkur er ekki sama um hvort annað - Í dag er ég þakklát og stolt af þjóðinni minni - höldum áfram - ekki gefast upp - við erum alveg að ná markmiði okkar.

Sjáumst á eftir:) - kæru mótmælendur.


mbl.is Mótmæli fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sylvía

sjáumst !

Sylvía , 21.1.2009 kl. 08:08

2 Smámynd: Dagur Björnsson

Flott hjá ykkur að framkalla svona hávaða og læti. Ég styð mótmæli en aðeins með friðsömum hætti....sem var ekki gert í gær! Mótmælendur komu fram í sjónvarpinu og spurði alltaf "hvað gerðum við?" og "við erum ekkert að gera neitt" . Málið var það að margir voru að haga sér eins og hálfvitar, skemma almenningseignir og svona, brjóta rúður í friðuðu húsi. "Brennan" var líka kolólögleg vegna þess að sækja þarf um leyfi frá sýslumanni og lögreglu, sem var eflaust ekki gert í gær! Finnst skrýtið að lögreglan hafi ekki slökt á henni fyrr. En ég verð að viðurkenna að lætin, köllin, þokulúðurinn, pottarnir, og "vanhæf ríkisstjórn" fannst mér sniðugt og flott en annað bara kjaftæði!

Dagur Björnsson, 21.1.2009 kl. 08:23

3 Smámynd: Hlédís

Tökum með mjólk! (Gjarna litlar fernur af nýmjólk) - Það er gott að hafa við hendina, ef óeirðalöggan (plast-skjaldsveinararnir) fer að leika sér með eitur. ´Nauðsynlegt að hafa eitthvað til að hella í brennd augu.

Óeirða-lögregla var réttnefni í gær - er þessi fyrirbrigði komu askvaðandi MEÐ DÓLGSLÁTUM í Alþingisgarðinn kl. um 13:30, þar sem friðsamir mótmælendur stóðu með sínar kökudósir og pönnur., rétt eins og framan við húsið. Höfðu þeir, óeirðalöggur, ennþá ekkert að gera en hófu samt stimpingar - hrintu fólki aftan frá, óvörum og því um líkt.  Þetta veit ég af eigin reynslu.        Athyglisvert er að framan við húsið þar sem aðalmótmælin foru fram, sást engin plastlögga - allt var friðsamlegt þar, enda litu fréttamenn varla/eða ekki þangað!

Hlédís, 21.1.2009 kl. 08:36

4 identicon

Já, það þarf að sækja um leyfi hjá sýslumanni og lögreglu fyrir smávegis brennu en ekki til að kollsteypa þjóðfélagi.

Ég hugsa að stjórnin fari frá á næstu dögum. Og það eru til myndir sem sýna fáránlegt og tilefnislaust athæfi lögreglu.

Hermann (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 11:04

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég ætla að vera í vaktafríi fram eftir degi.... er raddlaus og hreyfi mig eins og Gísli á Uppsölum í dag :) Safna kröftum og rödd svo ég geti farið aftur seinni partinn

Var einmitt frábær þessi samstöðufílíngur í gær. Þarna gengu nokkrir um með kaffibrúsa og pappaglös... einn kom með stútfullan plastpoka af Svala til að væta kverkar þeirra sem voru að öskra sig hása.... bláókunnugir féllust í faðma og óskuðu hvort öðru til hamingju með daginn....
Fæ tár í augun við upprifjunina!

Ég ELSKA þetta fólk... ÞETTA var þjóðin mín sem mætti í gær

Heiða B. Heiðars, 21.1.2009 kl. 11:33

6 Smámynd: Hlédís

þú hressist vonandi sem fyrst!  Þetta er eins og meðal-heyskapartörn eða -uppskipun hér fyrr á tíð

Já,  nú er þjóðin risin upp á annan afturfótinn. Valdhafar þurfa að vara sig þegar hún rís alveg upp. Það hef ég ekki séð gerast almennilega nema einu sinni á mínum 49 kröfugerðaárum. Tilefnið var að sumu leyti ekki eins alvarlegt og nú. Þá átti að byggja SEÐLABANKANN sem risavaxinn pýramýda á hvolfi OFAN Í  Arnarhól, þannig að hann gnæfði yfir hólinn!  Því tókst að afstýra vegna gífurlegra þverpólitíska andmæla.

Hlédís, 21.1.2009 kl. 11:53

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

þú ert flott hjá Jónasi!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 18:29

8 Smámynd: Hlédís

Kæra Anna B.M!  Mig langar að komast inn á þitt blogg! Hvað er að? er búið að loka á þig. Viltu endilega láta mig vita?!

Hlédís, 21.1.2009 kl. 18:42

9 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Hlédís...Takk...en ég lokaði því eftir ótrúlegt skítkast frá Vilhjálmi í Kaupmannahöfn á forfeður mína (föðurættin, en er af morðingum í alíslenska móðurætt en það "böggar ekki Vilhjálm ="Svartfugl") og svo Omegamönnum sem þyrptust um hann!...auðvitað allt ósatt, en margir voru að "pæla" á Íslandi hvort ekki væri "eitthvað"  hæft í þessu?...svo ég lokaði mínu vinsæla bloggi!

Er með "facebook"

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 20:10

10 identicon

Flottasti mótmælandinn var eldri dama sem barði með hækju í staur.  Sú var samt alveg nógu spræk til að fara niður eftir.

María Sigrún (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 22:29

11 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl. Sé að þú hefur nóg að gera!

Ég var þarna í gær og barði utan ljósastaur. Svo drapst á honum. Hef líklega lagt of mikla áherslu á höggin?

Ég var að spá í eitt sem er áberandi í mótmælunum, en það er hversu stór hópur VG er á staðnum og mótmælir og biður um nýjar kosningar.

Ég trúi því varla að VG sé að nýta sér lætin og um leið meðbyr í skoðanakönnunum til að fá kosningar og komast þar með til valda? Nei varla...eða hvað? Ef svo er er ég hræddur um að fólk sjái í gegnum það. Ég t.d. mótmæli vegna þess að ég er búinn að fá nóg af því liði sem hafði tækifæri, enda ágætis tiltekt í mínum flokk.

Það væri gott ef einhver hér gæti svarað því og þá hvort viðkomandi sé að mótmæla öllu gömlu þingliðinu, eða bara nokkrum sem hafa ekki staðið sig vel?

Persónulega við ég fá nýja forrystu í öllum flokkum. Það má ekki gleyma að þeir sem eru enn við völd hafa haft sinn tíma...

Sjáumst á laugardaginn...og ps. Ég ætla ekki að standa við ljósastaurinn núna!

Sveinn Hjörtur , 22.1.2009 kl. 01:17

12 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Er ríkisstjórnin ekki að koma óorði á stjórnleysingja ???

Hildur Helga Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 01:36

13 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sveinn - ég hef séð alveg jafnmargar manneskjur á mótmælum frá Samfó og frá VG - en þetta eru sögusagnir sem virðast ætla að lifa góðu lífi.

Ég er hjartanlega sammála þér með að það er brýn þörf á uppstokkun allsstaðar. 

Birgitta Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 07:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.