Leita í fréttum mbl.is

Blessaður karlinn

Þótti nú alltaf svolítið vænt um hann þó ég hefði aldrei hitt hann í persónu. Ég aftur á móti fyrir hönd Hróksins hélt úti undirskrifalista undir yfirskriftinni "Free Bobby" og var vel með á nótunum varðandi allt þetta mál í Japan. Það var farið illa með hann þar og án efa ýtt undir veikindi hans. Gleðilegt að hann fékk að vera hérna hjá okkur smælingjunum undir lokin. Hann átti marga alvöru vini hér.
mbl.is Bobby Fischer látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Það er svo sannarlega hægt að segja að hann hafi LIFAÐ maðurinn. Hann lifir áfram enda líf hans og ferill mjög merkileg.

Gleðilegt nýtt ár Birgitta!  

Laufey Ólafsdóttir, 18.1.2008 kl. 19:21

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér finnst ósköp sætt hvað lát hans virðist snerta taug í mörgum, ekki síst hér heima á Íslandi. Erlend pressa pælir meira í sérviskunni hans, en með nokkrum undantekningum þá er smá angurværð í gangi og söknuður út af því að einn af karakterunum í bænum eru farnir. Hin hliðin, baráttan fyrir að ná honum úr fangelsi, er auðvitað grafalvarlegt mál og hver sem lagði þar hönd á plóginn á heiður skilinn, held að flestir séu búnir að gleyma því hvað það var í rauninni tvísýnt og eiginlega hálfgert bríarí að það tókst, í trássi við freka stóra bróður í NATÓ, sem vildi ekki að við gerðum neitt.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.1.2008 kl. 21:19

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gleðilegt nýtt ár Laufey og gleðilegan nýjan dag:)

Anna: ég gæti ekki verið meira sammála þér, ég man þegar þetta stóð sem tæpast, hve mjög við höfðum áhyggjur af, ekki bara líðan hans og heilsu, heldur að hann myndi hreinlega þurfa að dúsa sem pólitískur fangi til dauðadags. Þetta var reyndar alveg ógleymanlegur tími og maður lá í goggle fréttaskotunum og símanum öllum stundum. Vegna þess að ég var skráð sem umsjónamaður undirskrifalistans og ekki mikið um upplýsingar um hvernig mætti fá upplýsingar um stöðu mála, höfðu einhverjir blaðasnápar að utan náð að grafa upp símanúmer hjá mér og maður fékk lítinn frið á meðan á þessu stóð. Þessi mannvera var stórmerkileg og þrátt fyrir ýmsa öfga í hans sérvisku hafði hann nokkuð til síns máls. Aðförin í hans garð er smánarblettur í sögu Bandaríkjanna og einnig Japan.

Birgitta Jónsdóttir, 20.1.2008 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 508716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.