Leita í fréttum mbl.is

Og hún hló, og hún skelli skelli hló!

Það er að segja ég...

þessi ljósmynd er bara snilld. Er einmitt búin að liggja í MAD sérútgáfu tileinkaðri Star Wars síðustu daga og þessi mynd gæti einmitt verið teikning eftir einhverja af MAD mönnunum, en ekkert er þeim heilagt. Ég vona að fólk fari nú ekki að hneykslast á þessu, því þetta er bara fyndið. 

Fyrir þá sem vilja vita meira um Tíbet, þá setti ég fullt af slóðum á efni því tengdu sem og slóðir í heimildarmyndir á google video... Vona að fleiri taki sig til og kynni sér hvað er í gangi þarna og hefur fengið að viðgangast allt of lengi.

 


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég mæli með þessu videoi af atburðinum. Ný hljóðrás fullkomnar skemmtunina :)

Arnold Björnsson (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

sá þessa mynd í mogganum.. finnst hún frábær..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.6.2008 kl. 12:59

3 identicon

Þyrftum líka að fá að sjá einhverja svona bíófígúru í hópi kuflklæddra Tíbetmunka sem eru að væla um sjálfstæði. He he he.

Úlfur (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:32

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ég er ekki alveg að skilja hvað þú átt vð Úlfur

finnst þér þjóðarhreinsanirnar í Tíbet eitthvað til að hlæja að?

ef þú þarft að vera með svona ósmekkleg komment hér, þá vinsamlegast komdu fram undir nafni:..

Birgitta Jónsdóttir, 11.6.2008 kl. 13:40

5 identicon

Já, þetta var reglulega ósmekklegt hjá mér og ég biðst fyrirgefningar. Markmiðið var að vekja til umhugsunar um hæðni gagnvart trú og trúarbrögðum. Það getur ekki verið bannað að hæðast og hlæja að td múslimum og hindúum - en sjálfsagt að sýna óvirðingu þeim sem aðhyllast hinn krossfesta.

Lifðu heil og baráttukveðjur! Úlfur.

Úlfur (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:26

6 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það truflar mig ekki neitt ef hæðst er að búddistum eða heiðingjum eða múslimum, eða kristnum svo framarlega sem hæðst er að stofnunum þeim er reyna að telja fólki í trú um að þeirra sé ríkið, mátturinn og dýrðin. Ég hef litla þolinmæði gagnvart misnotkun á trúarbrögðum en mikið umburðarlyndi gagnvart því að fólk stundi hvaða trú sem er eða vantrú svo framarlega að ég sleppi undan hver kyns trúboði:)

Ég tek það fram að ég er enginn sérstakur aðdáandi vantrúnni, enda finnst mér margt af fólkinu frelsað í vantrúnni og finnst mér það ekkert skárra en blind trú á trúarbrögð. Hygg að það væri mikil blessun fyrir manneskjuna ef hún hætti að varpa ábyrgðinni til valdhafa, hvor heldur þeir séu andans menn eða mammons menn, stjórnmálamenn eða annað yfirvald.

Birgitta Jónsdóttir, 11.6.2008 kl. 14:40

7 identicon

Heilbrigð og heiðarleg viðbrögð hjá þér, finnst mér. En það eru semsagt margar hliðar á þessu og fólk er viðkvæmt fyrir því sem því er helgast, hvort sem það er "heilög" trú eða vantrú. Og að sjálfsögðu ættu allir að vera ábyrgir gagnvart eigin gerðum og lífi.

Styð baráttu Tíbetbúa fyrir frelsi og sjálfstæði. Úlfur.

Úlfur (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband