Leita í fréttum mbl.is

Bananalýðveldi

Ef tengslin eru svona mikil, þá krefst ég að það verði fengin hingað erlendir aðilar til að rannsaka þessi mál, eigi síðar en núna. Það góða við þetta mikla fall er að spillingin er núna algerlega fyrir opnum tjöldum og spurningin er bara þessi: ætlum við, kæra þjóð, að láta ríkisstjórnina og allt sem undir hana fellur að komast upp með þetta?

Skrifið endilega nafnið ykkar undir á kjosa.is, þar sem farið er fram á að efnt verði til kosninga. Krafan er að það verði farið að undirbúa kosningar, eins og allir vita þá gerist slíkt aldrei á einum degi en við viljum að það ferli fari í gang eigi síðar en núna, annars verður ekkert uppgjör kæra þjóð, aðeins hvítþvottur eins og þessi frétt ber með sér.

Mæli svo með því að við sameinumst undir fána bananalýðveldisins - því flagg nýrra tíma hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Var að máta friðarflaggið við hugarástand mitt og það bara passar ekki. Inni í mér kraumar reiði sem fær aðeins sjatnað ef skipt verður um skipstjóra á þessu mölbrotna skipi sem siglir stjórnlaust út í ballarhaf í ægilegu fárviðri. Það er stjórnarkreppa, stjórnarliðar tala sitt í hvora átt, enginn virðist sammála, þó þeir séu í sama flokki, um málefni er varða við landráð. Ef það er ekki stjórnarkreppa, þá veit ég ekki hvað slíkt kreppa er.

 

bananalydveldi_707953.jpg

 


mbl.is Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var að blogga um þetta og nú er mér allri lokið.

Þessi fáni passar algjörlega við stemminguna, hinn er óhuggulegur.  Ég vil hann burt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2008 kl. 08:19

2 Smámynd: Heidi Strand

Ég er hrædd um að við getum alveg gleymd norðurlöndunum. þeir munu aldrei treysta Íslenska ríkið og lána okkur peninga ef hér verður enga breytingar
Norræna nefndin undir stjórn Svía ætlar að kynna sér aðstæður hér áður en ákvörðun verður tekið um lán.
Ég heyrði þetta í norsku sjónvarpsfréttunum

Heidi Strand, 30.10.2008 kl. 08:59

3 identicon

Spilling og siðblinda ríkir í þessu þjóðfélagi! Burt með þessa óhæfu ríkisstjórn NÚNA!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 09:03

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Appelsínugula byltingu á laugardaginn - nú er nóg komið... og já það er eins gott að BB tókst ekki að koma á fót stormsveitinni sinni... en það er alveg ljóst að hann er að misnota aðstöðu sína enn og aftur

Birgitta Jónsdóttir, 30.10.2008 kl. 09:54

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

maður er alveg hættur að skilja svona fólk

Jón Snæbjörnsson, 30.10.2008 kl. 10:00

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ALgjörlega sammála hér.  Og Birgitta mín ég sé að þú hefur staðið í ströngu, verið hótað og hvað eina.  Láttu ekki buga þig, ég segi eins og aðrir hér á undan mér ég stend með þér.  Og við þurfum að vera samstíga í þessari baráttu.  Ástandið er að verða nánast óþolandi, vegna yfirgangs og frekju stjórvalda.   Það er eins og þau séu fædd til að drottna hér, en sitji ekki í skjóli fólksins í landinu, sem kaus þessi ósköp yfir sig, og gerir vonandi aldrei þalu mistök aftur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.10.2008 kl. 14:14

7 Smámynd: Bjarkey Gunnarsdóttir

Hvað á maður að segja við svona löguðu? Mig skortir a.m.k. hugmyndaflug til þess arna.

Bjarkey Gunnarsdóttir, 30.10.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 508713

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.