Leita í fréttum mbl.is

Vill Björn Valur fella stjórnina?

Furðulegt finnst mér að Björn Valur vilji fella sinn eigin foringja ef forsetinn gerir ekki eins og framkvæmdavaldið býður. Mér finnst þetta reyndar alveg makalaust í ljósi þess að minnihlutinn hefur ítrekað að þetta mál er miklu stærra en hefðbundin pólitík og hefur minnihlutinn meira að segja gengið svo langt að lofa að gera ekki atlögu að stjórninni ef Icesave hefði verið fellt í þinginu. En hér stígur fram maður sem hefur verið hve dyggasti stuðningsmaður Steingríms og hótar því að fella stjórnina ef forseti þjóðarinnar hlustar á ákall þjóðar sinnar.

En Björn Valur hefur einmitt verið sá þingmaður sem kalla mætti Þránd í götu þess að finna sameiginlega lausn á þessu máli meðal þingmanna. Hefur sýnt af sér einstakan hroka og stórkallalætin í honum eiginlega hálf kauðaleg.  

En öngstrætið sem Björn Valur er kominn í núna er slíkt að hann er reiðubúinn að fórna sinni eigin ríkisstjórn fyrir Icesave, þó er hann ekki einu sinni ráðherra. Sumir segja að hann sé einskonar málpípa foringja síns, ef svo er þá er hann kannski gríma Steingríms J. sem hingað til hefur stundað grímulausar hótanir gagnvart sínu fólki ef það samþykki ekki Icesave. 

Ég er auðvitað meðvituð um að SJS lagði sjálfan sig að veði fyrir trúverðugleika Svavars samningana - en hann virðist hafa gleymt því að veðið í kringum Icesave er ekki hans heldur þjóðarinnar og er bara miklu stærra en einstaklingar. Kannski væri bara best að SJS myndi axla ábyrgð sína ef Icesave fer í þjóðaratkvæðagreiðslu og tæki Björn Val með sér, en ríkisstjórnin þarf ekki að falla út af því, því SJS lagði sjálfan sig að veði sjálfviljugur. 


mbl.is Nauðsynlegt að fá niðurstöðu fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Birgitta, Ég hef verið að velta fyrir mér en hef hvergi séð eða heyrt minnst á af hálfu þingmanna en það er hvort neyðarlögin og yfirtaka ríkisisins á bönkunum hafi ekki breytt eðli þeirra úr því að vera einkabankar og yfir í að vera ríkisbankar?  Og ef þú samsinnir því, ertu þá ekki sammála mér að ríkisstjórnin hafi fyrir hönd þjóðarinnar undirgengist þær skuldbindingar sem hvíldu á bönkunum fyrir hrun?  Ef þetta eru réttar ályktanir þá verðum við að samþykkja ríkisábyrgðina og Björn Valur og Steingrímur eru að berjast fyrir réttum málstað en þið í minnihlutanum eruð búin að flækja málið svo fyrir ykkur og helmingnum af þjóðinni að þið eruð hætt að botna í því. Og forsetinn ekki undanskilinn þótt ég trúi að hann sé meir að hugsa um eigin hag og hvernig hann komist frá því lítið laskaður.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.1.2010 kl. 09:43

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ef að bankarnir hefðu með sanni verið meðhöndlaðir sem ríkisbankar er mér fyrirmunað að skilja af hverju skilanefndir bankanna, sér í lagi Landsbankans geta komist upp með að neita þingmönnum og meira að segja fjármálaráðherra um að fá aðgang að eignasafninu. Ég er alveg sammála þér með því að málið er flókið og illskiljanlegt en það breytir ekki þeirri staðreynd að það er mikil lagaleg óvissa um það innan ESB og innan lagaramma EES hvort að okkur beri skilda til að standa við þessar skuldbindingar, farsælast væri að fá botn í það áður en lengra er haldið.

Birgitta Jónsdóttir, 4.1.2010 kl. 09:57

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Skilanefndirnar eru sjálfstæðar gagnvart stjórnvöldum og það er hárrétt hjá Steingrími og Gylfa að vera ekki með puttana í því sem þar fer fram. Hins vegar þarf að fara fram önnur rannsókn og þá af nefnd þingsins á störfum skilanefndanna og stjórnum hrunbankanna og þá verða þeir að svara fyrir gerðir sínar, t.d afhverju Landsbankinn lánaði 30 ma til að kaupa Icelandic Group og hvaðan þeir peningar komu. Voru það kannski Icesave peningar?  Minni á að skilanefndir og stjórnir þessa banka voru skipuð af Sjálfstæðismönnum og Björgvini G eins og þú veist.  En mest um vert er að hafa forgangsröðina á hreinu. Góðir hlutir gerast hægt

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.1.2010 kl. 10:19

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ekki féll ríkisstjórnin þegar hann Ólafur sagði nei við tillögu núverandi (d)ritstjóra Morgunblaðrsins- um eignarhald fjölmiðla- svo afhverju ætti hún að falla út af þessu máli ef hann segir nei. 

Annars hef ég engar áhyggjur. Ólafur mun skrifa undir og í kjölfarið mun gerast dramatískt upphlaup af hálfu stjórnarandstöðunnar sem verður hlálegur brandari að sjá hérna á kantinum fyrir okkur sem fylgjumst með þessum skrípaleik með öðru auganu. 

Brynjar Jóhannsson, 4.1.2010 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir

Ég vil gjarnan láta eitthvað gott af mér leiða í samfélagi manna. Ég mun einbeita mér að því að því að búa til vettvang fyrir þjóðina að vinna að þeim lýðræðisumbótum sem hún krefst og vill leggja sína krafta í. Ég starfa sem þingmaður og þingflokksformaður fyrir Hreyfinguna - fyrir fólkið í landinu. Ég er formaður vina Tíbets.

Ég vil hafa athugasemdakerfið opið - bið fólk samt um að tjá sig eins og það myndi gera ef við stæðum augnlitis til augnlitis. Ég mun því miður ekki alltaf hafa tíma til að svara kommentum eða tölvupósti en ég reyni að lesa allt með opnum huga. Vil gjarnan nota þetta sem vettvang fyrir fólk að koma með hugmyndir um hvað mætti betur fara í samfélginu okkar.

Ég aðhyllist engin sérstök trúarbrögð, ég tilheyri engu sérstöku flokkakerfi, ég tilheyri engu sérstöku nema þessu stórmerkilega mannkyni og þessari yndislegu jörð. Ég er þakklát fyrir að lifa á sögulegum tímum þar sem allt getur gerst. 

Netfang: birgitta@this.is

Bækur

Bækurnar mínar

  • Bók: Tuttugasta öldin og lærdómar hennar
    Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda : Tuttugasta öldin og lærdómar hennar (ISBN: 9979-772-77-8 )
    Þýddi þessa ásamt Jóni Karli Stefánssyni
  • Bók: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements
    don Miguel Ruiz: Lífsreglurnar fjórar - the Four Agreements (ISBN: 9979768835)
    Lífsreglurnar fjórar er ævaforn indjánaspeki sem hefur farið sigurför um heiminn. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og útskýrir sannindi sem er að finna í helgum dulspekihefðum víðsvegar um heim. Lesanda eru kynntar fjórar einfaldar en magnaðar lífsreglur sem vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði einstaklingsins. Höfundurinn, don Miguel Ruiz, er af ætt græðara og seiðmanna sem hafa iðkað Toltekafræðin frá aldaöðli. Hann er heimsþekktur fyrir bækur sínar og fyrirlestra.
  • Bók: Dagbók kameljónsins
    Birgitta Jónsdóttir: Dagbók kameljónsins (ISBN: 9979973307)
    Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er. Með því að þvinga sig til að muna fortíðina skapar hún möguleika á að eiga sér einhverja framtíð. Alkóhólismi móður hennar vegur jafnframt þungt í þessu verki og hefur afgerandi áhrif á sjálfmeðvitund söguhetjunnar sem á endanum öðlast þroska til að sjá manneskjuna handan sjúkdómsins sem brýst oft út í mikilli sjálfhverfu þess sem er haldin honum og skilur aðra fjölskyldumeðlimi eftir með því sem næst ósýnilegan geðrænan sjúkdóm sem jafnan er kenndur við meðvirkni. En þetta er engin venjuleg bók, hún er brimfull af von og lausnum, ævintýrum og einlægni og fellur aldrei inn í pytt sjálfsvorunnar. Bókin er tilraun til að brúa bilið á milli þess myndræna sem oft fyrirfinnst í dagbókum, en formið bíður upp á vægðarlausan heiðarleika og gefur lesandanum tækifæri á að nota sitt eigið hugarflug.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 508655

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...011-02-25_l
  • ...unknown
  • ...581_1050977
  • ...x-_28-of-81
  • ...490581
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband