Leita í fréttum mbl.is

Alþjóðaaðgerðadagur 31.mars til stuðnings Tíbet

Mánudaginn 31. mars munu Íslendingar ekki láta sitt eftir liggja og þaka þátt í alþjóðadegi til stuðnings baráttu Tíbeta fyrir mannréttindum og hittast fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðimel 29, kl 17:00.

Alþjóðaaðgerðadagurinn til stuðnings Tíbet er haldinn til að vekja athygli á að nærri 1,5 miljón manna hafa skráð nöfn sín á lista Avaaz Tibet petition,  sem kallar á hófsemi í aðgerðum, að mannréttindi séu virt og að kínversk yfirvöld hefji samræður við Dalai Lama.

Samskonar aðgerðir verða haldnar um heim allan og kínverskum yfirvöldum afhentur þessi listi á táknrænan máta,

Eftir stutt stopp við kínverska sendiráðið verður gengið saman að Alþingi þar sem að opið bréf verður afhent til Forsætisráðherra og Utanríkisráðherra.

Í bréfinu verða eftirfarandi spurningar;

1. Er rétt að fórna mannréttindum fyrir viðskiptahagsmuni. Styðjið þið það?

2. Hvað ætla íslensk stjórnvöld að gera til að hjálpa Tíbetum í þeirra baráttu fyrir mannréttindum?

Sama bréf verður síðan sent á alla alþingismenn allra flokka, þar sem þeir eru hvattir til að svara þessum spurningum samviskusamlega og svör þeirra verða svo birt á blogginu mínu til að byrja með.

Það hefur ríkt mikil þögn hérlendis meðal ráðamanna og enginn flokkur tekið skýra afstöðu með málstað Tíbeta. Við köllum eftir þverpólitískum stuðningi gagnvart baráttu þeirra og að íslenskir ráðamenn hvetji kínversk yfirvöld til að hefja samræður við Dalai Lama nú þegar.

Þeir sem hafa ekki ennþá skrifað undir áskorun avaaz ættu að gera það núna... 

hér er slóðin: http://www.avaaz.org/en/tibet_end_the_violence


mbl.is Ólympíueldurinn afhentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 508727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.