Leita í fréttum mbl.is

Skrílinn úr Seðlabankanum

Það sést vel á myndbandsupptöku mbl.is að þessi maður var ekki í vörn heldur réðst hann á fólkið. Þessi maður ætti að taka poka sinn á mánudaginn. Ekki beint að haga sér eins og virðulegur opinber starfsmaður úr Seðlabankanum. Frétti líka að Ólafur sé með tattú á upphandlegg sínum þar sem stendur "White Pride Only". Hver er eiginlega með honum? Veit það einhver?

En svona er nú Ísland í dag skrílin finnast flest í okkar opinberu stofnunum. Af hverju má þessi maður lumbra á telpu og dreng sem honum finnst afturhaldskommatittir án nokkurra eftirmála? Mér finnst að allir sem frömdu líkamlegt ofbeldi þennan dag, mótmælendur, lögga og aðrir opinberir starfsmenn eigi að sæta ábyrgð.

n682104622_1878755_5368.jpg
 
Frásögn mannsins sem Ólafur ætlar að lumbra á:
12 Smámynd: Þór Jóhannesson

Svona ykkur að segja var þetta alveg ótrúleg innkoma þessarar manna. Þeir gengu þarna um og hrintu og bæði konum (eins og sést á myndbandinu) og örðum um koll sem á vegi þeirra urðu. Annar reyndi að sparka í liggjandi mann sem var verið að hlúa að og hafði orðið fyrir piparúða. Þá spurði ég hann hvort það væri allt í lagi með kollinn á honum og þá hrinti hann mér ég snéri mér undan og horði í augun á honum og sagði "Gjörðu svo vel og gefðu mér á kjafinn ef þér líður betur með það" þá reiddi hann til höggsins (og þar hefur myndavélin náð atvikinu og sést það á stillimyndinni á undan fréttinni). Hann hins vegar hætti við að kýla mig og hrinti þess í stað konunni sem næst var. Svona gengu þeir í gegnum ca. 500 manna hóp mótmælenda og hrintu og ýttu þeim sem fyrir urðu - og í raun er ótrúlegt að þessir hrottar hafi farið í gegnum hópinn án þess að nokkur svo mikið sem ýtti til baka (og það segir e.t.v. hversu mikið mótmælendurinir voru tilbúnir að beita ofbeldi þarna fyrir framan Hótel Borg).

Þór Jóhannesson, 2.1.2009 kl. 21:23

 

mbl.is Taldi sér ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann situr líka í framkvæmdastjórn Neytendasamtakanna.

Dísa (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 22:00

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

http://leynithjonustan.com/2009/01/02/sjalfst%C3%A6%C3%B0isflokkurinn-gerir-ut-hopa-sem-er-gert-a%C3%B0-ogna-motm%C3%A6lendum/

En sammála þér að fullu. Burt með manninn í einum grænum

Heiða B. Heiðars, 2.1.2009 kl. 22:03

3 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Takk fyrir að benda á þessa síðu, Heiða.

Björgvin R. Leifsson, 2.1.2009 kl. 22:06

4 identicon

Er þessi vitleysa ekki að fara að hætta,er nokkuð viss um að þessi hópur sem er með þessi skrílslæti er ekki með öllu mjalla.Þetta mun engu skila sér með viti,miklu frekar fá fleira fólk sem er á móti svona mótmælaaðgerðum,það eru margar aðrar leiðir sem skila meiri árangri það er ég viss um.Enda virðast þetta vera fólk sem mætir með læti í farteskinu og ætla að gera læti og fá einhverja samúð þegar lög og regla kemur inn í málið.Styð Lögregluna fullkomlega..........

María Sveins (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 22:10

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Mér finnst nú eiginlega að mbl ætti að leggja sjálfstætt mat á málið í framsetningu fréttarinnar.

Frásögn mannsins er greinilega allt önnur en framganga mannsins á videoinu.   Mb. hefur ekkert um það að segja nema að einstaklingurinn sjáist "bregða hönd á loft"

Hvað getur maður lært af þessu ?  Jú, hve varlegt er að treysta fréttaflutningi fjölmiðla.

Hvað halda menn td. að mikiðsé að marka fréttir sem sumir vestrænir miðlar birta af árásum ísraela á gaza ? Þar sem birtar eru meira og minna fréttatilkynningar IDF og það kallað fréttir.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 2.1.2009 kl. 22:19

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sá sem er með hagfræðingnum þarna á myndbandinu heitir Mummi og er svæfingalæknir. Hann er bróðir Ólafs Klemmu

Heiða B. Heiðars, 2.1.2009 kl. 22:49

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Þessir menn eru nú einhverjir mestu þöngulhausar sem ég hef nokkurn tíman á æfi minni litið. ! Þvílíka og aðra eins HEIMSKU hef ég nú aldrei á æfi minni heyrt. Það kom nákvæmlega EKKERT AÐ VITI ÚT ÚR ÞEIM... þetta var eins og FÓSTBRÆÐRASKATS.

Brynjar Jóhannsson, 2.1.2009 kl. 23:16

8 Smámynd: Hulla Dan

Sem sagt, annar er hagfræðingur hjá seðlabankanum og hinn yngri bróðir hans og svæfingarlæknir???
Ég er sko ekki bit hissa að fólk hylji andlit sín.
Hugsið ykkur að vera að fara í aðgerð og lenda hjá svæfingarlækninum Mumma. Og hann kannski man eftir þér frá því úr mótmælunum. Já sæll.
Ég legg nú til og mæli með að þeir segi báðir tveir upp stöðum sínum.
Svona menn eiga hvorki að vinna með fólk eða fólki.

Hulla Dan, 2.1.2009 kl. 23:45

9 identicon

Skoðið endilega eftirfarandi PDF skjal frá Ársþingi Skurðlæknafélags Íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands. Þar er Guðmundur Klemensson svæfinga- og gjörgæslulæknir með fyrirlestur um - hvað annað en GERVIHJARTA!

Slóðin sem ég komst inn á er:

http://74.125.77.132/search?q=cache:9qmbpOGO13AJ:www.laeknabladid.is/media/tolublod/1304/PDF/f05.pdf+Guðmundur+Klemensson&hl=en&ct=clnk&cd=2&client=safari

Guggan (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 23:56

10 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Guggan - takk fyrir að láta mig skellihlæja svona rétt undir miðnætti - gott að sofna með bros á vör - þvílík séríslensk kaldhæðni sem þessi skrípaleikur þeirra bræðra er:) hef fengið helling af sögum um Ólaf sem ég ætla að setja inn á bloggið á morgunn... góða nótt félagar ...

Birgitta Jónsdóttir, 3.1.2009 kl. 00:00

11 identicon

Það er gömul bardagaaðferð sjálfstæðisflokksins að senda menn innan um mótmælendur sem eiga vísvitandi að efna til illinda, til að koma óorði á mótmælendur

toti (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 00:19

12 Smámynd: FLÓTTAMAÐURINN

Og nú er Bláa Höndin búin að loka á blogg tengingu við fréttina

FLÓTTAMAÐURINN, 3.1.2009 kl. 01:18

13 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Tuddar. Þarna fengu þeir græna ljósið og eru vísir til að mæta framvegis á mótmælafundi. Þeir eru hvorki verðir viðlits né svara.

Kristbergur O Pétursson, 3.1.2009 kl. 01:26

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekki hægt að tengja við þessa frétt.  Bláa höndin slær fast.

En...

Þetta eru fantar og fúlmenni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.1.2009 kl. 01:32

15 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ég heyrði þá endurtaka við illa farið fólk sem var verið að hlúa að eftir piparúða „gott á ykkur aumingjar“ - og sparka til fólksins. Maður ætlaði ekki að trúa eigin augum.

- Svo segist þessi hagfræðingur Seðlabankans bara hafa gengið um miðbæinn í sakleysi sínu og varið hendur sínar.

Helgi Jóhann Hauksson, 3.1.2009 kl. 02:04

16 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég er algjörlega orðlaus yfir framkomu þessar bræðra....það er einmitt þessi gerðin af einstaklingum sem blómstra t.d. í styrjöldum sem kúgarar, þeir fá útrás fyrir mannvonsku sína með því að sparka í liggjandi fólk....ég vona svo sannarlega að Ólafur verði látinn hætta.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 3.1.2009 kl. 02:14

17 Smámynd: Gunnar

Athugasemdir er hægt að finna á http://truth.is/?p=870 - Láttu mig vita ef þú veist um einhverjar sem vantar (Gerðu Ctrl-H í vafranum þínum til að sjá síður sem þú hefur skoðað).

Gunnar, 3.1.2009 kl. 02:23

18 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Er reyndar sjálf búin að blogga um þetta atvik.   Sá þetta ekki fyrr en í gærkvöldi, en sýndist ekkert fara milli mála að þarna voru ósköp einfaldlega á ferð tveir tuddar "að snapa sér fæting".

Gleðilegt Annus Mirabilis...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 07:21

19 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Vá hvað þetta er allt aumt og lasið... takk Gunnar fyrir að halda þessu til haga.... mynduð þið vilja fá svæfingu hjá þessum Guðmundi?

Birgitta Jónsdóttir, 3.1.2009 kl. 08:31

20 identicon

Það var magnað að sjá þessa vitleysinga og fauta, hagfræðingin og svæfingalæknirinn,  reyna að ögra mótmælendum og hrinda ungri konu sem var í þeim hópi. Ég er ekki viss um að ég hefði getað sýnt sömu stillingu og mótmælendurnir. Ég hefði trúlega gefið fantinum honum Ólafi einn verðskuldaðan fyrir að ráðast á konuna. Eins ætla ég að vona að enginn mótmælandi þurfi á þjónustu læknisins að halda í bráð. Læknir sem ekki hefur betri stjórn á sér en þetta er hættulegur. Þetta er trúlega dæmi um það sem er að fara í gang í þjóðfélaginu okkar. Það verða átök og þau verða blóðug. Við skulum ekki gleyma því að þessi átök snúast um það að örfáir aðilar hafa orðið til þess að unga fólkið okkar er skuldugt upp fyrir haus því það þarf að borga fyrir græðgina. Þetta snýst líka um það að bankakerfi heillar þjóðar hrundi og hún fór frá því að vera ein best stæða yfir í að vera ein sú skuldugasta á einni viku - og enginn sér sóma sinn í því að axla ábyrgð og segja af sér. Það er mikil reiði í samfélaginu og flestir stjórnmálamenn okkar eru óhæfir. Ég verð að taka það fram að síðast þegar ég vissi var ég skráður í Sjálfstæðisflokkinn og búinn að vera það lengi - en ekki mikið lengur.

Jóhann (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 10:24

21 Smámynd: Jack Daniel's

Merkilegt að þessir fávitar skuli fá að ganga lausir og hvað þá að vinna sem opinberir embættismenn.
Óli ætti að sjá sóma sinn í því að pakka saman draslinu sínu og hypja sig út úr Svörtuloftum í einum hvelli en einhvern veginn hef ég ekki trú á því að hann hafi nokkra sómatilfiningu því það sýndi  hann og sannaði á gamlársdag.

Hefur einhver trú á hagfræðingi sem hagar sér með þessum hætti?

En svæfingalæknirinn bróðir Óla?  Ætli hann hann kanni hvort það séu mótmælendur sem hann þarf að svæfa í vinnunni og svæfi þá kanski til frambúðar?
Ekki mundi ég vilja hann sem minn svæfingalækni og skora á fólk sem þarf að fara í aðgerð eða svæfingu að kanna vel hvort þessi fasisti sé svæfingalæknirinn þeirra.

Svona ræflar eins og þessir bræður hafa sannað sitt innræti og hafa orðið sér til ævarandi skammar.

Jack Daniel's, 3.1.2009 kl. 10:59

22 identicon

Ég hef sjaldan séð eins sorglega menn og þessa 2, þvílíkir ruglukollar og að mér sýnist fánaberar gamla íslands.

DoctorE (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 11:11

23 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Ég var rétt í þessu að senda fyrirspurn til umsjónarmanna moggabloggsins og bíð spenntur eftir svari. Fyrirspurnin er svohljóðandi:

Góðan daginn og gleðilegt nýtt ár.

Ég vildi leggja fram litla og saklausa spurningu er varðar frétt sem nýlega birtist á mbl.is

Fyrirsögnin er "Taldi sér ógnað" en þar svarar Ólafur nokkur Klemensson ásökum mótmælenda en þeir sökuðu hann um að hafa slegið til þeirra og öskrað að þeim ókvæðisorðum við mótmælin hjá Hótel Sögu.

Spurning mín er þessi:

Af hverju er ekki lengur hægt að blogga við fréttina og af hverju í ósköpunum er búið að fjarlægja þau blogg sem voru þar fyrir?

Getur verið að ástæðan sé sú að í sumum bloggunum komu fram vitni sem töldu sig 100% viss á því að Ólafur og bróðir hans hafi verið gerendur í þessu máli en ekki þolendur?

Endilega svarið mér sem fyrst.

Nýárskveðjur,

Björgvin Gunnarsson
Ég vona að sem flestir geri það sama og sendi fyrirspurn á moggabloggið.

Björgvin Gunnarsson, 3.1.2009 kl. 15:46

24 Smámynd: FLÓTTAMAÐURINN

Mér var að berast svar frá mbl.is:

Sæll Halldór
Ástæðan fyrir því að lokað var fyrir bloggið á þessar fréttir er sú að þar var að finna orðbragð sem ekki þótti viðeigandi á blog.is
kveðja
Guðrún

FLÓTTAMAÐURINN, 3.1.2009 kl. 16:22

25 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Eins og það sé ástæða til þess að loka á öll blogg við þessa frétt...

Björgvin Gunnarsson, 3.1.2009 kl. 17:41

26 Smámynd: FLÓTTAMAÐURINN

Þetta er allavegana svarið sem ég fékk síðan getur hver og einn lagt sitt mat á hversu líklegt sé að þetta sé satt.

FLÓTTAMAÐURINN, 3.1.2009 kl. 17:47

27 Smámynd: Steinar Immanúel Sörensson

það er ritskoðunin sem á ekki að vera til í landinu en er stjórnað af pólitískum öflum tengdum sjálfstæðisflokknum.

Þennann mann á að láta fara undir eins úr Seðlabankanum svo og einnig á að láta læknirinn fara, læknir sem beitir fyrir sig ofbeldi á ekki að sinna svoleiðis starfi, hann á að klaga undir eins til Landlæknis með þessum myndbrotum til sönnunar. Þessi hegðun er óafsakanleg af manni sem hefur gefið heit sitt um að hjálpa fólki.

Steinar Immanúel Sörensson, 3.1.2009 kl. 21:32

28 identicon

"mynduð þið vilja fá svæfingu hjá þessum Guðmundi? "

Held ekki Birgitta ;) , hef líka fengið frásögn nýlega um þennan mann frá manneskju sem hefur verið að vinna á sama spítala.  Ein hjúkkan var víst brjáluð út í hann þarna einu sinni því hann sagði að konur sem klæddu sig eggjandi væru að biðja um áreitni (í kjölfar umræðu um einhverja nauðgunina).

Ari (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 04:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.